Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 26
26 31. maí 2008 LAUGARDAGUR
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
„Ég skorast ekki undan því að taka þátt í umræðum
um þessi mál, síður en svo. Ég hef gert það í marga
áratugi, kynnt mér gögnin betur, held ég, en flestir
þingmenn hér inni og veit nákvæmlega um hvað ég
er að tala þegar ég er að fjalla um þessi mál.“
Björn Bjarnason um hleranir og kalda stríðið.
„Þetta lið er með nærsýni eða ilsig og verður að fá
frí.“
Ögmundur Jónasson um ríkisstjórnina.
Nákvæmninni var fyrir að fara í máli
Guðbjarts Hannessonar, formanns
félagsmálanefndar, þegar hann kynnti
þinginu álit nefndarinnar á frumvarpi
um atvinnuréttindi
útlendinga og
frjálsan atvinnu- og
búseturétt launafólks
innan Evrópska
efnahagssvæðisins.
„Samkvæmt öðrum
málslið, annarrar
málsgreinar, c-liðar,
tíundu greinar
frumvarpsins,“ sagði
Guðbjartur þegar hann sagði frá því að
misræmis gætti í frumvarpinu. Af
þessari liða- og greinaupptalningu má
glögglega sjá að lög eru stundum
leiðinleg lesning.
Nákvæmur
Ögmundur Jónasson, VG, er svo
handviss um að formenn stjórnmála-
flokkanna reyni í sumar að halda
sérréttindum sínum í lífeyrismálum
að hann er ákveðinn
í að leggja fram
breytingartillögu
við væntanlegt
frumvarp formann-
anna.
Ögmundur sagðist
á fimmtudagskvöld
vita að verið væri
að blekkja þjóðina
með því samstarfi
flokksformannanna sem forsætisráð-
herra hafði boðað nokkrum andartök-
um áður og því gæti hann boðað
breytingartillögur við frumvarpið
sem enn hefur ekki verið samið.
Sannfærður
VIKA Í PÓLITÍK
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
Stjórnmálamenn og við
Það er vinsæll samkvæmisleikur að tala illa um
stjórnmálamenn. Reglurnar eru einfaldar og
þátttökuskilyrðin líka. Það þarf bara að kunna
slatta af fúkyrðum og sá sem notar ljótustu orðin
vinnur. Að baki býr það viðkvæði að stjórnmála-
mennirnir geri ekkert „fyrir okkur“. Þeir hugsi
bara um bankana og útgerðarmennina – og svo
auðvitað sjálfa sig.
Öfugt við aðrar stéttir eru stjórnmálamenn
kosnir af þjóðinni og starfa í umboði hennar. Það
vill gleymast og sú gleymska getur náð til beggja;
kjósendanna sem gera sér illmælgina að leik og
stjórnmálamannanna sem láta stundum eins og
okkur komi störf þeirra ekki við.
Stjórnmálamenn eru eins og annað fólk. Hvorki verri né betri. Og þeir
breytast ekki við að vera kallaðir bjánar. Uppnefning er lélegt meðal.
Kjósendur geta ekki krafist annars af stjórnmálamönnum en að þeir séu
sæmilega trúir sannfæringu sinni, berjist fyrir málunum sem þeir töluðu
um í kosningabaráttunni og vandi sig í vinnunni.
Höfum líka hugfast að hver sem er getur reynt að komast í félagsskap-
inn. Það þarf bara að fara í framboð.
Marghamur
Í Gunnari Svavarssyni, Samfylkingunni,
búa margir menn. Við atkvæðagreiðslu í
þinginu á miðvikudag sagðist hann
styðja mál, ekki bara sem þingmaður,
heldur líka sem
sveitarstjórnarmaður,
stjórnarmaður í
orkufyrirtæki,
verkfræðingur, íbúi
og orkunotandi.
Verið var að vísa
frumvarpi um
breytingar á lögum á
orku- og auðlindasviði
til þriðju umræðu.
Þrátt fyrir að Gunnar hafi greitt
atkvæði sem sex menn réði hann aðeins
yfir einu atkvæði.
Málið var samþykkt og varð að lögum
á fimmtudag.
FERÐAST ÞÚ MEÐ
GÖMUL DEKK
Í EFTIRDRAGI?
Nú eru ferðadagar hjá N1. Þú færð ný dekk
fyrir hjólhýsið, fellihýsið eða tjaldvagninn
hjá Hjólbarðaþjónustu N1.
Viðskiptakortshafar fá 25% afslátt af dekkja-
skiptingunni á hjólhýsum, fellihýsum og tjaldvögnum
þegar þeir kaupa umgang af nýjum dekkjum.
25%
afsláttur af
dekkjaskiptingu!
WWW.N1.IS
Fellsmúla 24, Réttarhálsi 2, Ægisíðu 102, Langatanga 1a,
Reykjavíkurvegi 56, Dalbraut 14 Akranesi, Vesturbraut 552 Kefl avík.
N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA, SÍMI 440 1000.
Þingið fór heim í fyrrinótt
eftir að hafa samþykkt 111
frumvörp. Ráðherrar lögðu
fram 107 en þingmenn
fjögur.
Uppskera ríkisstjórnarinnar á
nýloknu þingi verður að teljast
ágæt. Af 135 frumvörpum hennar
voru 107 samþykkt. Af þeim 28
sem út af standa eru flest í nefnd-
um en nokkur komust aldrei til
umræðu.
Þingmenn lögðu fram 76 frum-
vörp og hlutu fjögur samþykki.
Þau lúta að veitingu ríkisborgara-
réttar, breytingum á þingsköpum
og innleiðingu aðstoðarmanna
fyrir landsbyggðarþingmenn.
58 þingmannafrumvörp voru
enn í nefndum við þingfrestun en
fjórtán biðu fyrstu umræðu.
Af 78 þingsályktunartillögum
voru átta samþykktar. 45 eru í
nefndum en 24 komust aldrei til
umræðu.
Á þessu þingi tóku 27 varaþing-
menn sæti, flestir fyrir Samfylk-
inguna en fæstir fyrir Frjálslynda
flokkinn.
111 laga þingi lokið
NUDD Það getur verið gott og nauðsynlegt að nudda á sér augun annað slagið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA