Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 52
6
Starf ABC barnahjálpar
snýst fyrst og fremst um
menntun barna og að sjá
til þess að grunnþörfum
barna sé mætt.
Skólaganga barna
Grunnurinn í starfi ABC er
menntun barna eins og
nafnið ABC barnahjálp ber
vott um. Yfi rleitt stunda
styrktarbörnin nám í
skólum sem ABC hefur haft
forgöngu um að setja á fót
en í stöku tilfellum í öðrum
tiltækum skólum.
Innifalið í stuðningi við
skólagöngu barna er greiðsla
skólagjalda eða beinn
kostnaður við kennsluna,
skólabækur og ritföng,
skólamáltíðir, læknishjálp
og skólabúningar. Í sumum
tilfellum þarf einnig að sjá
börnunum fyrir aðstoð við
að komast í skólann.
Leitast er við að veita góða
menntun með því að hafa
hæfi legan fj ölda nemenda í
bekk og þjálfa kennara eins
og kostur er.
Heimavistir og barnaheimili
fyrir heimilislaus börn
Áhersla er lögð á að mæta
þörfum munaðarlausra og
heimilislausra barna með
barnaheimilum og heima-
vist. Götubörnum er boðið
heimili og þeim hjálpað til
að hefj a eðlilegt líf. Einnig
er leitast við að sjá börnum
sem koma langt að til að
sækja skóla og börnum sem
búa við óviðunandi heimilis-
aðstæður aðstöðu til að búa
á heimavistum ABC á meðan
þau stunda nám í ABC skól-
unum.
Hjálpin sem veitt er á heima-
vistum og barnaheimilum
ABC er húsnæði, umönnun,
fæði, klæði, læknishjálp og
ýmis konar uppbyggileg
iðja. Má nefna sem dæmi
skátastarf, fótbolti og aðrar
íþróttir og ýmis konar
fræðsla, söngur og leikir.
Einnig er leitast við að
aðstoða aðstandendur
þessara barna ef þörf krefur
og mögulegt er.
ABC starfar í Pakistan,
Indlandi, Filippseyjum,
Úganda, Kenýa, Líberíu
og Senegal, en verið er að
undirbúa starf ABC í Burkina
Faso og nokkrum öðrum
Afríkuríkjum.
Alls styrkti ABC í kringum
10.000 börn í ársbyrjun
2008, en markið er sett á að
tvöfalda þann fj ölda á 20 ára
afmælisárinu og vera með
20.000 börn í árslok 2008.
Af þeim 11.000 börnum sem
ganga í skóla fyrir tilstilli ABC
í dag eru yfi r 4000 börn í
heimavistum eða barna-
heimilum ABC.
n Pakistan
ABC var stofnað í Pakistan
árið 2005. Búið er að setja á
fót 12 ABC skóla í Pakistan,
þar af 4 skóla í húsnæði sem
ABC hefur byggt.
ABC skólinn í Farooqabad – verið er
að byggja tvær kennslustofur ofan á
hægri vænginn.
Við vígslu ABC skólans í Chack 96 R/B í
desember 2006
ABC skólinn í Peshawar vígður í
desember 2006
ABC skólinn í Jaranwala – vígður um
páskana 2007
Skólabíll ABC í Pakistan
Við vígslu skólans í Farooqabad í
desember 2006
Verið er að byggja nýjan ABC
skóla í Gujranwala, en hinir
ABC skólarnir eru reknir í
leiguhúsnæði. Samtals eru
um 2813 nemendur í ABC
skólunum í Pakistan, þar af
eru 510 börn í heimavistum ABC.
Nú er að hefj ast uppbygging
á landskika sem utanríkis-
ráðuneyti Íslands lagði fé
til að kaupa á árinu 2007.
Þar stendur til að byggja
grunnskóla og framhalds-
skóla auk heimavista.
n Indland
ABC hóf að styrkja börn á
Indlandi árið 1991 í sam-
starfi við Mission of Mercy.
Voru byggð barnaheimili á
Indlandi og í Kambódíu í því
samstarfi .
Heimili litlu ljósanna í
Andhra Pradesh hefur verið
megin viðfangsefni ABC
barnahjálpar á Indlandi frá
árinu 1994. Á heimilinu búa
nú um 2500 börn og
unglingar og hafa verið
byggð fj ölmörg íbúðarhús
og skólabyggingar fyrir
börnin á heimilinu auk
annarrar nauðsynlegrar
aðstöðu. Skóli er frá 1. til 10.
bekk, ýmis konar verknám,
iðnskóli, menntaskóli og
háskóli.
Nýjasta heimavistin fyrir stúlkur í
byggingu á Heimili litlu ljósanna
– mars 2008
Svefnvist á Heimili litlu ljósanna
Kornabarnahúsið við El Shaddai
barnaheimilið í Tamil Nadu
El Shaddai barnaheimilið
í Tamil Nadu hefur verið
byggt upp og rekið af ABC
barnahjálp frá árinu 1995.
Þar búa um 180 börn.
Athvarf fyrir 50 götubörn í
Chennai var sett á fót í ágúst
2007.
Kvöldskólar eða skóla-
miðstöðvar hafa verið settar
á fót í 70 Dalítaþorpum í
Andhra Pradesh þar sem
börn fá ýmis konar aðhlynn-
ingu, síðdegishressingu og
aðstoð kennara við heima-
nám.
Miklar byggingafram-
kvæmdir standa fyrir dyrum
á Heimili litlu ljósanna og
El Shaddai barnaheimilinu
þegar fj ármagn leyfi r.
Brýnustu verkefnin er ný
heimavist fyrir yngri stúlkur,
nýr barnaskóli og unglinga-
skóli fyrir Heimili litlu ljós-
anna og verkmenntaskóli
fyrir El Shaddai barna-
heimilið.
n Filippseyjar
ABC hefur styrkt börn til
náms á Filippseyjum í sam-
starfi við Norrænu barna-
hjálpina frá árinu 1990.
Í dag styrkir ABC á sjöunda
hundrað börn gegnum það
starf, en hefur nú einnig
stofnað ABC á Filippseyjum
og munu nokkrir ABC
skólar taka til starfa á Luzon
og Mindanao eyjum á
Filippseyjum þegar nýtt
skólaár hefst í júní, þar af er
einn með sérdeild fyrir fötluð
börn.
Hjartans þakkir fyrir að gefa þúsundum barna nýtt tækifæri
n ABC barnahjálp fagnar nú tímamótum og vill þakka landsmönnum ómetanlegan stuðning við þúsundir
bágstaddra síðast liðin 20 ár. Fjöldi ABC heimila og skóla hefur verið byggður og mikill fj öldi barna hefur
útskrifast frá þeim með ýmsar gráður og von um betra líf á þessum 20 árum. Í dag eru um 11 þúsund börn í
skólum á vegum ABC barnahjálpar, þar af dvelja um fj ögur þúsund börn á heimilum og heimavistum ABC.
Hjartans þakkir kæru stuðningsaðilar fyrir að gefa öllum þessum börnum bjartari framtíð.
Stefnan er að gefa sem fl estum fátækum börnum kost á að ganga í skóla og götubörnunum heimili .
ABC barnahjálp - 20 ára
Upphaf ABC barnahjálpar
Fyrir rúmum 20 árum sátu átta
einstaklingar og lögðu á ráðin um
stofnun ABC hjálparstarfs. Enginn
þeirra var þekktur í þjóðfélaginu
en það var hugsjón, vilji og trú sem
einkenndi þennan fámenna hóp.
Frá því að þessir fundir voru haldnir
í heimahúsi hefur margt gerst.
ABC barnahjálp starfar nú í mörgum
löndum og sér fyrir æ fl eiri börnum.
Hugsjónin er stór og starfi ð vex
hröðum skrefum.
Heimavist yngri drengjanna á Heimili litlu ljósanna á Indlandi
Takk Ísland!
Þessi opna er afmælisgjöf
Fréttablaðsins til ABC