Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 96
56 31. maí 2008 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
UNDANKEPPNI ÓL
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Póllandi
henry@frettabladid.is
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Garðsláttuvélar
Þýskar
gæðasláttuvélar
fyrir þá sem
gera kröfur
um gæði
3,6m
verð frá kr 122.000
3,8m
verð frá kr 138.000
4,3m
verð frá kr 163.000
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Vélorf
Alvöru orf
á góðu verði
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma eru
komnir alla leið í lokaúrslitin um ítalska meistaratitil-
inn og fyrsti leikurinn er á heimavelli deildarmeistara
Montepaschi Siena á morgun.
„Maður finnur það að það er kominn spenningur í
alla og spennan að aukast enda liðið komið í úrslitin
eftir langan tíma,” segir Jón Arnór en Róm hefur
ekki átt lið í lokaúrslitunum undanfarin 25 ár.
„Við förum kannski inn í úrslitin sem litla liðið en
við verðum að trúa því að við getum unnið því
annars getum við bara gleymt þessu. Það var
fyrsti vídeófundurinn í gær og þjálfarinn stappaði
í okkur stálinu og sagði okkur að við yrðum að
trúa því að við gætum unnið þetta lið,” segir Jón
Arnór og Rómar-liðið hefur þegar farið í gegnum
tvö sterk lið. „Avellino og Cantu eru tveir erfiðustu
útivellirnir í ítölsku deildinni og við sýndum ágætis
karakter með því að klára þetta frekar auðveldlega.
Við höfum farið vaxandi í gegnum þessa úrslita-
keppni, erum með hörkulið og erum bara að sýna það að við eigum
mikla mörguleika.“
Jón Arnór hefur ekki skorað mikið í úrslitakeppninni eða bara 3,1
stig í leik. „Ég á fullt inni. Ég hef verið að fá opin skot en hef ekki
verið að hitta nægilega vel. Kannski hef ég verið að stressa sjálfan
mig upp með því að vera að hugsa of mikið um það. Varnarleikur-
inn hefur verið traustur hjá mér en ósjálfrátt finnst manni maður
eiga lélegan leik þegar maður hittir ekki úr opnu
skotunum. Ég má ekki vera að einblína á það og
verð bara að hugsa um það jákvæða sem ég hef
gert í þessum leikjum. Ég veit að skotin fara að
detta,” segir Jón Arnór. Lottomatica spilaði við
Siena í undanúrslitunum í fyrra og tapaði þá 3-1.
„Það voru rosaleg læti í úrslitakeppninni í fyrra þegar við töpuð-
um á móti þeim. Við munum alveg eftir því. Ég trúi því virkilega
að við getum unnið þetta lið. Ég er búinn að sjá fyrir okkur vinna
þennan titil. Það er búinn að vera stígandi í liðinu í allri úrslita-
keppninni og við ætlum okkur ekkert annað en að koma með
titilinn aftur til Rómar,” segir Jón Arnór að lokum.
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON: SPILAR UM ÍTALSKA MEISTARATITILINN MEÐ LOTTOMATICA ROMA
Búinn að sjá fyrir okkur vinna þennan titil
> Alþjóðasundmót í Laugardalslaug
Sundfélag Hafnarfjarðar stendur nú fyrir alþjóðasund-
móti, SH International, í Laugardalslaug en mótið
hófst í gær. Mótið er jafnframt 100 ára afmælismót
Hafnarfjarðarbæjar og meðal keppenda eru fjölmargir
sterkir sundmenn erlendir sem og innlendir. Hrafnhildur
Lúthersdóttir úr SH er meðal keppenda en hún reynir að
ná ólympíulágmarki í 200 metra bringu-
sundi í dag. Örn Arnarson úr SH
hefur þegar náð ólympíulágmörk-
um í fjórum greinum en hann
keppir í 100 metra baksundi í
dag.
HANDBOLTI Landsliðsfyrirliðinn
Ólafur Stefánsson fór hægt í sak-
irnar í gær, hélt sig lengi vel til
hlés og leyfði öðrum að láta ljós
sitt skína. Hann segist þó ætla að
láta meira að sér kveða í næstu
tveimur leikjum.
„Þetta var nokkuð jákvætt.
Vörnin var ekki góð í fyrri hálf-
leik en það var stígandi hjá okkur.
Við vorum kannski allir ekki
alveg á fullum hraða sem er allt í
lagi þar sem þetta gekk upp. Ein-
hvers staðar stendur að hestur
stökkvi bara eins hátt og hann
þarf. Það er allt annað upp á ten-
ingnum það sem eftir er af helg-
inni og mótið er að byrja í næsta
leik,“ sagði Ólafur sem hefur
áhyggjur af ýmsu.
„Ég hef áhyggjur af vörninni
og sókninni sem og sjálfum mér.
Ég hef alltaf áhyggjur. Við verð-
um að leysa ýmislegt betur en
við gerðum gegn Argentínu-
mönnum. Það verður erfitt að
leggja Pólverjana. Þetta á líka að
vera erfitt og það eru þannig
leikir sem gefa þessu gildi. Mér
finnst við vera léttir og eigum
klárlega mikið inni. Það verður
gaman gegn Pólverjum,“ sagði
Ólafur. – hbg
Landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson segist ætla að láta meira að sér kveða gegn Pólverjum og Svíum:
Hestur stekkur eins hátt og hann þarf
RÓLEGUR Ólafur Stefánsson hélt sig til
hlés í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
HANDBOLTI Fyrsta lotan af þremur
í bardaganum um að komast til
Peking fór fram í Hala Stulecia-
höllinni í Wroclaw í gær. Ísland
lagði þá Argentínu sannfærandi,
36-27. Leikur liðsins var ágætur
en liðið þarf að sýna betri leik
gegn sterkum Pólverjum í dag.
Líkt og Guðmundur hafði lofað
stillti hann upp sínu sterkasta liði
í leiknum. Ísland spilaði 5-1 vörn
þar sem Guðjón Valur fór út á móti
sterkasta manni Argentínu, Eric
Gull sem spilar með Barcelona.
Íslenska liðið byrjaði leikinn
vel, spilaði hraðan sóknarleik og
þokkalega vörn þar sem Birkir
Ívar varði vel fyrir aftan. Eftir 13
mínútur var Ísland komið með
fimm marka forystu, 8-3. Strák-
arnir skutu vel og argentínsku
markverðirnir vörðu vart skot.
Þá brugðu Argentínumenn á það
ráð að taka Ólaf Stefánsson úr
umferð og við það riðlaðist sókn-
arleikur liðsins. Argentínumenn
spiluðu að sama skapi ágætan
sóknarleik en fengu væna aðstoð
frá slökum dómurum leiksins sem
flautuðu fullmikið.
Argentínumenn náðu að minnka
muninn í þrjú mörk en íslensku
strákarnir komu muninum í sex
mörk fyrir hlé, 19-13, þökk sé
góðum hraðaupphlaupum.
Munurinn hélst lengi vel sá sami
í síðari hálfleik en þegar Guð-
mundur breytti í 3-2-1 vörn lentu
Argentínumennirnir í miklu basli
og íslenska liðið stakk endanlega
af. Mest náði liðið 13 marka for-
ystu, 34-21. Undir lokin leystist
leikurinn upp í hálfgerða vitleysu
og Argentínumennirnir náðu að
koma muninum undir tíu mörk.
36-27 lokatölur.
Þessi leikur var vissulega
skylduverkefni fyrir liðið og ágætt
að hann sé frá. Argentínumenn
voru öflugri en margur hélt og það
tók sinn tíma að hrista þá af bak-
inu. Slakur varnarleikur og
nákvæmlega engin markvarsla
var þó banabiti þeirra.
Guðjón Valur var sem fyrr frá-
bær í íslenska liðinu á báðum
endum vallarins og lítur vel út.
Snorri virkar einnig í fantaformi
og var góður. Arnór byrjaði rólega
en fann sig vel er leið á leikinn
sem eru jákvæð tíðindi.
Birkir varði einnig vel lengstum
og Róbert var sprækur á línunni.
Íslenska liðið verður að bæta
varnarleik sinn talsvert fyrir leik-
inn gegn Pólverjum í dag ef ekki á
illa að fara. Sóknarleikurinn var
ágætur í dag en hann þarf að vera
hraðari gegn betra liði.
Að mörgu leyti var jákvætt að
fá svona „æfingu“ fyrir hina leik-
ina og það er ljóst að alvaran
byrjar í dag.
Skyldan búin og alvaran að byrja
Ísland vann góðan sigur á Argentínu, 36-27, í fyrsta leik sínum í undankeppni Ólympíuleikanna. Það tók
tíma að brjóta Argentínumenn niður en sigurinn var aldrei í hættu. Ísland mætir heimamönnum í dag.
ÖFLUGUR Guðjón Valur Sigurðsson var í fínu formi í gær og var markahæstur
íslensku leikmannanna með níu mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC