Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 84
44 31. maí 2008 LAUGARDAGUR Í dag eru 35 ár liðin síðan Richard Nixon og Georges Pomp- idou, þáverandi for- setar Bandaríkjanna og Frakklands, hittust á fundi í Reykjavík, en aðalefni hans var nýr Atlantshafssáttmáli. Gífurlegur undir- búningur var af hálfu íslenskra stjórnvalda vegna fundarins og skipulögð meiri lög- gæsla en dæmi voru um á Ís- landi. Kjarvalsstaðir, þá nýbyggt myndlistarhús á Miklatúni, þótti hentugastur fundarstaða því auðvelt var að hafa auga með mannaferðum í kringum húsið. Meðan á Íslandsdvölinni stóð bjó Pompidou í húsi Alberts Guð- mundssonar að Lauf- ásvegi 68, en Nixon í bandaríska sendiráð- inu. Vakti mikla at- hygli þegar bandaríski forsetinn fór í göngu- ferð um miðborg Reykjavíkur og tók vegfarendur tali. Kom á óvart hversu alþýð- legur hann var og glaðsinna. Nixon bar sig vel þótt heima ætti hann í vök að verj- ast vegna Watergate-málsins, en ári eftir fundinn varð hann fyrstur Bandaríkjaforseta til að segja af sér. Pompidou lést ári síðar. ÞETTA GERÐIST: 31. MAÍ 1973 Forsetar í Reykjavík BROOKE SHIELDS LEIKKONA ER 43 ÁRA „Ekki sóa mínútu af lífi þínu í eymd, volæði eða óham- ingju. Ef einn gluggi lok- ast, hlauptu hratt að þeim næsta – eða brjóttu niður næstu hurð.“ Brooke Shields lék barnunga vændiskonu í Pretty Baby að- eins tólf ára gömul. Hún er enn atkvæðamikil leikkona og hefur skrifað metsölubók um fæðingarþunglyndi. Á morgun verður Hafnarfjörður aldar- gamall, en sama dag eiga 85 íbúar bæj- arins afmæli. Eiríksína Kr. Ásgríms- dóttir, bókmenntafræðingur og eitt afmælisbarnanna, hefur boðið þeim öllum, og í raun bæði landi og miðum, í hádegishóf á nýjasta torgi bæjarins. „Afmælisdag minn og 84 annarra Hafnfirðinga ber upp á sama dag og bærinn okkar blæs til stórveislu í til- efni 100 ára afmælis. Ég vonaðist lengi eftir að bæjaryfirvöld ætluðu sér að gera eitthvað sérstakt fyrir afmælis- börn bæjarins á þessum merka degi, því vegna hátíðahaldanna er okkar af- mælisdegi hálfpartinn stolið,“ segir Eiríksína sem býr svo vel að búa við splunkunýtt og skrautlegt torg í bakgarðinum. „Lengi vel hélt ég að torgið væri af- mælisgjöf til mín en líklega er þarna komin ein af afmælisgjöfum til allra Hafnfirðinga. Torginu hefur enn ekki verið gefið nafn, en ég hef ákveðið að kalla það 1. júní-torg, okkur afmæl- isbörnum Hafnarfjarðar til heiðurs,“ segir Eiríksína sem á morgun býst við dásamlega eftirminnilegri afmælis- veislu á torginu sem stendur bak við Byggðasafn Hafnarfjarðar við Vestur- götu. „Þangað vil ég bjóða öllum Hafnfirð- ingum sem fæddust 1. júní, og að sjálf- sögðu öllum Íslendingum sem vilja sam- fagna afmælisbörnunum. Án íbúanna er enginn bær og vitaskuld þurfa þeir Hafnfirðingar sem eiga afmæli á morg- un að fá sína athygli á afmælisdaginn. Ég veit að bæjarstjórinn er mennt- aður bakari og væri ansi gaman ef hann kæmi með eina hnallþóru undir hendinni í gleðskapinn. Sjálf mun ég gefa öllum afmælisbörnum afmæli- skerti, köku og eitthvað að drekka. Ég hef einnig útbúið handa þeim sérstakt barmmerki til að skreyta sig með á bæj- arröltinu, og saman munum við syngja afmælissönginn með aðstoð Margrétar Guðrúnardóttur blússöngkonu sem tekur einnig netta Marilyn Monroe- sveiflu í minningu leikkonunnar fögru sem átti afmæli 1. júní eins og við hin,“ segir Eiríksína sem skorar á alla Hafn- firðinga að mæta til veislu á 1. júní- torgi klukkan tólf á hádegi. „Athöfnin verður stutt og óskipulögð að mestu, en við skemmtum okkur sjálf með því að hittast. Mér finnst skemmti- leg hugmynd að halda upp á afmæli sitt með öðrum sem eiga afmæli sama dag. Í hópnum eru nokkrir sem eiga stór- afmæli og indælt að fá tækifæri til að hylla þá á tímamótum, syngja saman, fá sér eitthvað gott í gogginn, njóta samveru og skoða fallegt torgið í leið- inni. Þetta verður yndisleg byrjun á fallegum degi og upplagt í framhaldi að taka þátt í hátíðahöldum vegna sjó- mannadagsins og afmælis bæjarins,“ segir Eiríksína sem vonast til að af- mæli Hafnfirðinganna 85 muni geta af sér listgjörning, sem þá verður afmælisgjöf þeirra til bæjarins. „Ég hef fengið ljósmyndara til að taka einstaklings- og hópmyndir af af- mælisbörnunum og ekki væri verra að svo margir mættu að hægt væri að mynda töluna 100 úr 85. Þá heitir það list eða gjörningur,“ segir Eiríksína í óðaönn að strauja afmæliskjólinn í mikilli tilhlökkun eftir morgundegin- um, en nágrannar í næstu húsum, sem og ýmis fyrirtæki hafa viljað leggja rausnarlega hönd á plóg. „Hafnarfjörður hefur blásið út á síð- ustu árum og er dálítið að glata þeirri samkennd sem einkennir líf og tilveru íbúa í sjávarþorpum. Því langar mig að virkja þessar 85 manneskjur til að efla samkennd og sýna aftur fram á að við Hafnfirðingar erum sem ein stór fjölskylda.“ thordis@frettabladid.is EIRÍKSÍNA KR. ÁSGRÍMSDÓTTIR: BÝÐUR 85 AFMÆLISBÖRNUM TIL VEISLU Þjóðin boðin í 85-falt afmæli HAFNFIRSKT AFMÆLISBARN Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir bókmenntafræðingur á nýjasta torgi Hafnarfjarðarbæjar, en þangað hefur hún boðið 84 hafnfirskum afmælisbörnum til veislu á hádegi á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR timamot@frettabladid.is Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Eiríkur Sigfússon Sóltúni 2, 105 Reykjavík, andaðist fimmtudaginn 29. maí. Útförin verður auglýst síðar. Jens Magnússon Anna Hannesdóttir Kristbjörn Eiríksson Aldís Óskarsdóttir Sigfús Eiríksson Hanna Garðarsdóttir Finnur Eiríksson Gunnhildur Hrólfsdóttir Halla Eiríksdóttir Fróði Jónsson Sigríður Eiríksdóttir Guðmundur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík • 566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali Móðir okkar og tengdamóðir, Unnur Þorsteinsdóttir, Tjarnarbóli 14, lést á hjartadeild Landspítalans 23. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fh. barnabarna og barnabarnabarna, Þorsteinn Jónsson Hildur Jónsdóttir Gunnlaugur Baldvinsson. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Ingvarssonar bónda, Skipum, Stokkseyrarhreppi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Kumbaravogs. Ingigerður Eiríksdóttir Gísli Vilhjálmur Jónsson Herdís Hermannsdóttir Móeiður Jónsdóttir Ólafur Benediktsson Ragnheiður Jónsdóttir Vilhjálmur Vilmundarson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fóst- urfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, Ágúst H. Sigurðsson (Gútti) verkstjóri, frá Bræðraborg, Fáskrúðsfirði, Krummahólum 8, lést laugardaginn 24. maí, verður jarðsunginn mánu- daginn 2. júní frá Bústaðakirkju kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Sigrún Júlíusdóttir Sigurður Ágústsson Anna Björk Njálsóttir Guðni Ágústsson Nizel C. Ágústsson Dagný Ágústsdóttir Sævar Davíðsson Þóra Karólína Ágústsdóttir Ágúst Emanúel Rafnsson Áslaug Halla Elvarsdóttir barnabörn og systkini hins látna. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigurður Guðni Jónsson fyrrv. lyfsali, Flókagötu 33, Reykjavík, lést að heimili sínu aðfaranótt fimmtudagsins 29. maí. Fjóla Guðleifsdóttir Leifur Sigurðsson Katsuko Sigurðsson Anna Sigurðardóttir Hannes Leifsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Ásthildur Jónsdóttir frá Sviðholti, Bessastaðahreppi, Vogatundu 31, Kópavogi, lést 29. maí. Geir Guðjónsson Guðrún Ólína Geirsdóttir Sigmundur Jónsson Eyþór Sigmundsson Hjalti Sigmundsson Jón Ingvi Geirsson Silja Stefánsdóttir Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, Fanney Benediktsdóttir frá Kringlu, Dalabyggð, lést að dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, miðvikudaginn 28. maí. Skarphéðinn Jónsson Guðrún Skarphéðinsdóttir Kjartan Sigurðsson Sigríður Skarphéðinsdóttir Jóel Þorbjarnarson Jón Skarphéðinsson Margrét Skarphéðinsdóttir Thor B. Eggertsson Svanhildur Skarphéðinsdóttir Magnús Sigurðsson Jónas Rútsson Kristín Viðardóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.