Fréttablaðið - 10.06.2008, Síða 41
ÞRIÐJUDAGUR 10. júní 2008 25
Nýlega kom út fyrsta túristabókin um
Ísland á finnsku. Bókina skrifaði Björgvin
Hilmarsson með Satu Rämö, finnskri unn-
ustu sinni.
„Finnar eru mjög áhugasam-
ir um Ísland,“ segir
Björgvin Hilmarsson um
nýja túristabók sína. Bókin
er á finnsku og fjallar um
Ísland. Björgvin skrifaði
bókina með finnskri unnustu
sinni.
„Það birtast sífellt fleiri
greinar um landið, menning-
una og afþreyinguna. Að
mínu mati eru Finnar líka
langlíkastir okkur af öllum
Norðurlandaþjóðunum.
Finnar eru svona hálf
utanveltu meðal þeirra eins
og við. Ég held að áhuginn á
Íslandi eigi bara eftir að
aukast á næstu árum og
bókin mun án efa gegna
hlutverki þar og vera góð landkynning.“
Bókin er í gefin út af Image Publishing Ltd. í
Helsinki sem hefur áður gefið út fjölda ferðabóka.
Bækurnar þykja þær bestu þar í landi í þessum flokki
og eru afar vinsælar. Bækurnar eru óvenjulegar að
því leyti að þær eru ekki bara þurr upptalning á
gistimöguleikum og stöðum til að skoða, heldur er
einnig fjallað um menningu landins og reynt er að
kafa í þjóðarsálina. Af þessum sökum eru þeir margir
sem vilja lesa þær án þess að vera endilega á leið til
viðkomandi lands.
„Við ferðuðumst um landið í um fjóra mánuði
síðasta sumar auk þess að vera um tvo mánuði í
kringum jólin,“ segir Björgvin. „Fórum um landið
þvert og endilangt, ókum um 14.000 kílómetra og
gengum heilmikið um hálendi sem láglendi. Styrkur
bókarinnar er sá að við sjáum hlutina bæði frá
sjónarhóli útlendingsins og heimamannsins og náum
þannig meiri dýpt. Ég gat útskýrt hluti sem margir
útlendir ferðabókahöfundar misskilja eða ná aldrei að
fjalla um og Satu gat bent mér á hluti sem ég sá ekki
vegna þess hversu náinn ég er eigin samfélagi. En í
stuttu máli þá eru flestar upplýsingar í bókinni frá
fyrstu hendi, efnis aflað af okkur á ferð um landið í
samtölum við fólk. Í bókinni eru líka viðtöl við ýmsa
Íslendinga og má þar sem dæmi nefna Vigdísi
Finnbogadóttur, Andra Snæ og Vigdísi Grímsdóttur.“
Björgvin vonar að Finnarnir fjölmenni til Íslands í
sumar. „Ég held að bókin sé kærkomin og ég veit að
eftir henni hefur verið beðið. Svo er evran svo
stöndug miðað við krónuna að næsta sumar verður
líklega ódýrasta sumarið í langan tíma á Íslandi fyrir
fólk sem hefur evrur á milli handanna.“
gunnarh@frettabladid.is
Finnar líkastir okkur af
Norðurlandaþjóðunum
ÍSLAND FRÁ SJÓNARHÓLI HEIMAMANNS OG GESTS Björgvin
Hilmarsson og Satu Rämö ferðuðust vítt og breitt í efnisöflun.
MONDO MATKAOPAS
ISLANTI Allt sem þú vilt vita
um Ísland á finnsku.
NÝR RITSTJÓRI Erlingur Grétar Einarsson
tók sér leyfi frá Listaháskólanum til að
ritstýra Myndum mánaðarins. Hann
ætlar að hafa meira af viðtölum en
slúðri í blaðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég tók við starfinu um miðjan
maí eftir að fyrri ritstjóri
tímaritsins flutti til útlanda,“
segir nýr ritstjóri Mynda mánað-
arins, Erlingur Grétar Einarsson.
Líkt og glöggir lesendur hafa
tekið eftir hefur tímaritið
Myndbönd mánaðarins tekið
nokkrum breytingum og fengið
bæði nýtt útlit og nafn og heitir
nú Myndir mánaðarins. Hinn nýi
ritstjóri tímaritsins, Erlingur
Grétar, segir að það eigi eftir að
koma betur í ljós hvort blaðið taki
frekari breytingum. Hann telur
þó að kvikmyndahluti blaðsins
bjóði upp á ýmsa möguleika og
það stendur til að gera hann að
öflugu kvikmyndablaði þar sem
áherslan verði á skemmtileg
viðtöl en ekki á slúður. ,,Þetta
verður almennt kvikmyndablað
fullt af viðtölum og fréttum úr
kvikmyndaheiminum. Þetta
verður jafnframt fyrsta kvik-
myndablaðið á Íslandi,“ segir
Erlingur um hið nýja tímarit.
Myndir mánaðarins hefur verið
gefið út mánaðarlega síðastliðin
þrettán ár og fæst ókeypis á öllum
myndbandaleigum.
Á meðan Erlingur gegnir
ritstjórastarfinu hefur hann
ákveðið að taka sér námsleyfi frá
Listaháskóla Íslands þar sem
hann stundaði nám. Erlingur
hefur einnig stundað nám í ensku
og kvikmyndafræði við Háskóla
Íslands og skrifar kvikmynda-
gagnrýni fyrir tímaritið Mónitor.
- sm
Fleiri viðtöl og
minna slúður
Götublaðið Grapevine heldur upp
á fimm ára afmæli sitt á föstu-
daginn með því að gefa út
sérstakt afmælisblað. „Þema
blaðsins er talan fimm og því
fengum við fimm gestaritstjóra,“
segir Sveinn Birkir Björnsson,
ritstjóri Grapevine. „Þeir ritstýra
fimm blaðsíðum hver og fjalla um
töluna fimm út frá ýmsum
sjónarhornum.“
Gestaritstjórarnir eru Pétur
Blöndal, blaðamaður á Moggan-
um, myndlistarkonan Sara Riel,
ljósmyndarinn Silja Magg,
Bergur Ebbi Benediktsson úr
Sprengjuhöllinni og Barði
Jóhannsson, kenndur við Bang
Gang. Á afmælinu verður einnig
kynnt til sögunnar nýtt útlit á
blaðinu, ný heimasíða og nýtt
lógó. Sveinn Birkir er þriðji
ritstjóri Grapevine, tók við af
Bart Cameron fyrir tveimur
árum. Rithöfundurinn Valur
Gunnarsson var fyrsti ritstjórinn.
„Mesta breytingin er að fólk
þekkir blaðið núna,“ segir Sveinn
Birkir. „Þegar ég hringdi í fólk
fyrir tveimur árum þurfti ég
alltaf að nota fyrstu fimm
mínútur samtalsins í að útskýra
fyrir því hvað Grapevine væri.“
- glh
Fimm rit-
stjórar á
Grapevine
FIMM ÁRA AFMÆLI Í NÆSTU VIKU
Sveinn Birkir Björnsson, ritstjóri Grape-
vine.
TOPP FIMM Á ÍSLANDI AÐ MATI BJÖRGVINS OG SATU
1. Taka sundprett eða liggja bara í leti í náttúrulegri
heitri laug.
2. Gönguferð um hálendið, Laugavegurinn er heims-
klassagönguleið og svæðið í kringum Borgarfjörð eystri
er frábært til gönguferða.
3. Kíkja á nokkur af hinum afar sérstæðu söfnum sem
finna má á Íslandi. Galdrasafnið á Hólmavík kemur
fyrst upp í hugann.
4. Við mælum sérstaklega með því að fólk kíki á ein-
hverja smábæjarhátíð úti á landi og get ég nefnt Aldrei
fór ég suður á Ísafirði sem gott dæmi.
5. Í Reykjavík mælum við með Kaffibarnum ef fólk vill
út á lífið og svo má ekki klikka á að fá sér eina með
öllu!
Borgarbúar
og bæjargestir!
og allir í fjölskyldunni fá ókeypis dagpassa
í hverri heimsókn í heilt ár.
Góða skemmtun!
Nú kostar fjölskylduárskortið
bara12.500 krónur
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Hafrafelli v/Engjaveg
104 Reykjavík
Sími: 5757 800
Opið alla daga
10.00 – 18.00
www.mu.is