Fréttablaðið - 25.05.2008, Page 78
30 25. maí 2008 SUNNUDAGUR
Hvað er að frétta? Ég er að halda fyrir-
lestra um veislur og borðsiði út um hvipp-
inn og hvappinn. Einnig er ég að undirbúa
tónleika með Ragga Bjarna á Norðurlandi
í lok mánaðarins, aðra tónleikadagskrá
með Braga syni mínum á Austurlandi og
Carmina Burana í Reykjavík, Mývatni og
New York.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Söngvari.
Fjölskylduhagir: Í sambúð með honum
Alberti mínum. Strákurinn minn, Bragi, er
nýfluttur að heiman með Júlíu sinni og
æðislegu afastelpunni minni, Marsibil,
sem bræðir afa sinn með óviðjafnanlega
brosinu sínu.
Hvaðan ertu? Ættaður úr Hvítársíðu
og Hörgárdal, en fæddur og uppalinn í
Hlíðunum.
Ertu hjátrúarfullur? Ekki viss, en að
minnsta kosti á ég erfitt með að ganga
tröppur og hitta ekki á slétta tölu.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Nætur-
vaktin og næsta vetur örugglega Dagvaktin.
Uppáhaldsmatur: Í augnablikinu er ég
vitlaus í grænmeti í ofni (verða að vera
sætar kartöflur með), með hvítlauksolíu og
Complete Seasoning frá Badia.
Fallegasti staðurinn: Hrútárfoss í Daladal
og Hvítársíða.
iPod eða geislaspilari: Ég á rykfallinn
geislaspilara inni í skáp, en iPodinn er
algjör lífsnauðsyn.
Hvað er skemmtilegast? Að hlusta á góða
músík sem fær hjartað til að stoppa eða
hoppa af gleði.
Hvað er leiðinlegast? Að lenda á geð-
vondu fólki í umferðinni!
Helsti veikleiki: Dökkt súkkulaði.
Helsti kostur: Heiðarleiki.
Helsta afrek: Að ganga um í eyjunni
Skrúð, eins lofthræddur og ég er.
Mestu vonbrigðin: Er rosalega
fljótur að gleyma þeim öllum.
Hver er draumurinn? Að
verða hraust og skemmtilegt
gamalmenni.
Hver er fyndnastur/
fyndnust? Catherine
Tate.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Óstundvísi
og óhreinlyndi.
Hvað er mikilvægast?
Að vera sáttur við sjálfan
sig og aðra og njóta dagsins í
dag.
HIN HLIÐIN BERGÞÓR PÁLSSON SÖNGVARI
Gekk um Skrúð þrátt fyrir lofthræðslu
22.10.
1957
„Þetta er ekki formlegt Íslands-
mót með undankeppnum í öllum
landsfjórðungum heldur meira
svona óformleg keppni í sagna-
mennsku,“ segir Gísli Einarsson,
sjónvarpsmaður með meiru. Í dag
verður fyrsta undankeppnin í
sagnamennsku-móti Landnáms-
setursins í Borgarnesi. „Ég hef
farið í svo margar heimsóknir til
þeirra þarna og uppveðraðist ein-
hvern veginn af þessari miklu
endurreisn á sagnamennsku. Ég
gaukaði því að þeim þessari hug-
mynd sem þeim leist strax vel á,“
útskýrir sjónvarpsmaðurinn en
bætir jafnframt við að geðþótta-
ákvörðun hans ráði því hverjir fá
að taka þátt.
Fjórar undankeppnir verða
háðar og er hvert kvöld tileinkað
einhverri ákveðinni gerð sagna.
Fyrsta kvöldið verður undirlagt af
ýkjusögum en síðan koma í kjöl-
farið draugasögur, lífsreynslusög-
ur og gamansögur næstu þrjú
kvöld.
Sunnudaginn 22. júní verður
óformlegur meistari í sagna-
mennsku loks krýndur en áhorf-
endur í sal hafa hundrað prósent
vægi og geta með atkvæðaseðlum
sínum kosið sinn mann áfram.
Aðspurður hvort þarna vantaði
ekki inn í fimmta flokkinn, svo-
kallaðar gróusögur, sagði Gísli að
slík sagnamannska væri síður en
svo gleymd og grafin á Íslandi.
„Þær eru kannski sú sagna-
mennska sem hafa lifað besta líf-
inu.“
Og talandi um gróusögur. Sterk-
ur orðrómur hefur verið á kreiki á
Vesturlandi um að Gísli sitji við
skriftir. Sjónvarpsmaðurinn vildi
lítið tjá sig um hugsanlegt hug-
verk sitt en staðfesti að það væri
eitthvað í bígerð. „Ég gerði verk
fyrir fertugsafmælið mitt sem er
byggt á norskri fyrirmynd og hét
Mýramaðurinn en þar var farið
yfir sögu og þróun Mýramanns-
ins. Mig langar að færa þetta verk
aðeins nær mér en meira get ég
ekki sagt,“ útskýrir Gísli sem gat
ekki þverneitað fyrir það að þró-
unarsaga Gísla Einarssonar væri
jafnvel í bígerð. - fgg
Þróunarsaga Gísla Einarssonar í bígerð
„Ég er búin að vera að hanna og
búa til úr ullinni í hálfa öld,“ segir
Margrét Árnadóttir, eigandi og
hönnuður M-Design prjónalín-
unnar, sem hefur notið mikilla
vinsælda undanfarin ár. Hún
byrjaði ferilinn í versluninni
Sportveri þar sem hún var með
35 manns í vinnu og hannaði
íþrótta- og leikfimisföt á land-
ann, en eftir að Björn Guðmunds-
son keypti sig inn í fyrirtækið og
fór að selja herraföt fékk Mar-
grét saumavélarnar og fór að
framleiða undir merkinu Sheepa.
Hún tók sér svo nokkurra ára hlé
en áður en hún vissi af var hún
komin aftur á kaf í ullina og skírði
þá línuna M-Design.
„Mér dugar aldrei dagurinn,
það er svo mikið að gera,“ segir
Margrét en síðustu misseri hafa
svokallaðar ermaslár hennar
selst eins og heitar lummur. „Ég
hef alltaf verið að framleiða fyrir
ferðamannabransann en núna er
ég með flík sem stelpur og konur
landsins á öllum aldri vilja klæð-
ast. Það er búin að vera stanslaus
vertíð hjá mér síðan um áramót
og nú þegar túristarnir eru að
koma er ég nánast vörulaus, þetta
selst svo hratt. Sumar stelpur
eiga slána jafnvel í fjórum til
fimm litum,“ segir Margrét sem
slær hvergi slöku við þrátt fyrir
að hún muni fagna áttræðis-
afmæli sínu í haust.
En hvaðan koma hugmyndirnar?
„Ég hef alltaf verið teiknandi og
hanna vörurnar sjálf. Svo horfi
ég á Fashion TV upp á litina sem
eru í gangi hverju sinni en ég er
yfirleitt með einlitar flíkur og
ekki með útprjón. Það eru ekki
nema vissar flíkur sem koma vel
út í ullinni, en núna er að fæðast
alveg geggjuð lína sem inniheld-
ur, vesti, peysu og pils,“ segir
Margrét sem tekur þó fram að
hún sé ekki ein síns liðs í fram-
leiðslunni.
„Ég er með algjöran listamann
mér til aðstoðar sem heitir Birgir
Einarsson og hann er án efa einn
mesti vélprjónasnillingur
landsins. Vörurnar eru svo prjón-
aðar á Hvolsvelli og á saumastof-
unni Þing, en framleiddar hjá
Glófa,“ segir Margrét og ástríða
hennar fyrir starfinu fer ekkert á
milli mála. „Mér finnst ullin
yndis leg og þetta er rosalega gef-
andi. Vinnan kemur á eftir fjöl-
skyldunni í ánægju og það er
mikið lífslán að hafa ánægju af
vinnunni sinni. Það hefur verið
sóst eftir að kaupa fyrirtækið en
ég er alltaf jafn fegin þegar það
er hætt við,“ segir Margrét að
lokum.
alma@frettabladid.is
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR: HEFUR HANNAÐ TÍSKUFÖT ÚR ULL Í HÁLFA ÖLD
Áttræð tískudrottning
MARGRÉT Í ERMASLÁNNI VINSÆLU Margrét er móðir Stuðmannsins Valgeirs Guð-
jónssonar og hannar allar vörur M-Design sjálf þrátt fyrir að vera 79 ára gömul.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÖNNUM KAFINN Gísli Einarsson er
önnum kafinn maður en hann verður
gestgjafi á sagnameistaramótsröð
Landnámssetursins næstu fimm sunnu-
dagskvöld.
SIGURJÓN ÞÓR FRIÐÞJÓFSSON Aðdáandi Bob Dylan númer eitt á Íslandi bíður
spenntur eftir komu goðsins til landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég er ekkert að hlusta á Dylan þessa dagana.
Það er verið að bjóða mér upptökur af tónleik-
um sem eru nýbúnir og ég gæti farið á netið
og hlustað á þá en ég ætla ekki að gera það,“
segir Sigurjón Þór Friðþjófsson, sem sér Bob
Dylan í 39. sinn í nýju Laugardalshöllinni á
mánudag. „Ég ætla að vera ferskur þegar
kóngurinn kemur.“
Dylan hóf tónleikaferðalag sitt fyrir
skömmu og hefur Sigurjón fylgst náið
með framvindu mála. „Ég hef verið að
fylgjast með lögunum sem hann hefur
verið að spila. Rúmur helmingurinn er af
síðustu þremur plötum, hitt er eldra efni,“
segir hann. „Ég er ánægður að sjá hvað
hann breytir til. Maður er aldrei 100%
viss hvaða lög hann tekur en ég hef góða
tilfinningu fyrir þessu og hlakka mikið
til.“
Síðustu tónleikar Dylans áður en hann
kemur hingað til lands voru í Nýfundna-
landi í gærkvöldi. Eftir tónleikana á mánu-
dag er förinni svo heitið til Danmerkur og
síðan til Noregs og Finnlands.
Sigurjón átti von á erlendum vinum sínum til
Íslands til að sjá tónleikana en þeir hættu við og
ákváðu að ná fleiri tónleikum í röð með goðinu á
hinum Norðurlöndunum. Sumir vina hans hafa
séð Dylan í á þriðja hundrað skipti og er Sigurjón
því ekki einu sinni hálfdrættingur á við þá með
sín „aumu“ 38 skipti. - fb
Algjört Dylan-bind-
indi fyrir tónleika
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég er bara mjög stolt af
honum. Þarna hefur metnaður
hans legið, að ná langt í fót-
bolta, og ég er viss um að hann
á eftir að verða enn þá betri.
Hann var alltaf í frjálsum líka
hjá Fjölni en svo þurfti hann að
velja á milli. Ég er sátt við að
hann hafi valið fótboltann og
mæti á alla leiki.“
Ingveldur B. Jóhannesdóttir er móðir
Þórðar Ingasonar, markmanns Fjölnis og
leikmanns 3. umferðarinnar í Lands-
bankadeildinni.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Þrjú kjörtímabil.
2 Rúnar Rúnarsson.
3 Wales.