Fréttablaðið - 30.05.2008, Qupperneq 42
30. MAÍ 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● útivera
Útivistarskólinn á Gufuskálum
á Snæfellsnesi er fyrir ungt fólk
á aldrinum fjórtán til átján ára.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
rekur útivistarskólann og er hann
opinn öllum á aldrinum fjórtán til
átján ára. „Námið byggist á því að
krakkarnir læri um almenna ferða-
mennsku. Þeim er kennd rötun,
kennt á kort og áttavita, það er farið
í fyrstu hjálp, þau læra að klifra og
síga, þau fara í rústabjörgun og við
förum á slöngubáta, gönguferðir í
nágrenninu og fleira,“ segir Ragna
Sif Árnadóttir, leiðbeinandi í Úti-
vistarskólanum.
„Þetta gengur mikið út á að læra
að vinna saman í hópi og í þessu felst
mikil útivist og hreyfing,“ segir
Ragna. Námskeiðin eru frá fimmtu-
degi til þriðjudags. „Grunnnám-
skeiðin eru á Gufuskálum og þar er
gist inni við góðar aðstæður. Síðan
er framhaldsnámskeið sem hægt er
að fara á að grunnnámskeiði loknu
og þá er farið í vikuútilegu. Í fyrra
gengum við Laugaveginn með allt
á bakinu og gistum í tjöldum. Það
gekk rosalega vel og nú ætlum við
að ganga Fimmvörðuháls og vera
í Þórsmörk restina af vikunni,“ út-
skýrir Ragna áhugasöm.
Námskeiðið kostar 32.000 krón-
ur fyrir almenning en félagsmenn
í Slysavarnafélaginu Landsbjörg fá
afslátt. Allt er innifalið í því verði
nema ferðir til og frá Gufuskálum.
„Við sköffum allan mat og búnað,
gistingu og skemmtun,“ segir
Ragna og bætir við að gríðarlega
mikil aðsókn hafi verið í skólann.
„Það er allt orðið stútfullt hjá okkur
í sumar og komast í raun færri að
en vilja.“
Námskeiðin eru góð leið til að
kynnast skemmtilegu fólki og njóta
náttúrunnar. Markmið Útivistar-
skólans er þó fyrst og fremst að
kenna ungu fólki að ferðast á ör-
uggan hátt og bregðast við slys-
um ef þau gerast. „Þetta er hagnýt
kynning á fjallaferðum og fyrstu
hjálp en til að fá gráðu þá þarf að
halda áfram í björgunarsveitar-
starfi,“ segir Ragna en hún er ein af
fimm leiðbeinendum, sem eru allir
vanir björgunarsveitarstarfi.
Allar nánari upplýsingar er hægt
að nálgast í síma 570 5900 eða á
heimasíðu Landsbjargar, www.
landsbjorg.is. - hs
Öruggir unglingar á ferð
Í Útivistarskólanum eru unglingum kennd rétt viðbrögð við slysum og leiðir til
björgunar.
Það er oft glatt á hjalla í Útivistarskólanum og er þetta tilvalin leið fyrir ungt fólk að kynnast öðru hressu fólki. MYNDIR/LANDSBJÖRG
Oft er glatt á hjalla enda gaman að kynnast nýju fólki.
Ragna Sif er einn af leiðbeinendum Útivistarskólans og er hún alvön björgunarstörf-
um og fjallaferðum. Fjallið hér í bakgrunni er Hvannadalshnjúkur en myndin var
tekin á leið á Hrútafjallstinda.
Útivera er holl og góð og eitthvað sem maður gerir
ekki nóg af í dagsins amstri. Góður útivistarbúnað-
ur gerir útiveruna þægilega. Ekki er lengur hægt að finna af-
sakanir út af veðri því til er útivistarfatnaður og fylgihlutir fyrir
allar aðstæður. Hvort sem úti er rigning, rok, kuldi eða bongó-
blíða þá er hægt að fá búnað sem hentar fyr-
ir allar aðstæður.
Til í slaginn
Töff OR Out-
door Research
derhúfa, flott í
útiveruna. Fæst
í Everest og
kostar 3095
krónur.
The North Face Terrainius göngu-
skór frá Útilífi. Þeir eru léttir en sterkir
og henta vel fyrir styttri gönguferðir. Skórnir
eru vatnsheldir með Goretex öndurnarfilmu.
Þeir kosta 14.990 krónur.
The North Face venture jakki. Hann er
vind- og vatnsheldur með Hyvent
öndurnarfilmu. Hann kostar
19990 krónur.
Árlegir bryggjudagar í Kópavogi
fara fram um helgina. Nokkrir
áhugamenn um BMX-hjól ætla
sér að vera með stórskemmti-
lega uppákomu á laugardaginn
klukkan 15 sem nefnist Bryggju-
busl.
Stökkpallar verða settir upp
á bryggjunni og ofurhugar ætla
að stökkva í sjóinn á hjólun-
um og gera ýmsar kúnstir í
leiðinni. Stökkpallarnir eru
tveir og annar er fyrir
keppendur sem vilja
ná háu stökkvum og
hinn pallurinn er fyrir
keppendur sem vilja
ná sem lengst.
Til gamans má
segja frá því að komið
verður fyrir skot-
marki í sjónum
sem kepp-
endur reyna
að hitta á í
langstökk-
um sínum. Gefin verða stig fyrir
keppendur sem mæta í skemmti-
legum búningum. Búningaval er
algjörlega frjálst og svo mega
keppendur stökkva á öllu því
sem er á hjólum svo fremi sem
pallarnir þoli farartækið.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin og þar eru áhorfend-
ur í dómarasætinu.
Á sama tíma og keppnin fer
fram í Kópavogi mun samskon-
ar keppni fara fram í Vest-
mannaeyjum.
Áhugasam-
ir um þessa
stökkkeppni eru
hvattir til að mæta á
Bakkabraut í Kópa-
vogi klukkan 15
en þeir sem
vilja taka þátt
verða að hafa
náð fimmtán
ára aldri.
- mmr
Stokkið í sjóinn
Leki Enzian göngustafir
eru ómissandi í vel-
heppnaða gönguferð.
Þessir fást í Útilífi
og kosta 5.990
krónur.
Þessi Mammut peysa er einstaklega
þunn og hlý og úr efni sem andar. Hún
fæst í Everest og kostar 16955 krónur.
Raichle Softshell gönguskór henta
vel innanbæjar sem utan.
Sólinn er mjúkur og skórinn
veitir fætinum góðan
stuðning. Þeir fást í Everest
og kosta 19795 krónur.
Didriksons regn-
buxur eru vatns-og
vindheldar og gerðar
úr teygjanlegu efni sem
gerir þær enn þægilegri.
Regnjakki er
seldur með.
Settið fást í
Ellingsen og
kosta 9580
krónur.