Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 88

Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 88
48 31. maí 2008 LAUGARDAGUR Salur Íslenskrar grafíkur er baka til í Hafnarhúsinu við Miðbakka. Þar eru myndlistarsýningar allt árið, bæði íslenskir og erlendir listamenn sýna þar grafík, oft á mjög viðráðanlegu verði. Bæði eru það verk unnin eftir fornum aðferðum þrykksins og einnig eftir nýrri aðferðum tölvuvinnslu og nýjustu blekspraututækni sem er orðin fyrirferðarmikil í fjöl- földun prenta. Nú um helgina opnar Bjarni Hinriksson sýningu á nýjum verk- um í salnum. Bjarni hefur um langt skeið verið í forystusveit þeirra myndlistarmanna sem vinna ákaft í myndasöguforminu. Þetta er fáliðuð sveit en verkin sem Bjarni sýnir eru unnin með silkiþrykki og djúpþrykk og hins vegar af stafrænt prentuðum myndum (pigment-bleksprautu- prent). Að baki myndunum á sýning- unni liggur myndasaga sem ennþá er í smíðum, einskonar ferðasaga frá sólareyjum við Afríkustrend- ur. „Myndirnar eru tilraun til að losa teikninguna að mestu frá orð- unum og frásögninni, gefa línunni og litnum sjálfstætt líf utan bók- arinnar og kafa ofan í teikninguna á nýjum forsendum,“ segir Bjarni. Hin myndræna saga er það sem hann stefnir að þar sem söguefnið er rakið einvörðungu í mynd- málinu. Í kynningu á efni sýningarinnar lætur Bjarni fylgja ljóð: Ég hef vissulega staðið / á svartri strönd syðsta hluta Íslands / og horft út á hafið, / alla leið til Suð- urskautsins. // Látið hugann reika, kafað djúpt, / suður á bóginn. / Þetta er bein leið / niður eftir hnettinum, / ekkert sem truflar ferðalagið / nema... // Nema reynd- ar nokkrar eyjar ef maður kafar of nálægt Afríku. // Það verður svo sem enginn / verri maður // af því að hugsa / við strendur Afríku. Bjarni Hinriksson lauk námi frá myndasögudeild École Régi- onale des Beaux-Arts d’Angoul- ême í Frakklandi 1989 en þar hefur verið setur myndasögu- hefðarinnar um langt skeið. Síðan þá hefur Bjarni fengist við mynda- sögugerð jafnframt starfi sem grafískur hönnuður hjá RÚV ohf. Hann er einn af stofnendum GISP!-hópsins og myndasögur eftir hann hafa birst í samnefndu blaði auk fjölmargra annarra blaða og tímarita hérlendis sem erlendis. Einnig hafa komið út bækur eftir Bjarna með sögum hans. Hann hefur starfað sem sýningarstjóri og fengist við kennslu hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Bjarni hefur haldið einkasýning- ar á Íslandi og erlendis og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Sýn- ingin Atlantik Diving stendur dag- ana 31. maí-15. júní 2008, og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00. pbb@frettabladid.is Atlantik Diving Árleg sýning Ljósmynda- skólans opnar í dag kl. 15, en á henni má sjá afrakstur vetrarstarfsins hjá nemendum skólans. Nemendurnir hafa unnið fjölbreytt lokaverkefni undir handleiðslu kennara sinna þar sem sköpunarþörf og tækni- leg kunnátta hafa fengið að njóta sín til hins ýtrasta. Ljósmyndaskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1997, fyrst undir nafninu Ljósmyndaskóli Sissu. Markmið skólans er að kenna ljósmyndun með sköpun að leiðarljósi og er námið ætlað bæði þeim sem vilja ljósmynda sér til ánægju og eins þeim sem hyggja á frekara nám og starf á þessu sviði. Margir af helstu ljósmyndurum landsins kenna og leiðbeina við skólann. Má þar nefna meðal annarra Börk, Einar Fal, Golla, Kristján Maack, Pál Stefánsson, Sigfús Má, Sigurgeir Sigurjónsson, Spessa auk Sissu og Leifs. Sýningin stendur yfir til 8. júní næstkomandi og er til húsa á Hólmaslóð 6. - vþ Sýning Ljósmynda- skólans NEKT OG LIST Ljósmynd eftir Viktor Svan Sigurðar- son, nemanda í Ljósmyndaskólanum. MYNDLIST Verk af sýningu Bjarna Hinrikssonar í sal Íslenskrar grafíkur við Miðbakkann. Myndin sýnir vel vinnu hans með þema sem þróast frá ramma til ramma í síðuformi sögunnar. MYND/BJARNI HINRIKSSON. BIRT MEÐ GOÐFÚSLEGU LEYFI LISTAMANNSINS Á fimmtudags- og föstudagskvöld var dagskrá flutt í Gamla bíó þar sem hópur listamanna flutti söng- lög, ný og eldri, samin við ljóð Steins Steinars. Jón Ólafsson, sem stóð fyrir tiltækinu, sagði hugmyndina nær tíu ára og nú væri hún loks orðin að veruleika. Föstudagstón- leikarnir voru sendir út beint á Rás 2 Ríkisútvarpsins og dagskráin verður flutt á Ísafirði, Akureyri og Eskifirði. Tónleikahrinan fylgir útgáfu disks með nýrri lagasmíðum úr prógramminu, lögum þeirra Jóns og Sigurðar Bjólu, en að auki eru á efnisskránni lög eftir Guðmund Árnason, Bergþóru Árnadóttur, Ragnar Bjarnason, Ingólf Steins- son, Torfa Ólafsson og Steinar Berg. Sagði Jón á fimmtudagskvöld að 107 ljóð Steins væru nú lagsett, við sum kvæðanna fyrirfyndust fimm, sex lög. Af því má ráða að laga- höfundum er Steinn kær. Efnisskráin var þannig skipulögð að fyrri hlutinn samanstóð af ellefu nýjum lögum eftir Jón og Sigurð Bjólu en hinn seinni byggðist á flutningi eldri laga eftir ýmsa höf- unda. Söngvarar skiptust á að flytja lögin. Yfir öllum tónleikunum var léttur og allt að kæruleysislegur blær. Jóni er gefin sú náðargáfa að keyra á blöndu af aga og léttleik í samstarfi sem skein víðast í gegn í flutningnum: það var stillilegt öryggi á tónleikunum sem greini- lega féll áhorfendum vel í geð. Bandið sem byggðist á hefðbundum rokkbandsgrunni var þétt og lát- laust. Blöndun var fín utan þess að sæti í fremstu röðum misstu úr veikari söngflutning, einkum hjá Hildi Völu, sem lagði sig samt vel í söng og túlkun, gaf raunar meira af sér í hreyfingum en aðrir. Tónleikarnir leiddu aftur vel í ljós hverjir taka hlutverk sitt alvar- lega sem show-menn: Helgi Björns- son einn sýndi slíka takta úr ball- bransanum. Hann gekk lengst í leiklegri túlkun ljóðanna og opnaði þá fyrir spurninguna hvers vegna allt settið var í stilltara kantinum: hér þurfti enginn lífið að leysa. Það var reyndar það sem ég sakn- aði mest á þessum tónleikum á ann- ars prýðilega fluttu efni, léttum mel- ódíum mestanpart, að dýpt vantaði víða í túlkunina, hún var víðast létt- væg, laus við þungann sem þessi ljóð búa yfir og um leið háskann sem alltaf býr að baki í ljóðum Steins. Sumt var undurfallegt: í minning- unni eftir kvöldið fannst mér KK fara best með á sinn einstaka hátt ýkjulaust en samt af alvarleik sem gæddi ljóðin fegurð í flutningnum. Velta má fyrir sér hvort túlkunin skýrist, herðist þegar á líður, fleiri koma saman til fundar við flytjand- ann. Mörg þessara laga munu lifa áfram enda gengur Jóni það líkleg- ast mest til að tryggja framhaldslíf þeirra og deila upplifun söngva- smiðanna af þeim. Og þá er hluta af tilganginum náð. Páll Baldvin Baldvinsson Ljóð Steins sungin JÓN ÓLAFSSON TÓNLIST Ferð án fyrirheits Jón Ólafsson og hljómsveit ásamt söngvurunum Ellen Kristjánsdóttur, Helga Björnssyni, Hildi Völu, KK, Svav- ari Erni og Þorsteini Einarssyni. ★★★ Vandað efni, vandaður flutningur en háskalaust í túlkun. STEINN STEINARR Miele ryksugurMeðal fáanlegra fylgihluta: TILBOÐ kr.: 18.900 Skúlagötu 30 | 101 Reykjavík | Opið alla daga kl. 14-17 Velkomin í myndlistarveislu í nýju og stærsta galleríi landsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.