Fréttablaðið - 25.05.2008, Side 71
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 23
Kathleen
Firrantello,
dóttir
djassarans
Joe Farrell,
hefur höfðað
mál gegn
rapparanum
Kanye West
og útgáfu-
fyrirtæki
hans fyrir að
hafa notað
bút úr lagi
föður hennar
án leyfis.
Að sögn Kathleen notaði West
lag föður hennar Upon This Rock
frá árinu 1974 í lagi sínu Gone.
Fer hún fram á rúmlega sjötíu
milljónir króna í skaðabætur. Hún
hefur einnig höfðað mál gegn
röppurunum Method Man,
Redman og Common fyrr að hafa
notað búta úr sama lagi. Telur
hún að Method Man og Redman
hafi notað lagið í dúett sínum Run
4 Cover en Common í lagi sínu
Chi City.
Höfðar mál
gegn Kanye
KANYE WEST Dóttir
djassarans Joe Farrell
hefur höfðað mál gegn
rapparanum Kanye
West.
Steven Tyler, söngvari rokksveitar-
innar Aerosmith, hefur skráð sig í
meðferð í Kaliforníu. Hinn sextugi
rokkari hefur undanfarin tuttugu
ár verið talinn laus við fíkniefna-
djöfulinn en eitthvert babb virðist
hafa komið í bátinn.
Tyler neytti fíkniefna í miklu
magni á áttunda og níunda
áratugnum og voru hann og
gítarleikarinn Joe Perry á sínum
tíma kallaðir The Toxic Twins,
eða Eitruðu tvíburarnir. Fimm ár
eru liðin síðan Tyler smitaðist af
lifrarbólgu C eftir lyfjagjöf en
hann er nú laus við sjúkdóminn.
Tyler farinn
í meðferð
STEVEN TYLER Söngvari Aerosmith hefur
skráð sig í meðferð í Kaliforníu.
Gylfi Ægisson stendur í
ströngu þessa dagana. Fyrir
skemmstu tók hann upp á
því að fara að skemmta einn
með gítar í fyrsta sinn á
sínum ferli. Síminn stoppar
ekki og færri fá en vilja.
„Við erum að fara að skemmta á
Siglufirði,“ segir Gylfi Ægisson,
tónlistarmaður, myndlistarmaður
og lífskúnstner. Gylfi hefur nú
rifið fram gítarinn og nikkuna og
er farinn að stjórna fjöldasöng
vítt og breitt um landið.
Gylfi hefur skemmt einn að
undanförnu en nú stendur til að
sonur hans, Sigurður, skemmti
með honum á Siglufirði, heimabæ
Gylfa, hinn 31. maí næstkomandi.
„Hann er alveg frábær eftir-
herma og mjög góður söngvari.
Ég er bara raulari, hann er söngv-
ari. Ég var einmitt að búa til plak-
at í fyrrinótt þar sem hann er í
gervum,“ segir Gylfi en Sigurður
sonur hans hyggst koma fram
sem Gigo Bellone. Landsmenn
ættu að kannast við Gigo úr þætti
Jóns Ársæls, Sjálfstæðu fólki, frá
því að Gylfi var gestur Jóns. Þá
þóttist Sigurður, í gervi Gigos,
vera týndur sonur Gylfa frá Ítalíu
og viti menn, Jón kolféll í gildr-
una. Gigo er þó aðeins eitt af fjöl-
mörgum gervum Sigurðar og er
Gylfi þögull sem gröfin varðandi
restina. Gylfi mun einnig halda
listaverkasýningu á Siglufirði
þessa sömu helgi.
Þá mun hann koma fram í sjó-
mannamessu á sjómannadaginn
sjálfan á Siglufirði og taka þrjú
lög. Sjálfur var Gylfi til sjós í
fimmtán ár og var einmitt heiðr-
aður af því tilefni árið 2005 af
Sjómannafélagi Siglufjarðar. „Ég
held ég sé yngsti sjómaður sem
hefur verið heiðraður,“ segir
Gylfi, sem drakk töluvert á sínum
sjóaraárum. „Ég var mjög blaut-
ur í landi. Þeir sögðu að það hefði
verið hægt að rekja slóðina mína
því ég var svo blautur, sporaði
allt. Síðan reyndu menn að vinda
á mér handlegginn daginn eftir
drykkju til að ná sér í afréttara,“
segir Gylfi, sem hefur ekki bragð-
að áfengi í 28 ár.
Gylfi hefur aldrei skemmt einn
með gítar fyrr en núna. „Ég vildi
ekkert vera að trufla Bubba
skinnið. Það voru þrír sem vildu
fá mig næstu helgi en því miður
er ekki enn farið að klóna,“ segir
Gylfi. Milli þess sem hann er að
stjórna fjöldasöng málar hann
myndir eða skrifar og tekur upp
ævintýri um Valla. Hið nýjasta er
Valli og sjóræningjarnir. Gylfi
sér oftast um allar talsetningar á
ævintýrunum sjálfur, með mikl-
um tilþrifum. Aðförum hans við
að túlka Jökulnornina ógurlegu
hefur til að mynda verið líkt við
svæsnar frygðarstunur að sögn
Gylfa. Þá gaf Gylfi einnig út disk-
inn Gylfi og gítarinn fyrir
skemmstu en þar tekur hann
helstu rútubílaslagara landsins.
Gylfi er sáttur við lífið og alltaf
jafn ástfanginn. „Ég hef verið
ástfanginn allt mitt líf.“
soli@frettabladid.is
Gylfi Ægis túrar með syni sínum
GYLFI OG GIGO Þeir feðgar hafa komið upp dagskrá sem þeir flytja þar sem menn
borga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Britney Spears er sögð vera að
taka upp nýja plötu um þessar
mundir sem áætlað er að komi út
fyrir jólin. Söngkonan hefur fengið
til liðs við sig upptökustjórann J.R.
Rotem og lagahöfundinn Sean
Garrett, en hann hefur meðal
annars samið slagara fyrir
söngkonurnar Beyoncé, Kelly
Rowland, Nicole Scherz inger og
Rihönnu.
Rotem segir söngkonuna hafa
meiri reynslu en flest fólk og vera
meistara í því sem hún gerir, en
upptökustjórinn vill meina að
Britney sé búin að snúa við blaðinu
eftir undangengna örðugleika og
sé nú upp á sitt besta.
Britney vinnur
að nýrri plötu
NÝ PLATA Í SMÍÐUM Söngkonan er sögð
vera búin að snúa við blaðinu.