Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 2
2 2. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR VIÐSKIPTI Samþykkt var á hlut- hafafundi 365 í gær að taka félagið af markaði. Skömmu síðar var þess formlega farið á leit við Kauphöllina. Þá var enn frem- ur samþykkt að stjórn 365 verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa sem þess óska á genginu 1,2 krónur á hlut fyrir 11. júlí næstkomandi. Almennt hefur lítil velta verið með bréf 365 og verðmyndun lítil. Þá fékk stjórnin í gær heimild til að kaupa allt að fimmtán prósent eigin hluta, að því er fram kemur í tilkynningu. 365 varð til með skiptingu Dagsbrúnar í tvö rekstrarfélög í nóvember fyrir tveimur árum. Hitt félagið er Teymi. - jab Kauphallarfélögum fækkar: Samþykkt að afskrá 365 ARI EDWALD, FORSTJÓRI 365 VIÐSKIPTI „Það stefnir ekki í nein- ar fjöldauppsagnir vegna sam- einingarinnar. Viðskiptavinir okkar munu hitta fyrir sömu starfsmennina,“ segir Guðmund- ur Hauksson, forstjóri Spron. Tilkynnt var um sameiningu Kaupþings og Spron í gær. Í frétt til Kauphallarinnar segir að nú um stundir þurfi að auka áherslu á hagræðingu og hagkvæmni í rekstri fjármálafyrirtækja. „Á þessu stigi er allt of snemmt að segja nokkuð um hugsanlega hagræðingu. Við lítum svo á að við höfum lokið tilteknum áfanga í þessari sameiningu,“ segir Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi. Guðmundur Hauksson hélt fund með starfsfólki á Hilton- hótelinu í gær. Fullt var út úr dyrum. „Það er gott hljóð í fólkinu. Biðin hefur skiljanlega verið óþægileg,“ sagði Guðmundur eftir fundinn. Tæplega þrjú hundruð manns vinna hjá Spron sem rekur sjö útibú og afgreiðslustaði á höfuð- borgarsvæðinu. Kaupþing kaupir í raun Spron og greiðir fyrir 40 prósent með hlutabréfum í sjálfu sér og hin 60 prósentin með hlutum í Existu. Kaupverðið er þrjár krónur og 83 aurar á hlut, sem jafngildir gengi hlutabréfa í Spron í Kauphöllinni í fyrradag, að viðbættu fimmtán prósenta álagi. Í heildina nemur kaupverðið rúmum nítján millj- örðum króna. „Verðið er ágæt niðurstaða fyrir báða,“ segir Ingólfur. „Hverjum þykir sinn fugl fagur, en við getum vel við unað,“ segir Guðmundur. Markaðsvirði Spron í sumar nam 80 milljörðum króna um stíma en hefur farið lækkandi síðan. Hagnaður Spron undanfarin misseri hefur helst komið til af hlutabréfaeign, en reksturinn verið erfiður. Var þetta björgun- araðgerð af hálfu Kaupþings? „Alls ekki,“ segir Ingólfur. Þetta séu tvö öflug fyrirtæki. Því er ekki að leyna að það hafa verið hræringar á alþjóðlegum fjár- málamörkuðum en í því felast líka tækifæri til að styrkja ein- ingarnar.“ Útibú hvors banka um sig verða áfram rekin undir eigin merkjum. Sameiningin er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppn- iseftirlitsins og hluthafafundar Spron sem haldinn verður í ágúst. Sjálfseignarstofnunin Spron- sjóðurinn er stærsti hluthafinn í Spron. Exista er stærsti hluthaf- inn í Kaupþingi, en Bakkavarar- bræður eru langstærsti hluthaf- inn í Existu. Kaupþing rekur tólf útibú á höfuðborgarsvæðinu. Starfs- menn Kaupþings eru yfir 3.300. ingimar@markadurinn.is Engar fjöldaupp- sagnir hjá Spron Kaupþing kaupir Spron fyrir nítján milljarða króna. Sátt er um verðið, sem er fjórðungur af markaðsvirði Spron í sumar. Stefnt að hagræðingu en engar fjölda- uppsagnir í undirbúningi. Báðir bankar verða áfram reknir hvor í sínu lagi. STARFSMENN SPRON Fullt var út úr dyrum á Hilton-hótelinu síðdegis í gær þegar starfsmönnum Spron var kynntur samruninn við Kaupþing. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Helga, hefur ferðamanna- straumurinn ekki verið stíflaður? „Nei, hann hefur verið virkjaður.“ Kárahnjúkavirkjun er orðin að vinsælum áfangastað ferðamanna. Helga Jónsdóttir er bæjarstýra Fjarðabyggðar. PORTÚGAL, AP Ríkissaksóknari Portúgals segir of snemmt að segja hvort rannsókninni á hvarfi bresku stúlkunnar Madeleine McCann verði alveg hætt. Lögreglan í Portúgal hefur lagt fram lokaskýrslu sína um rannsóknina, sem staðið hefur yfir í fjórtán mánuði. Saksóknarar muni skoða skýrsluna og meta hvort þar séu einhverjir lausir endar sem vert er að rekja lengra. Tvö dagblöð í Lissabon höfðu eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar að til stæði að hætta rannsókn málsins fyrir 14. júlí, þegar hefðbundinn frestur sem halda má leynd yfir rannsókninni rennur út. Komi nýjar vísbending- ar fram verði hægt að opna málið á ný. - aa Leitin að Madeleine: Rannsókninni verður hætt MENNING „Nei, ég get ekki tekið undir það nákvæmlega,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra, spurð hvort þjónustu- samningur milli ríkis og Ríkis- útvarps hafi verið brotinn af hálfu ríkisins. Samkvæmt honum þyrfti að hækka afnota- gjöld mikið, en í rekstur RÚV vantar 400 milljónir. „Við skulum nú bíða og sjá hvort það verða 400 milljónir,“ segir hún, án þess að vilja útskýra það nánar. Í þjónustusamningnum standi að rauntekjur af afnotagjöldum eigi að fylgja tekjum frá árinu 2006, sem þau hafa ekki gert. „En það má deila um hvernig við nálgumst þá hluti,“ segir ráðherra. - kóþ Menntamálaráðherra: Ekki nákvæmt brot á samningi ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR UMHVERFISMÁL „Fyrst Össur vísar til umræðu á þingflokksfundum, sem við gerum almennt ekki í Samfylkingunni, get ég sagt að þar var ekki verið að taka neina ákvörðun [um viljayfirlýsingu um álver á Bakka],“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráð- herra. Um margt sé rætt opinskátt á þingflokksfundum, en iðnaðarráð- herra beri einn ábyrgð á sínum embættisfærslum. Þannig svarar Þórunn, spurð hvort rétt sé að hvorki hún né aðrir í þingflokki Samfylkingar hafi æmt né skræmt undan áform- um Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra um að fram- lengja fyrrnefnda viljayfirlýs- ingu. Össur hefur bent á að enginn hafi mótmælt á þingflokksfundi, þar sem málið var kynnt, þegar hann var spurður hvort eining ríkti um álverið innan þing- flokksins. Spurður enn, hvort Þórunn hefði verið á fundinum, staðfesti iðnaðarráðherra það. „Á þessum fundi var rætt almennt um hvað væri í pípun- um,“ segir Þórunn. „En það er af og frá að það hafi verið lögð ein- hver blessun yfir þetta,“ segir hún. - kóþ Umhverfisráðherra lagði ekki blessun sína yfir álver á Bakka: Iðnaðarráðherra ber ábyrgð ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR Umhverfisráðherra segir „af og frá“ að hún hafi lagt blessun sína yfir álver á Bakka þótt hún hafi ekki mótmælt sér- staklega, þegar iðnaðarráðherra kynnti viljayfirlýsingu um það. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR STJÓRNMÁL Nærri sjötíu prósent íslensku þjóðarinnar eru óánægð með viðbrögð ríkisstjórnarinnar og seðlabankans við versnandi efnahagsástandi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Þetta kom fram í fréttatíma Ríkis- sjónvarpsins í gær. Þá hefur stuðningur við ríkisstjórnina minnkað sjöunda mánuðinn í röð og er nú 52 prósent. Fylgi Sjálfsstæðisflokks mælist 33 prósent og fylgi Samfylkingar 30 prósent. Vinstri grænir njóta nú um 25 prósenta fylgis, Framsóknarflokkur níu prósenta og Frjálslyndi flokkurinn fjögurra. - ges Ósætti við efnahagsmálin: Fylgi við ríkis- stjórnina fellur STJÓRNMÁL Sterkur orðrómur er uppi um að Samfylking muni slíta ríkisstjórnarsamstarfinu og láta efna til nýrra kosninga. Þetta segir Robert Wade, hagfræðingur við London School of Economics, á vefriti Financial Times í gær. Lúðvík Bergvinsson, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, vísar þessu á bug. „Það hefur ekkert komið enn upp sem geri það að verkum að einhver fótur væri fyrir þessum orðróm.“ Wade rekur í grein sinni núverandi efnahagserfiðleika að miklu leyti til þess að illa hafi verið staðið að einkavæðingu bankanna. - gh Financial Times: Spáir stjórnar- slitum á Íslandi LANDSMÓT „Veðrið er svakalegt. Hér er allt gjörsam- lega á tjá og tundri,“ segir Daníel Ben Þorgeirsson, ritstjóri hestafrétta. „Það er töluvert af fólki að yfirgefa svæðið enda varla stætt fyrir vindi. Ég hef farið á landsmót í fjórtán ár og aldrei kynnst öðru eins. Það sést varla á milli tjalda fyrir sandi og moldarroki. Stóra veitingatjaldið á svæðinu, sem er fjögur til fimm þúsund fermetrar var í stórhættu en slapp eins og reyndar öll sölutjöldin. Hópurinn er samheldinn og allir lögðust á eitt við að bjarga þessu.“ Daníel segir það vekja undrun sína að mótshaldarar skuli ekki hafa stöðvað keppnishald. „Það er verið að keyra knapana áfram í óveðri á rándýrum hestum fyrir framan tómar stúkur. Þetta finnst mér vera til skammar.“ Árni Kristjánsson hjá Flugbjörgunarsveitinni Hellu tók í sama streng. „Þetta var náttúrlega skelfilegt ástand um tíma. Við fórum í að reyna að bjarga tjöldum en þau fuku hægri vinstri og rifnuðu. Þarna voru tjaldvagnar sem höfðu rifnað í tvennt.“ Hann segir björgunarsveitirnar hafa verið fljótar á staðinn þegar veður tók að versna. Spáð var stormi á hálendinu og suðaustan til fram eftir nóttu í gær. - ges Óveður á Landsmóti hestamanna á Hellu: Allir lögðust á eitt til björgunar HVASST Á LANDSMÓTI Aðeins var farið að hvessa á Landsmóti hestamanna í gærdag en þegar kvölda tók þurfti björgunar- sveitir til að bjarga tjöldum frá því að fjúka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.