Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. júlí 2008 23
Einhver þekktasti ljós-
myndari landsins, Páll
Stefánsson, varð beinlínis
stúmm þegar hann var vak-
inn upp af lögreglu í gær-
morgun og leiddur niður á
bílaplan þar sem gat að líta
bíl hans í lausu lofti.
„Þetta var hroðaleg
aðkoma. Og sérstaklega
leiðinlegt er að þennan
morgun ætluðum við
dóttir mín, sem er 17
ára, að fara niður á lög-
reglustöð, sækja skír-
teinið hennar og fara í
fyrsta bíltúrinn. Já,
þetta er súrt,“ segir
Páll Stefánsson
ljósmyndari.
Páll var vakinn
upp af lögreglu korter í átta
í gærmorgun. Þá hafði ein-
hver tilkynnt um bíl nán-
ast í lausu lofti sem
reyndist bíll Páls,
tveggja ára Volks-
wagen GTI. „Já,
hann stóð upp á
endann. Þetta
er tjón upp á
um 600 þús-
und. Og trygg-
ingarnar bæta
það ekki,“ segir
Páll. Lögreglan
tjáði honum jafn-
framt að ekki
væri algengt að
dekkjum og felg-
um væri stolið
með þessum hætti. Það sem gerir
þennan þjófnað sérstaklega bír-
æfinn er að bíllinn stendur við til-
tölulega fjölfarin gatnamót eða
við Dalbraut og Selvogsgrunn þar
sem Laugarásvídeó er.
„Ég er nánast viss um að þetta
hefur verið pantað. Því felgurnar
eru sérstakar. Fjórar rær halda
þeim auk einnar sem á þarf sér-
stakan lykil til að opna. Og þjófarn-
ir hafa haft einn slíkan meðferð-
is.“
Páll segir felgurnar sérstakar,
þær eru sérlega stórar vegna
stærri bremsuklossa en gengur og
gerist. „Sá sem kaupir þýfið getur
ekki um frjálst höfuð strokið því
ég þekki hverja rispu á þessum
felgum og myndi þekkja þær sam-
stundis sjái ég þær aftur,“ segir
Páll sem býður fram fundarlaun
ef einhver getur orðið til að benda
á hvar þær eru niðurkomnar. „Lög-
reglan sagði bara „shit happens“
en ég geri ráð fyrir því að hún
muni rannsaka málið.“ Páll segist
aðspurður ekki þekkja hvort menn
hafi ráð með að selja felgur og
dekk sem þessi úr landi. Og telur
vænlegast fyrir þjófana að skila
fengnum því ekki sé eins og um
milljóna samfélag sé að ræða hér
á Íslandi. jakob@frettabladid.is
Ljósmyndari fórnarlamb
bíræfinna dekkjaþjófa
BÚIÐ AÐ HREINSA UNDAN BÍLNUM Það sem gerir þjófnaðinn einkar ósvífinn er að bíllinn stendur við fjölfarin gatnamót.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL
PÁLL STEFÁNSSON
Fór ekki í fyrsta
bíltúrinn með
dóttur sinni,
sem er nýkom-
in með skírteini,
á VW GTI eins og
til stóð.
FELGA PÁLS Svona líta dekkin út sem
þjófarnir höfðu á brott með sér.
Skipuleggjend-
ur Wild in the
Country-
hátíðarinnar
eru mjög
vonsviknir yfir
því að Björk
hafi hætt við að
spila á hátíðinni.
Tónleikarnir áttu að fara fram
laugardaginn 5. júlí og áttu að
vera eina uppákoma Bjarkar í
Englandi á þessu ári. Björk hætti
við í síðustu viku og bar fyrir sig
að skipuleggjendunum hefði ekki
tekist að skaffa nauðsynlegan
tækjabúnað. Í fréttatilkynningu
sögðu skipuleggjendurnir að þeim
þætti þetta mikill missir og sverja
af sér allt klúður með tækjamál.
Björk hættir
við England
BJÖRK
GUÐMUNDSDÓTTIR
Mary-Kate Olsen hefur tryggt
fataskápinn sinn fyrir 158 milljón-
ir. Leikkonan á víst svo stórt og
mikið safn af flíkum og skóm eftir
stærstu hönnuði heims að hún
hefur ákveðið að tryggja það ef ske
kynni að því yrði rænt eða að
flíkurnar eyðilegðust. Mary-Kate
og tvíburasystir hennar, Ashley,
eru oft á lista yfir best klæddu
konur heims. „Mary-Kate á
Chanel-tösku sem kostar um þrjár
milljónir, flest fötin hennar kosta
ekki minna en tvö hundrað þúsund
krónur,“ var haft eftir heimildar-
manni. Það er því engin furða að
stúlkan tryggi sig gegn saum-
sprettum og lykkjuföllum.
Tryggir fata-
skápinn sinn
MARY-KATE Veit að maður tryggir ekki
eftir á.
Leikkonan
geðþekka, Sarah
Jessica Parker,
íhugar nú að
taka að sér
aðalhlutverk í
nýrri kvikmynd,
The Ivy
Chronicles.
Kvikmyndin
mun fjalla um einstæða móður,
Ivy Ames, sem missir hálaunaða
vinnu sína og verður í kjölfarið að
gefa fyrri lifnaðarhætti upp á
bátinn og lifa samkvæmt efnum.
Söguhetjan Ivy Ames nær þó fljótt
tökum á þessu nýja lífi sínu en
tíminn einn mun leiða í ljós hvort
hún verði ungum einstæðum
mæðrum eins mikil fyrirmynd og
Carrie með tískuna. Ef samningar
nást verður þetta fyrsta kvikmynd
Söruh Jessicu eftir sumarsmellinn
Sex and the City.
Einstæð Sarah
Strákarnir í Sigur Rós þurfa ekki
að kvarta yfir dómum sem nýja
platan þeirra hefur fengið, þeir
eru vel yfir meðaltali. Miðað við
samantekt Metacritic sem byggir
á sautján plötudómum fær platan
8,1 í meðaleinkunn. Ísbjarnadráp
Íslendinga blandast inn í dóm
sem Mark Prindle skrifar á síðu
sína. „Þar til Íslendingar hætta að
drepa alla sætu ísbirnina sem
rekur upp á strendur landsins
fær Sigur Rós ekki meira en sex
af tíu í einkunn,“ skrifar Mark og
telur Sigur Rós ábyrga fyrir
dauðu björnunum. „Þeir drepa
ísbjörn í miðju laginu „Fljótavík“.
Af hverju? Það er kominn tími til
að einhver kenni Sigur Rós um
óbreytileg tengsl mannsins og
hinna göfugu skepna Móður
jarðar.“
Mark hefur birt plötudóma á
netinu síðan 1996 og þykir nokkuð
fyndinn.
Kennt um
ísbjarnadráp
ÍSBJARNAMORÐINGJAR? Öllu lendir nú
Sigur Rós í.