Fréttablaðið - 10.06.2008, Page 38
22 10. júní 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ALBA MAMMA
Jessica Alba og nýbakaður eigin-
maður hennar, Cash Warren, eign-
uðust dóttur um helgina. Það er því
komið að því sem Alba óttast mest,
en hún sagði nýlega í viðtali að
hún hræddist brjóstagjöf meira
en fæðinguna sjálfa. Sú litla er
enn ónefnd.
Popp-
stjörnurn-
ar flykkjast
um forseta-
frambjóð-
andann Bar-
ack Obama.
Bruce
Springsteen,
David Cros-
by, Will.I.am og bönd eins og
R.E.M., Arcade Fire og Red Hot
Chili Peppers styðja hann og nú
hefur risapoppari bæst við, sjálf-
ur Bob Dylan. Í viðtali við The
Times í London leyndi Dylan ekki
hrifningu sinni. „Nú höfum við
mann sem er að endurskilgreina
eðli stjórnmála og eðli stjórn-
málamannsins... Barack Obama,“
sagði karlinn. „Ég er vongóður
um að hlutirnir breytist. Sumt
verður hreinlega að breytast.“
Bob Dylan
styður Obama
BOB DYLAN
Ölgerð Reykjavíkur sendir
frá sér gæðabjórinn Gull-
foss á næstu vikum. Fram-
kvæmdastjórinn Heimir
Hermannsson segir mikla
áherslu lagða á að nota
besta fáanlega hráefni til
bruggunarinnar.
„Við byrjum að brugga í byrjun
júlí, og vonum að hann verði kom-
inn á markað svona þremur, fjór-
um vikum síðar,“ útskýrir Heimir
Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Ölgerðar Reykjavíkur, en
hann á fyrirtækið ásamt bróður
sínum, Helga. „Við stofnuðum
fyrirtækið fyrir rúmu ári. Við
tókum saman lista með nöfnum
fimm bestu bruggara í Evrópu
með það fyrir augum að fá ein-
hvern af þeim til samstarfs með
okkur,“ útskýrir Heimir. Anders
Kissmeyer, danskur bruggari sem
var gæðastjóri hjá Carlsberg í
tuttugu ár, var efstur á umrædd-
um lista, og er nú í samstarfi við
Ölgerð Reykjavíkur. „Hann
hreifst af hugmyndafræðinni
okkar, sem er að nota besta fáan-
lega hráefnið, sama hvaðan það
er. Sumt er betra frá Ameríku og
annað er betra í Evrópu,“ útskýrir
Heimir. „Þetta er líka eins og með
vínið, slæmt sumar í Tékklandi
getur þýtt að humlarnir þaðan séu
ekki nógu góðir,“ bætir hann við.
Heimir segir hágæðabjór vera
í mikilli sókn. „Í Evrópu hefur
orðið til sérmarkaður fyrir
hágæðabrugghús á síðustu fimm-
tán árum eða svo, á meðan hefð-
bundni bjórmarkaðurinn hefur
dregist saman,“ segir hann. „Þetta
tengist líka ákveðinni hugmynda-
fræði í kringum mat sem hefur
verið vinsæl, svokallað „slow
food“. Með gæðabjórinn er til
dæmis ekki verið að ýta á eftir
gerjunarferlinu með því að bæta
við sykri, og ekki eru sett rot-
varnarefni í bjórinn. Gæðabjór-
inn er fersk vara, á meðan bjór
með rotvarnarefni getur verið
margra mánaða gamall þegar
neytendur fá hann í hendur,“
útskýrir Heimir.
Gullfoss verður framleiddur í
Bruggsmiðjunni á Árskógssandi,
eftir uppskrift Kissmeyers og
eftir skandinavískum hefðum.
Þegar fram líða stundir mun svo
bjórinn Geysir fylgja á hæla
honum. „Okkur þótti upplagt að
gera Geysi líka, fyrst við vorum
að byrja á Gullfossi, en það er
ekki komin nein dagsetning á
hann,“ segir Heimir og brosir.
„Þetta er líka skemmtilegt fyrir
erlenda ferðamenn og gaman að
geta boðið þeim upp á að smakka
bæði Gullfoss og Geysi. Við
höfum einmitt spurt veitinga-
menn hverju erlendir ferðamenn
falast eftir þegar kemur að þessu,
og þeir segja það helst vera
íslenskan bjór. Gullfoss og Geysir
verða þá góð viðbót í flóruna,“
segir Heimir. sunna@frettabladid.is
Gullfoss og Geysir á flösku
GULLFOSS VÆNTANLEGUR Heimir Hermannsson er framkvæmdastjóri Ölgerðar
Reykjavíkur, sem sendir íslenska bjórinn Gullfoss frá sér á næstu vikum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BARA EINN TÚR Í VIÐBÓT Paul
McCartney snýr sér að barnauppeldi.
Ljósmyndabókin Reykjavík út og inn,
eftir Braga Þór Jósefsson og með texta
eftir Illuga Jökulsson, er nýkomin í
verslanir. Bragi hefur haft bókina í
smíðum í ein tíu ár, en hann telur
Reykjavík hafa verið vanrækta sem
myndefni. „Mér finnst að þessa bók
hafi lengi vantað á markaðinn.
Ljósmyndabækur með landslagi
hrúgast inn, en það er mjög lítið til um
Reykjavík,“ segir Bragi, sem segir
borgina lengi hafa verið eitt af sínum
uppáhaldsmyndefnum.
Bókin er gefin út á bæði íslensku og
ensku, sem Reykjavík Inside Out, og
Bragi segir hana því bæði henta
innfæddum Íslendingum og gestum
hér á landi. „Ég reyndi líka að hafa
hana svolítið veglega og sýna Reykja-
vík frá öllum hliðum. Þetta eru ekki
bara myndir úr miðbænum í sól og
sumri, heldur fór ég um alla borg og
aðeins í önnur sveitarfélög líka. Ég
vildi hafa heillega mynd af borginni
eins og hún er í dag, eins og ég sé hana.
Ekki bara Hallgrímskirkju og Tjörn-
ina.“ Texti Illuga Jökulssonar gerir svo
tilurð og þróun borgarinnar skil. „Það
er til dæmis fjallað um hvernig
Reykjavík fannst, og líka hvernig hún
hvarf. Það er nefnilega varla minnst á
Reykjavík í mörg hundruð ár, hún er
nánast úr sögunni eftir sonarson
Ingólfs Arnar sonar,“ útskýrir Bragi,
sem er hvergi nærri hættur að festa
Reykjavík á filmu.
„Ég er sífellt að mynda borgina og
ætla mér að gera það áfram. Hvort það
verður svo nýtt í eitthvað meira verður
tíminn að leiða í ljós,“ segir hann. - sun
Reykjavík vanrækt myndefni
REYKJAVÍK Í DAG Bragi Þór Jósefsson ljósmynd-
ari sýnir Reykjavík frá mörgum hliðum í nýrri
bók sinni, Reykjavík út og inn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nú styttist í 17. júní og eins og
undan farin ár verður fjölbreytt
dagskrá í miðborg Reykjavíkur.
Fyrir þá sem vilja taka daginn
snemma hefst samhljómur kirkju-
klukkna í Reykjavík klukkan 9.55,
en hátíðardagskrá á Austurvelli
hefst svo laust fyrir klukkan ellefu
með söng karlakórsins Fóstbræðra,
ávarpi fjallkonu og forsetisráð-
herra, Geirs H. Haarde, að við-
stöddum forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni.
Yngri kynslóðin mun svo sannar-
lega ekki fara varhluta af skemmt-
uninni í ár, en milli klukkan 13 og
17 verða meðal annars Brúðubíll-
inn, trúðar og töframenn í Hljóm-
skálagarðinum, skrúðgöngur bæði
frá Hlemmi og Hagatorgi og á
barna og fjölskylduskemmtuninni
á Arnarhóli verða Skoppa og
Skrítla, atriði úr Skilaboðaskjóð-
unni og Eurobandið svo eitthvað sé
nefnt.
Ýmsar uppákomur verða víðs
vegar um bæinn, en klukkan 19.30
hefjast tónleikar á Arnarhóli þar
sem fram koma meðal annars Hinn
íslenski þursaflokkur, Hjaltalín og
Nýdönsk. Hálftíma síðar verður
dansleikur á Ingólfstorgi og á horni
Vonarstrætis og Lækjargötu verða
hip-hop tónleikar. Allir ættu því að
geta hlýtt á tónlist við sitt hæfi, en
dagskránni lýkur klukkan 23. - ag
Styttist í 17. júní
17. JÚNÍ Lendir á þriðjudegi í ár, svo það verður ekki löng helgi að þessu sinni.
Heimildir herma að Paul
McCartney muni á næstunni
tilkynna um síðasta risatúr sinn. Í
honum ætlar Paul að leika á
meira en hundrað tónleikum um
allan heim og á ferðin að taka tvö
ár. Eftir túrinn hyggst gamli
Bítilinn setjast í helgan stein og
sinna uppeldi á dóttir sinni, hinni
fjögurra ára gömlu Beatrice
Milly McCartney. Ekki seinna
vænna að meistarinn, sem verður
66 ára í næstu viku, snúi sér að
barnauppeldinu!
McCartney
hættir
NÝJASTI SPENNUTRYLLIRINN FRÁ LEIKSTJÓRA
THE SIXTH SENSE MEÐ MARK WAHLBERG Í FANTAFORMI!
SENDU SMS JA VHP
Á NÚMERIÐ 1900!
Vinningar eru Bíómiðar fyrir tvo,
DVD myndir og margt fleira!
HEIMSFRUMSÝND 11. JÚNÍ
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.