Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 30
22 2. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is Í kvöld mun Logi Bergmann halda í sólarhrings ferð hringinn í kring- um landið. Á ferðinni ætlar hann að spila átján holur á átján golf- völlum til styrktar MND-félaginu. Með honum í för verða Íslands- meistararnir Þorsteinn Hallgríms- son og Ragnhildur Sigurðardóttir og popparinn Eyjólfur Kristjáns- son. Logi og Ragnhildur á móti Eyfa og Steina. Það er svo Þorvaldur Lúðvíksson sem sér um að fljúga með hersinguna milli staða en einnig verður notast við annan ferðamáta. Hringferð Loga hefst í dag > VILL NÝJA HÚÐ Pharell Williams er kominn með leið á tattúver- uðum líkama sínum og er tilbúinn að eyða meira en hundrað þúsund dollurum í nýja húð. Á stofnun sem kallast Wake For- est í Norður-Karólínu í Bandaríkjun- um hyggst Pharell láta sauma á sig nýja húð sem stofnunin ræktar út frá sýni af hans eigin húð. „Ég er með eld tattúveraðan á handleggina á mér, svo þetta verður alveg þess virði. Þegar ég verð búinn að jafna mig eftir að þeir hafa saum- að nýju húðina á get ég fengið mér hvaða tattú sem er.“ Ungmenni úr Topp starfi Hins hússins héldu veglegt lokapartí síðastliðinn föstu- dag. Síðastliðnar sex vikur hafa krakkarnir, sem eru á aldrinum 16-25 ára, starfað á hinum ýmsu vinnustöðum við góðan orðstír. Það var mikið um dýrðir í Hinu hús- inu þar sem boðið var upp á grill og frumsamin skemmti- atriði meðal annars. Ingó og nokkrir meðlimir Veðurguð- anna komu svo og tóku lagið og féll það í góðan jarðveg. Ljósmyndari Fréttablaðsins fór á staðinn og fangaði stemninguna. - shs Gleði og gaman í Topp starfi KÁTÍNA Egill og Arna voru kát í partíinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELMVEÐURGUÐIRNIR Ingó fór á kostum í Hinu húsinu ásamt félögum sínum úr Veðurguðunum. Lily Allen er sögð vilja taka upp dúett með leikkonunni Lindsay Lohan fyrir aðra breiðskífu sína. Lagið sem stöllurnar koma til með að syngja saman heitir Wherever We Go, en samkvæmt heimildum tímaritsins New eru aðdáendur Lily ekki spenntir fyrir samstarf- inu og óttast að það muni hafa slæm áhrif á tónlistarferil hennar. Lily kynntist Lindsay fyrir stuttu þegar hún hitti hana ásamt meintri kærustu hennar Samönthu Ronson í Los Angeles, en Sam- antha er systir upptökustjórans og tónlistarmannsins Mark Ronson sem átti stóran þátt í fyrstu plötu Lily Allen. Lily og Lindsay syngja dúett LINDSAY LOHAN Hefur reynt fyrir sér í tónlistinni með- fram leiklistarferlinum. ÖNNUR PLATA Í VINNSLU Aðdáendur Lily Allen hafa beðið í ofvæni eftir annarri plötu frá söng- konunni, en eru ekki hrifnir af meintu samstarfi hennar með Lindsay Lohan. AKRANES kl. 20.30 SELTJARNAR- NES kl. 22.00 ÞINGEYRI kl. 23.30 ÍSAFJÖRÐUR kl. 00.30 SAUÐÁRKRÓKUR kl. 02.00 AKUREYRI kl. 03.30 DALVÍK kl. 05.00 HÚSAVÍK kl. 06.30 NESKAUP- STAÐUR kl. 08.00 EGILSSTAÐIR kl. 09.30 HÖFN kl. 11.00 VESTMANNAEYJAR kl. 12.30 SELFOSS kl. 14.30 BORGARNES kl. 19.00. KEFLAVÍK kl. 15.30 KEILIR kl. 16.30 ODDUR kl. 17.30 GRAFARHOLT kl. 18.30 LOGI OG HRINGURINN Fer hringinn á einum sólarhring á flugvél og bíl

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.