Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 46
● heimili&hönnun
Fyrir utan að hafa ferðast út um allan heim hefur Telma búið í Dan-
mörku, Kosta Ríka og í Brussel. Heimili hennar ber keim af öllu þessu
og Telma á marga fallega og spennandi muni frá mörgum löndum. „Ég
væri eflaust með meira af stærri hlutum frá ferðalögum mínum, en oft
er erfitt að flytja muni á milli landa,“ útskýrir Telma.
Telma býr í pínulitlu einbýlishúsi frá árinu 1926 í miðbæ Reykjavík-
ur. Á meðan hún bjó erlendis leigði hún húsið því hún gat ekki hugsað
sér að selja litla húsið sitt.
Á efri hæðinni er Telma með silkiteppi frá Tyrklandi sem henni
fannst passa vel við gluggann á ganginum. „Þetta voru fyrstu stærstu
kaupin mín og einnig þau skemmtilegustu sem ég hef gert um ævina.
Ég var ekki að leita mér að teppi en kaupmennirnir voru afskaplega
ágengir en þó alveg ótrúlega kurteisir. Eftir langa mæðu tókst mér að
ná verðinu niður um helming og sló til,“ segir Telma.
„Styttan mín er frá Suður-Afríku og gerð af myndhöggvara frá
Simbabve. Styttuna keypti ég þegar ég ferðaðist um Suður-Afríku í
fyrra. Ég féll alveg fyrir henni,“ segir Telma sem bjó í Brussel á þess-
um tíma og var lengi að velta því fyrir sér hvernig hún ætti að koma
styttunni heim því hún var of stór og of þung til að taka með sér í far-
angur. Það var því ákveðið að senda hana með DHL-hraðflutningi, „eins
og svo marga af þeim munum sem ég hef keypt mér erlendis“, segir
Telma.
Málverkið sem prýðir stofuvegginn hjá Telmu er frá Jórdaníu. Það
keypti hún þegar hún var að flytja erindi þar í landi. „Ég féll fyrir
myndinni en listagalleríið tók ekki kreditkort. Þetta þýddi að ég þurfti
að ganga á milli hraðbanka og reyna að safna saman peningum fyrir
myndinni. Það má segja að ég hafi sýnt mjög einbeittan eyðsluvilja því
ég hafði mikið fyrir því að safna peningunum saman,“ segir Telma og
hlær.
„Önnur mynd sem er í uppáhaldi hjá mér er kisumyndin mín. Hana
keypti ég í Mont Martre í París af alsírskum listamanni. Þegar við
fórum að spjalla kom í ljós að hann hafði lengi búið í Danmörku líkt og
ég. Þarna stóðum við, Íslendingurinn og Alsírbúinn, og ræddum mynd-
list á dönsku í miðri Parísarborg. Það var mjög sérstök stund,“ segir
Telma. - kka
Heimshornaflakkarinn í litla húsinu
● Telma Halldórsdóttir, lögmaður á lögfræðistofunni Fulltingi, hefur ferðast mikið og búið víða um ævina. Litla húsið hennar við Bragagötu ber þess glöggt merki.
Telmu þótti gaman að prútta niður verðið á teppinu sem hún
keypti í Tyrklandi.
Þessi stytta frá Suður-Afríku
vegur tuttugu kíló og því var
erfitt að koma henni heim.
Telma lagði mikið á sig til að eignast þessa mynd.
Kisumyndina keypti hún í
París.
Litla húsið hennar Telmu er áttatíu og tveggja ára gamalt.
Telma Halldórsdóttir lögmaður hefur séð mikið af heiminum.
31. MAÍ 2008 LAUGARDAGUR6