Fréttablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 73
SUNNUDAGUR 1. júní 2008 17
að gera músík en að horfa a sjón-
varpið. Mér finnst það skemmti-
legra en að spila golf. Og skemmti-
legra bara en allt. Nema að maður
verður að hitta vini sína öðru
hvoru.“
Þú átt stóran hóp af vinum í tón-
listinni og ert með sterkt tengsla-
net víðs vegar um heiminn.
„Ég er svo heppinn að hafa
kynnst frábæru fólki í gegnum
tíðina og við höldum góðu sam-
bandi. Ég vinn með frábæru fólki
sem hefur svo orðið vinir mínir.
En það er fullt af fólki sem ég tala
ekki við sem væri kannski prakt-
ískt fyrir mig að tala við. Ég vil
frekar hafa góð samskipti við fáa
heldur en tilgerðarleg yfirborðs-
kennd samskipti við alla. Það
kannski skilar sér líka í því að fólk
sér að maður er ekki yfirborðs-
kenndur. Ég segi það sem mér
finnst. Ég er ekki að þykjast vera
einhver annar en ég er. Í einhverj-
um sleikjuleik. Sumir eru alltaf að
reyna að geðjast öllum og þar af
leiðandi ristir það svo grunnt. Þá
verður það bara einhver gufa.“
Forðast leti, tala minna, gera meira
Talandi um vini þá er Keren Ann
að koma til landsins og þið eruð að
fara að spila með Sinfóníunni núna
5. júní í lok Listahátíðar. Hvernig
hittust þið og hvernig hófst ykkar
samstarf?
„Við hittumst á bar. Það var búið
að segja okkur að við ættum að
hittast þannig að þá hittumst við,
skiptumst á diskum og síðan send-
um við hvort öðru tölvupóst og
sögðumst hafa haft gaman af hvors
annars músík og við ættum að
prufa að vinna saman í nokkra
daga og sjá hvað myndi gerast.
Það endaði í Lady and Bird-diskn-
um og svo höfum við gert ýmislegt
annað saman síðan, alltaf til dæmis
verið með lag á hvors annars plötu,
við gerðum tónlist við heimildar-
mynd um Andy Warhol og skrifuð-
um bók saman. Við sömdum líka
þrjú lög í stúdíói í Malmö. Eitt af
þeim lögum fór í auglýsingu fyrir
frönsku hraðlestirnar og lagið
Malmö Lives er í myndinni um
Andy Warhol. Við tökum það lag
með Sinfóníunni, og nokkur með
Lady and Bird, svo verður þetta
Bang Gang og Keren Ann í sitt
hvoru lagi.“
Er tónlistin í Lady and Bird ólík
því sem þú ert að gera í Bang Gang
eða er þetta hin hliðin á peningn-
um?
„Ég held að Bang Gang, Lady and
Bird og Häxan og allt þetta tengist
alveg á þann hátt að þar er ég að
gera það sem mér sýnist. Eins og
nýjustu plötuna. Það var enginn
sem stóð yfir mér og sagði mér
hvaða lög ég ætti að velja. Hvernig
hljóm ég ætti að hafa. Eins með
Lady and Bird, plötufyrirtækið
heyrði ekki plötuna fyrr en hún var
tilbúin. Það er engin pressa frá Dis-
cograph né EMI um að gera eitt-
hvað sérstakt. Ég sendi þeim bara
lögin og þeir eru voða ánægðir.“
Þú kannt réttu tökin á svona tón-
listardílingum.
„Ég er mjög meðvitaður um alla
samninga sem ég hef gert. Þetta
snýst bara um að vera fylginn sjálf-
um sér og standa við það sem
maður segir. Ef þú vilt eiga góð
langtímasamskipti við fólk þá skil-
ar það sér ef þú ert duglegur og
stendur við það sem þú segir. Svo
er til fólk sem er óheiðarlegt og
gengur vel líka. En ég ætti í erfið-
leikum með að sofa á kvöldin ef ég
væri slíkur einstaklingur. Ef ég
ætti að gefa einhverjum sem er að
byrja í bransanum ráð þá væri það
að forðast leti. Tala minna, gera
meira. Það er mjög algengt að fólk
sé eitthvað að taka upp plötu og
eyði meiri tíma í að tala um að það
sé að taka upp plötuna heldur en í
rauninni að taka hana upp. Þetta er
ekki mjög vænlegt til árangurs.“
Nenni ekki hæpi
„Núna var ég að klára tónlist við
myndina Beyond the Void sem fjall-
ar um Íslendinginn Ingvar Þóris-
son sem kleif fjallið Ama Dablan.
Við Einar Tönsberg, þekktur sem
Eberg, gerðum hana saman, en við
höfum samið ýmislegt saman,
meðal annars tónlistina við
Pressuna á Stöð 2.“
Ertu þá að sampla einhverja
Himalaya-tónlist inn í þetta?
„Nei, við notum samt einn munk
úr myndinni og bjöllur í nokkur
stefin.“
Stuttmyndin Red Death, sem var
byggð á smásögu Edgars Allans
Poe, var sýnd í Pompidou-safninu
fyrir nokkrum árum og fékk góðar
viðtökur. Ætlarðu ekki að spreyta
þig meira á kvikmyndum?
„Jú, ég hef gífurlegan áhuga a
því. Það vita mjög fáir um þá
mynd. Mig minnir að ég hafi viljað
sýna hana hér heima en það var lít-
ill áhugi fyrir því.“
Kunna útlendingar betur að
meta þig en landinn?
„Á Ítalíu var gerð stytta af mér í
fullri stærð og ég hannaði föt á
styttuna. Hún var sýnd á Triennale,
sem er nokkuð virt listasafn í
Mílanó. En þegar ég spurðist fyrir
hér hvort það mætti sýna hana var
enginn áhugi fyrir því.“
Hvar er hún þá?
„Hún er enn úti. Ég má fá hana á
næsta ári en hún er 186 cm á hæð
þannig að ég efast um að maður
óski eftir henni.“
En nú er fullt af merkum Frökk-
um og fjölmiðlamönnum að koma
hingað heim að hlusta á þig í
Háskólabíói.
„Þetta eru bara blaðamenn og
þeir sem ég hef verið að vinna
með.“
Nei, þetta er nú rjóminn af öllu
sem mikilvægt þykir í Frakklandi.
„Æ, ég nenni ekki að vera að
telja þetta lið upp.“
Ertu svona hógvær?
„Ég er búinn að vera með
útgáfusamning hjá EMI í fimm ár
og ef ég ætti að senda fréttatil-
kynningu í hvert skipti sem ég
tala við yfirmann útgáfu EMI eða
aðra útgefendur og listamenn
gerði ég líklega ekki annað en að
skrifa. Ég nenni ekki að taka þátt
í þessum íslenska hæp-leik. Ég er
ekki að gera tónlist til að fá
myndir af mér í blöðin og verða
frægur.“
FRÁ VINSTRI: STYTTA AF BARÐA í raunstærð sem er á Triennale-listasafninu í Mílanó.
Barði hannaði klæðnað og fylgihluti við verkið.
STUTTMYNDIN RED DEATH: „Ég hef gífurlegan áhuga á því að spreyta mig meira
á kvikmyndum.“
SJÓNVARPSÞÁTTURINN SÚRREALÍSKI KONFEKT: „Það var töluvert hringt og kvart-
að eftir að fyrsti þátturinn fór í loftið.“
➜ List, kvikmyndir og sjónvarp – Barði hefur komið víða við