Fréttablaðið - 10.06.2008, Page 37
ÞRIÐJUDAGUR 10. júní 2008
„Þetta er verk um manneskjur sem
leita að hetjunni í sjálfri sér. Er
hægt að breyta heiminum eða er
nóg að vinna í manni sjálfum? Eru
hversdagshetjur líka hetjur?“ segir
Þorleifur Arnarsson um verk
Símonar Birgissonar sem setja á
upp í ágúst.
Verkið gengur undir nafninu
Hetjur og verður leikstýrt af Þor-
leifi. Að sögn Símonar fjallar það
um fólk á aldrinum 25-30 ára, sem
reynir að gera upp við fortíð sína.
Jafnframt er velt upp spurningum
um sannleikann. „Ætli það verði
ekki fullt af þrá, nálægð og raun-
veruleika,“ sagði Þorleifur „því
seinasta verk var fullt af blóði,
kynlífi og kókaíni og ég er alltaf að
svara sjálfum mér.“ Þá á hann við
seinustu sýningu sína, Gegen die
Wand, sem sett var upp í Schwerin
í Þýskalandi og hlaut lof gagnrýn-
enda.
Félagarnir kynntust í Berlín, en
Þorleifur leggur lokahönd á leik-
stjórnarnám við Ernst Busch-skól-
ann. Símon hefur hins vegar verið
að sýna með þýska leikhópnum
Rimini Protocol, en hann fékk leik-
listarverðlaun Evrópu á dögunum.
Leikhópinn, Kreppuleikhúsið,
skipa þau Þórunn Arna Kristjáns-
dóttir og Walter Geir Grímsson,
auk Vignis Þórs Valþórssonar úr
leikhópnum Vér morðingjar. Verkið
verður sýnt á sviðslistahátíðinni
artFart og bregður sér á Vestfirði í
kjölfarið.
Spurður um hvort íslenskt leik-
listarlíf standi sig ekki í stykkinu
gagnvart ungu fólki svaraði Símon:
„Til hvers að gagnrýna, er ekki
skemmtilegra að framkvæma?“
- kbs
Skemmtilegra að framkvæma
LIST FYRIR ÍSLENDINGA, ÆTTUÐ ÚR ÞÝSKALANDI Þorleifur Arnarsson og Símon Örn
Birgisson setja upp leiksýningu í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Danshópurinn Íslenska hreyfiþró-
unarsamsteypan verður á ferð og
flugi í sumar. Fyrst er ferðast til
Spánar á dansnámskeið. Svo er
ferðinni heitið til St. Érme í Frakk-
landi að semja nýtt íslenskt dans-
verk. Dvalið verður í kastala á
vegum Performance Art Forum.
Stelpurnar eru hins vegar styrkt-
ar af Reykjavíkurborg og Ungu
fólki í Evrópu.
„Við erum ekkert að fara að
versla í H&M, en þetta er voða
krúttlegt,“ segir Ragnheiður Sig-
urðardóttir Bjarnarson, einn dans-
aranna, um St. Érme. Auk hennar
eru Ásgerður Guðrún Gunnars-
dóttir, Katrín Gunnarsdóttir,
Vigdís Eva Guðmundsdóttir og
Melkorka Magnúsdóttir í hópnum.
„Það var ótrúlega auðvelt að fá
pláss í kastalanum. Við sóttum um
og fengum svar örugglega fimm
mínútum síðar,“ segir Ásgerður.
Flakkið er allt að því táknrænt
fyrir hópinn, en þær hafa unnið út
frá þemanu: „where do we belong“
eða „hvar eigum við heima“ í tvö
ár. „Maðurinn er alltaf að flokka
allt og hlýtur að spyrja sig, eins og
við spyrjum okkur, á ég heima í
því sem ég er að gera? Er ég í rétt-
um flokki?“ segir Ragnheiður.
Hópurinn sýndi verk í vinnslu á
108 Prototype seinustu helgi og
hefur þegar fengið góðar mót-
tökur. Ferðalaginu lýkur svo á
mölinni á artFart í ágúst. - kbs
Dansa í frönskum kastala
VITA EKKI HVAR ÞÆR EIGA HEIMA
Vigdís E. Guðmundsdóttir, Ragnheiður
S. Bjarnarson og Ásgerður G. Gunnars-
dóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Miele ryksugurMeðal fáanlegra fylgihluta:
TILBOÐ kr.: 18.900
Eignastu lögin
af nýjustu plötu
Bubba á undan
öllum
Lifðu núna
Nú getur þú keypt lögin af
væntanlegri plötu Bubba Morthens
hjá Vodafone og spilað þau aftur og
aftur úr símanum þínum.
Prófaðu hvað þetta er þægilegt,
náðu í titillagið Fjórir naglar með því
að senda SMS skilaboðin lag Bubbi í
1900 eða farðu á vodafone.is.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A