Fréttablaðið - 25.05.2008, Qupperneq 74
26 25. maí 2008 SUNNUDAGUR
Spánn
Kefl avík
Þýskaland
Pólland
Makedónía
Madrid
Magdeburg
Berlin
Wroclaw
Skopje
HANDBOLTI Það er mikið álag á
strákunum okkar þessa dagana
en þeir hófu langt og strangt
ferðalag síðasta fimmtudag er
þeir héldu til Spánar.
Þaðan fara þeir síðan til
Magdeburgar í Þýskalandi þar
sem verður æft fram að
undankeppni Ólympíuleikanna
sem fram fer um næstu helgi.
Liðið keyrir frá Magdeburg
til Wroclaw í Póllandi þar sem
undankeppnin fer fram.
Mánudeginum eftir það er
keyrt aftur til Magdeburg þar
sem liðið æfir fyrir fyrri
umspilsleikinn um laust sæti á
HM gegn Makedónum.
Liðið fer svo frá Berlín til
Skopje í Makedóníu og sömu
leið til baka heim til Íslands.
Alls eru þetta rúmlega 11
þúsund kílómetrar í beinni
loftlínu.
Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, segir
Handboltalandsliðið:
Á ferð og flugi
um Evrópu
MIKIÐ FERÐALAG Hér má sjá þær leiðir sem landsliðið ferðast næstu daga.
Liðið er á Spáni núna en lokaleggur er í Makedóníu. Alls ferðast liðið 11 þús-
und kílómetra í beinni loftlínu í þessu 19 daga ferðalagi.
að ákveðið hafi verið að vera í
Magdeburg á milli verkefna til að
halda ferðalögum í lágmarki en
talsvert álag hefði fylgt því að
fljúga heim til Íslands á milli
þessara verkefna og svo út aftur.
Með þessu fyrirkomulagi vonast
HSÍ til þess að halda leikmönnum
eins ferskum og hægt er í slíkri
törn - hbg
FÓTBOLTI Enska blaðið Times hefur
borið saman Evrópumeistaralið
Manchester United á dögunum við
liðið sem vann Meistaradeildina
fyrir níu árum en margir telja það
lið algjörlega einstakt í sögu
United.
Niðurstaða blaðsins er að liðið í
ár sé betra, en þeir meta einungis
þá leikmenn sem spiluðu úrslita-
leikina. Tveir leikmenn, einn í
hvoru liði, fá fullt hús að mati
blaðsins en það eru Peter
Schmeichel, markvörður 1999-
liðsins, og portúgalski væng-
maðurinn Cristiano Ronaldo.
Það vekur líka athygli að á
meðan enginn leikmaður 2008-
liðsins fær lægra en 7 í einkunn
gefur blaðið tveimur leikmönnum
6 í einkunn í 1999-liðinu en það eru
norski miðvörðurinn Ronny John-
sen og sænski vængmaðurinn
Jesper Blomqvist. - óój
Times-blaðið fjallar um frammistöðu Evrópumeistaraliða Manchester United:
Liðið árið 2008 betra en 1999-liðið
SAMA ÞJÁLFARI EN BREYTT LIÐ Sir Alex
Ferguson með bikarinn. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Íslenska landsliðið tap-
aði fyrir því spænska, 34-31, í Cor-
doba á Spáni í gær. Staðan í hálf-
leik var 17-17. Þetta var fyrri
æfingaleikur liðanna en liðin mæt-
ast aftur í dag.
„Ég er frekar svekktur að hafa
ekki unnið leikinn. Við vorum yfir,
29-26, þegar frekar lítið var eftir
en gerðum mikið af mistökum
undir lokin og köstuðum þessu frá
okkur,“ sagði Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari en
hann var samt í heildina mjög sátt-
ur við leik liðsins.
„Í heildina er ég bara mjög
sáttur enda margt jákvætt í okkar
leik og í raun leikurinn betri en ég
bjóst við. Sóknin var virkilega góð
allan tímann og við náðum að
skora úr 14 hraðaupphlaupum. Ég
gerði ákveðnar breytingar á sókn-
arleiknum til þess að fá meiri
hraða í hann og fannst það ganga
vel sem og hraðaupphlaupin.“
Guðmundur hefur verið að æfa
3-2-1 vörn með liðinu og lék hana í
fyrsta skipti í gær með góðum
árangri. „Vörnin var glettilega
góð. Leikurinn var hraður og því
var mikið skorað en þessi vörn
virkaði vel og færði okkur góð
hraðaupphlaup,“ sagði Guðmundur
en menn hafa nokkrar áhyggjur af
vinstri vængnum, sem lék samt
ágætlega í gær.
„Arnór var mjög sterkur í fyrri
hálfleiknum. Hannes kom síðan
inn og var allt í lagi. Það þarf samt
að slípa þetta betur til. Stefnan
var að leyfa Ingimundi að reyna
sig líka þarna en við vildum vinna
leikinn og því spilaði hann ekki að
þessu sinni,“ sagði Guðmundur
sem var ekki nógu sáttur við mark-
vörsluna enda aðeins 11 boltar
varðir í leiknum.
„Við munum halda áfram að
þróa okkar leik á morgun [í dag].
Ég mun spila meira af 3-2-1 vörn
en við förum líka í 6-0 vörn. Svo
taka Spánverjarnir vonandi Óla
aftur úr umferð en okkur gekk illa
að leysa það núna og fáum því von-
andi að æfa það betur í seinni
leiknum.
- hbg
Íslendingar töpuðu með þrem mörkum, 34-31, fyrir Spánverjum ytra í gær:
Margt jákvætt í leik liðsins
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON Var svekktur að hafa ekki unnið leikinn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPÁNN-ÍSLAND 34-31
Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 7,
Guðjón Valur Sigurðsson 6, Snorri
Steinn Guðjónsson 5, Arnór Atlason
3, Vignir Svavarsson 2, Alexander
Petersson 1, Hannes Jón Jónsson 1,
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1.
Varin skot: Hreiðar Guðmundsson 6,
Birkir Ívar Guðmundsson 5.
NBA Hið unga og skemmtilega lið
Los Angeles Lakers stefnir
hraðbyri í úrslitarimmu NBA-
deildarinnar en Lakers hefur náð
2-0 forystu í einvíginu gegn
meisturum San Antonio Spurs í
úrslitum Vesturdeildarinnar.
Lakers vann annan leik liðanna
með 30 stiga mun, 101-71, og
leiknum lauk það snemma að
varamenn liðanna spiluðu nánast
allan síðasta leikhlutann.
Lið Lakers var mjög jafnt og
Kobe Bryant var þar stigahæstur
með 22 stig. Lamar Odom kom
næstur með 20 stig og 12 fráköst.
Lið Spurs var í molum í þessum
leik og það segir sína sögu að
Tony Parker hafi verið stigahæst-
ur með 13 stig og Tim Duncan
næstur með 12. Enginn annar
leikmanna liðsins náði að brjóta
10 stiga múrinn. - hbg
Lakers á leið í úrslit?
Lakers pakkaði
Spurs saman
KOBE BRYANT Fer á kostum sem og
samherjar hans. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Um næstu helgi spilar
íslenska landsliðið gegn Rúmen-
um í umspili um laust sæti á EM.
Liðið er í óða önn að undirbúa sig
fyrir þá rimmu og mætti einu
besta liði Dana, Kolding, í
Höllinni í gær og tapaði með
þrem mörkum, 34-31.
Liðin mætast öðru sinni í dag
og er þá spilað í Laugardalshöll-
inni á hádegi og aðgangur er
ókeypis.
Mörk Íslands: Rakel Dögg
Bragadóttir 9, Hildigunnur
Einarsdóttir 5, Sólveig Lára
Kjærnested 4, Rut Jónsdóttir 3,
Dagný Skúladóttir 3, Sunna María
Einarsdóttir 3, Stella Sigurðar-
dóttir 2, Hrafnhildur Skúladóttir
1, Hanna G. Stefánsdóttir 1. - hbg
Íslenska kvennalandsliðið:
Tapaði fyrir
Kolding
RUT JÓNSDÓTTIR Átti fínan leik í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LIÐIÐ 1999
Peter Schmeichel, markmaður 10
Gary Neville, bakvörður 8
Ronny Johnsen, miðvörður 6
Jaap Stam, miðvörður 8
Denis Irwin, bakvörður 8
David Beckham, vængmaður 8
Nicky Butt, miðjumaður 7
Ryan Giggs, miðjumaður 8
Jesper Blomqvist, vængmaður 6
Dwight Yorke, framherji 7
Andy Cole, framherji 7
- Varamenn -
Teddy Sheringham, framherji 7
Ole Gunnar Solskjær, framherji 8
LIÐIÐ 2008
Edwin van der Sar, markmaður 8
Wes Brown, bakvörður 7
Rio Ferdinand, miðvörður 8
Nemanja Vidic, miðvörður 8
Patrice Evra, bakvörður 8
Owen Hargreaves, miðjumaður 7
Paul Scholes, miðjumaður 8
Michael Carrick, miðjumaður 7
Cristiano Ronaldo, vængmaður 10
Wayne Rooney, framherji 8
Carlos Tevez, framherji 7
- Varamenn -
Ryan Giggs, miðjumaður 7
Nani, vængmaður 7
Anderson, miðjumaður 7
EINKUNNAGJÖF TIMES: