Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 104
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Guðmundar
Steingrímssonar
Í dag er laugardagurinn 31. maí,
153. dagur ársins.
Þegar skjálftinn reið yfir á fimmtudaginn lá ég á nuddbekk.
Nuddarinn hafði rétt þá nýverið lagt
til atlögu við ógurlegan stirðleika í
vöðvum á milli herðablaðanna, með
slíkum tilheyrandi sársauka að mér
fannst það hreint og beint eðlilegt
að allt skyldi fara af stað inni í her-
berginu, húsið skjálfa og gólfið
ganga í bylgjum.
ÞAÐ er greinilega eitthvað gerast
í húsinu,“ sagði nuddarinn í lágum
hljóðum og hélt svo áfram við iðju
sína. Klukkutíma síðar heyrði ég
útundan mér í fréttum að það hefði
orðið skjálfti. „Það duttu víst bækur
úr hillum niðri í Alþingi,“ heyrði ég
að kona sagði við aðra konu í bóka-
búðinni.
BÆKUR duttu úr hillum. Vegir
fóru í sundur. Hús urðu skökk.
Þetta var auðvitað rosaskjálfti. Og
það var gott að enginn slasaðist
alvarlega. Sums staðar munaði
mjóu. En það er þetta með bækurn-
ar. Daginn eftir hitti ég félaga
minn. Hann hélt því blákalt fram að
ákveðnir Sunnlendingar, sem hann
vissi fyrir víst að hefðu haft allt á
rúi og stúi heima hjá sér um langt
árabil, hefðu núna gripið tækifærið
og kennt skjálftanum um draslið.
SKJÁLFTI er kaos. Það sem er svo
furðulegt við skjálfta er hversu
fljótt hann ríður yfir. Bara nokkrar
sekúndur og svo búið. Það er eins
og náttúran sé að bylta sér. Í örskots-
stund breytumst við öll í flugur á
kýrsrassi, með GSM-síma.
Á samtengdum rásum var síðan
greint frá skjálftanum og afleiðing-
um hans langt fram eftir kvöldi.
„Slasaðist einhver?“ spurðu frétta-
menn. „Nei,“ svöruðu viðmælendur.
„En hér færðist til píanó.“ „Hér
duttu rauðvínsflöskur úr hillum.“
„Sprungur komu í veggina.“ Eftir að
hafa hlýtt á vel útilátinn skammt af
skjálftatíðindum verð ég að viður-
kenna að mér fundust fréttirnar
hugsanlega vera orðnar aðeins of
teygðar. Búum við ekki á jarð-
skjálfta- og eldfjallaeyju? Svo magn-
aðar voru fréttirnar orðnar að ég
heyrði af útlendingum sem íhuguðu
að hætta við för sína til Íslands.
Í skjálfta opinberast samband
manns og jarðar. Ég taldi í örskots-
stund skjálftann vera í rökréttu
samhengi við sársauka minn á
bekknum. Eina uppáhaldsskjálfta-
sögu sagði mér einu sinni gamall
drykkjumaður, vel þekktur í Reykja-
vík. Þann 17.júní 2000 var hann drif-
inn upp á spítala í afar slæmu ásig-
komulagi og keyrður niður í rúm og
gert að hætta að drekka eftir margra
áratuga neyslu eða deyja ella. Þá
brast á með ógurlegum skjálfta.
Hann hefur verið edrú síðan.
Skjálftinn
3.25 13.25 23.28
2.36 13.10 23.48
995,-
1.690,-
5.990,-/settið
695
HUSÖN blómapottur,
galvaníserað, ryðfrítt stál
innanmál Ø44, H41 cm 3.490,-
BETA blómavagn
Ø30 cm 495,-
SKOGSBÄR blómapottar,
ýmsir litir, innanmál
Ø12, H10 cm 95,-/stk.
VINBÄR blómapottur,
innanmál Ø14, H13 cm
hvítt/blágrátt 95,-
BLÅBÄR blómapottur,
rauðbrúnt, innanmál
Ø9, H12 cm 65,-
MYNTA blómapottur rauðbrúnt,
innanmál Ø52, H17 cm 3.690,-
MYNTA blómapottur,
rauðbrúnt, innanmál
Ø52, H26 cm 4.690,-
VÅREN blómagrindur,
ryðfrítt stál, ýmsir litir
B18xH59 cm 195,-/stk.
HUSÖN blómapottur,
galvaníserað, ryðfrítt stál
innanmál Ø52, H60 cm 6.990,-
VÅREN klifurjurtagrindur,
ýmsir litir B36xH36 cm
1.290,-/9 í pk.
795,-
MARGARITA sumarblóm,
ýmsir litir
PETÚNÍA/TÓBAKSHORN
sumarblóm, ýmsir litir
595,-/stk.
595,-
LOBELÍA sumarblóm
595,-
DALÍA sumarblóm
ýmsir litir
BETA garðkanna,
galvaníserað, ryðfrítt stál
2,7 l. 495,-
MYNTA blómapottur
Ø32, H30 cm 595,-
MYNTA undirskál
Ø28 cm 295,-
PLATTA gólfklæðning, gegnheill
akasíuviður L45xB45, H2,4 cm 595,-
1.290,-/20 stk.
STJÚPUR sumarblóm
íslensk framleiðsla 1. fl. ýmsir litir
Opnunartími útimarkaðs:
Laugard. 31. maí og sunnud. 1. júní kl. 12-18
Opnunartími verslunar:
Virka daga kl. 10:00-20:00 Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 www.IKEA.is
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
8
Grilluð pylsa
& gos um helgina
170,-
IKEA PS VÅLLÖ garðkönnur,
ýmsir litir 1,2 l. 195,- /stk.