Fréttablaðið - 02.07.2008, Síða 4
4 2. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
KJARAMÁL Fátt var um svör við spurningum um
kjaramál heilbrigðisstétta, og sérstaklega samn-
inga ljósmæðra, hjá ráðherrum eftir ríkisstjórnar-
fund í gær.
Að loknum ríkisstjórnarfundi var Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra spurð um
efndir á stjórnarsáttmálanum, í ljósi kjaradeilna
og uppsagna um helmings ljósmæðra á landinu.
Sáttmálinn kveður á um að laun hefðbundinna
kvennastétta verði „endurmetin“ sérstaklega með
tilliti til þess að minnka óútskýrðan kynbundinn
launamun.
Vísaði Jóhanna til nefnda sem ættu að skila
niðurstöðum í haust. Þegar hún var spurð hvers
vegna ekki væri farið í þetta strax sagði hún: „Við
þurfum bara meiri tíma.“ Annars vildi hún ekki
svara spurningum um kjaraviðræðurnar. Þetta
væri á könnu heilbrigðisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
segir hins vegar að kjaramál séu á hendi fjármála-
ráðherra. „En auðvitað vildi maður sjá niðurstöðu í
þessi mál sem fyrst.“
Geir Haarde forsætisráðherra upplýsti að
ríkisstjórn hefði ekki rætt kjaradeilur á fundinum.
„En við treystum því að það verði hægt að ná
skynsamlegum og ábyrgum samningum við alla,“
sagði hann. Um hvort ekki væri kjörið tækifæri að
standa við stjórnarsáttmálann með því að gera vel
við ljósmæður sagði Geir: „Svona spurningum
verður að svara við samningaborðið og ég er ekki í
samninganefndinni.“
Um hvort skilaboðum um sérstakar bætur til
ljósmæðra hefði verið komið til samninganefndar
ríkisins, benti Geir á fjármálaráðherra. Hann sæi
um þau samskipti. Geir vildi svo ekki ræða meira
um þetta.
Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði að lokum
að kjarasamningar væru „ekki til umræðu“ milli
hans og fjölmiðla.
Hann benti á orð félagsmálaráðherra, sem hefðu
sagt allt sem segja þyrfti. Jóhanna Sigurðardóttir
hefur helst sagt að í haust verði lögð fram áætlun
um að bæta kjör kvennastétta. klemens@frettabladid.is
SIMBABVE, AP Talsmenn stjórnar-
andstöðunnar í Simbabve tóku í
gær harða afstöðu til hugsanlegra
viðræðna við ríkisstjórn Roberts
Mugabe um einhvers konar sam-
komulag um að deila völdum. Sögðu
þeir Mugabe sjálfan hafa lokað
fyrir þann möguleika með því að
halda því til streitu að láta fara
fram marklausa úrslitaumferð for-
setakosninga.
Talsmenn hjálparsamtaka vör-
uðu við því í gær að milljónir
Simbabvebúa ættu á hættu að
svelta heilu hungri ef stjórnvöld
afléttu ekki banni við starfsemi
hjálparstofnana í landinu. Stjórnar-
liðar hafa sakað starfsmenn sjálf-
stæðra hjálparsamtaka um stuðn-
ing við stjórnarandstöðuna, en
þeim ásökunum hafa hjálpar-
samtökin vísað á bug. Tendai Biti,
einn fremsti leiðtogi stjórnarand-
stöðuflokksins MDC sem stjórn-
völd hafa reynt að „taka úr umferð“
með því að birta honum landráða-
ákæru, sagði í yfirlýsingu frá
Harare í gær að ekkert væri hæft í
vangaveltum um að flokkur hans
og stjórnarflokkurinn ZANU-PF
væru í þann mund að hefja viðræð-
ur um stjórnarsamstarf. „Ekkert
gæti verið fjær sanni,“ sagði Biti.
Talsmaður Mugabes sagði í gær
að maðurinn sem farið hefur fyrir
landinu í 28 ár myndi ekki víkja og
sagði að vestrænir gagnrýnendur
sem slægju rýrð á endurkjör hans
gætu farið og „hengt sig“. - aa
HVIKAR HVERGI Robert Mugabe á
leiðtogafundi Afríkuríkja sem lauk í
Egyptalandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vangaveltur um viðræður milli stjórnar og stjórnarandstöðu í Simbabve:
Mugabe lokaði á viðræður
SJÁVARÚTVEGUR Það er auðvitað
hneyksli hvernig sjávarútvegsráð-
herra sker niður,“ segir Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins. „Þetta er
enn ein harkaleg
árás á sjómenn,
fiskverkafólk og
sjávarbyggðir sem
mun hafa enn meiri
áhrif en í fyrra. Það
er kreppa af manna-
völdum í sjávar-
byggðum.“
Guðni segir
Framsóknarflokkinn hafa talið að
þorskaflinn ætti að vera 150
þúsund tonn. „Sjávarútvegsráð-
herra og ríkisstjórnin tóku ranga
ákvörðun í fyrra með því að draga
þorksaflann niður,“ segir hann. -
vsp / gh
Guðni Ágústsson:
Aðför að sjávar-
byggðum
FRAKKLAND, AP Yfirmaður franska
hersins hefur sagt af sér í kjölfar
hörmulegs atviks sem varð við
heræfingarsýningu í Suður-
Frakklandi um helgina. Á
æfingunni var skotið alvöruskot-
um í stað púðurskota með þeim
afleiðingum að 17 manns hlutu
skotsár, þar á meðal þrjú ung
börn.
Nicolas Sarkozy Frakklandsfor-
seti hefur fallist á afsögn Brunos
Cuche hershöfðingja, að því er
segir í tilkynningu frá forseta-
embættinu.
Sjúkrahúsyfirvöld sögðu ekkert
fórnarlambanna vera lengur í
lífshættu. - aa
Eftirmál skotæfingarslyss:
Hershöfðingi
segir af sér
SJÁVARÚTVEGUR „Þó ég hafi samúð
með því sjónarmiði að vera í efri
mörkum annars staðar en í þorski
þá er talsvert umhugsunarefni að
veiðin í velflestum nytjastofnum
er nokkuð umfram
tillögur Hafrann-
sóknastofnunar,“
segir Steingrímur
J. Sigfússon,
formaður Vinstri-
grænna.
Hann segir
sérstaklega gengið
hart að ýsunni
vegna ástandsins í
þorskinum og í það heila sé ekki
bjart yfir þessu.
„Þetta minnir okkur alltaf á að
við vitum ekki nóg. Það vantar
fjármuni í rannsóknir og sérstak-
lega í að rannsaka samspil
umhverfisþátta. Okkur vantar
traustari vísindalegan grunn.“ -vsp
Steingrímur J. Sigfússon:
Vantar peninga
í rannsóknir
SJÁVARÚTVEGUR „Þessar niðurstöður
gefa okkur tilefni til að stórauka
þorskeldi,“ segir
Karl V. Matthías-
son, þingmaður
Samfylkingarinnar
og varaformaður
sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd-
ar Alþingis.
Karl telur að
eldisþorskur sé
miklu betri en enginn þorskur eins
og virðist stefna í. Stórauka þurfi
allar rannsóknir innan Hafrann-
sóknastofnunar. Hann segir
niðurstöðurnar stundum virka á sig
eins og fálm. „Ég spyr mig, hvað
veldur? Það sem mér finnst vera
skrýtið er ósamræmið milli
langflestra sjómanna sem ég tala
við sem tala um gnægð af fisk á
meðan allt annað kemur frá
Hafrannsóknastofnun.“ -vsp
Karl V. Matthíasson:
Tilefni til að
auka fiskeldi
SJÁVARÚTVEGUR „Ég er algjörlega
ósammála stefnu sjávarútvegsráð-
herra,“ segir Guðjón A. Kristjáns-
son, formaður
Frjálslynda
flokksins.
Guðjón segist
ósammála því
hvernig Hafrann-
sóknastofnun hefur
unnið úr þessu
síðustu tvö til þrjú
árin og segist hafa
viljað töluvert
meiri þorskveiði. „Við hefðum átt
að keyra á 220.000 tonna jafnstöðu-
afla til þriggja ára,“ segir Guðjón.
Hann segir Íslendinga vera í 25
ára fari sem er algjörlega
ómögulegt. „Allir fiskimenn eru
sammála um að það sé miklu meiri
fiskur en menn hafi séð í langan
tíma áður,“ segir Guðjón. -vsp
Guðjón A. Kristjánsson:
Vill 220.000
tonna afla
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
26°
23°
21°
22°
19°
21°
33°
29°
31°
31°
31°
31°
30°
23°
30°
31°
20°
Á MORGUN
Suðaustlæg, 5-10 m/s.
FÖSTUDAGUR
Hæg breytileg átt.
12
18
15
14
13
12
12
15
16
17
15
20
8
6
5
7
6
8
10
13
8
6
7
16
17
16
13
16
1417
15
17
1220 20
BATNANDI VEÐUR
Það verður heldur
skaplegra veður
víðast hvar á land-
inu í dag en var
í gær. Það lægir
talsvert næstu
daga og einnig má
búast við háum
hitatölum víða um
landið. Horfur eru
á að hitinn fari enn
hækkandi með
föstudeginum.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
Ekki benda á mig,
segja ráðherrar
Ráðherrar bentu hver á annan í gær, spurðir um kjaramál, ljósmæður og aðrar
heilbrigðisstéttir og stjórnarsáttmálann. Fjármálaráðherra vísaði þó til orða fé-
lagsmálaráðherra þar sem hann sagði laun kvenna ekki skoðuð fyrr en í haust.
AÐ LOKNUM RÍKISSTJÓRNARFUNDI Félagsmálaráðherra segir
heilbrigðisráðherra sjá um heilbrigðismálin. Heilbrigðisráð-
herra bendir á fjármálaráðherra og sá síðastnefndi vísar til
orða félagsmálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KJARADEILUR Í HEILBRIGÐISGEIRA
■ Um hundrað af um 200 starfandi ljósmæðrum hafa
sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín.
Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags
Íslands, segir að um hundrað ljósmæður hafi mætt
á félagsfundi á mánudag. „Það var mikill hiti og fyrst
og fremst vonbrigði í ljósmæðrum með að hafa ekki
fengið leiðréttingu núna,“ segir Guðlaug.
■ Læknar eiga í viðræðum við samninganefnd ríkisins.
Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir
að læknum hafi verið boðin 20.300 krónu hækkun.
Það hafi verið kynnt á félagsfundi á mánudagskvöld
en fellt með öllum greiddum atkvæðum. Þetta hafi
verið kynnt samninganefnd ríkisins í gærmorgun. „Það
er ekki komið neitt annað tilboð,“ segir hún.
■ Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, segist hafa átt fundi með hjúkrun-
arfræðingum víða um land. Þar hafi það verið kynnt
hvað yfirvinnubann feli nákvæmlega í sér sem skellur
á eftir rúma viku. Engan bilbug sé að finna á hjúkrun-
arfræðingum.
■ Þá eiga skurðlæknar í viðræðum við ríkið. - ghs
GENGIÐ 01.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
160,9275
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
79,33 79,71
158,62 159,4
126,01 125,66
16,801 16,899
15,661 15,753
13,24 13,318
0,7515 0,7559
130,39 130
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR