Fréttablaðið - 02.07.2008, Blaðsíða 18
[ ]Önd er tilvalið leikfang fyrir börnin að taka með sér í kvöldbaðið. Gaman er að hafa fullt af leikföngum sem barnið getur skemmt sér með í baðinu.
Sumarbúðirnar við Ástjörn
hafa starfað lengi og fjöldi
barna hefur upplifað þar ýmis
ævintýri.
„Upphaf Ástjarnar má rekja til
ársins 1945 þegar tveir menn voru
hér á ferð og fengu leyfi hjá Sig-
ríði Jóhannesdóttur, húsfreyju að
Ási í Kelduhverfi, til að reisa hér
hermannabragga sem nota skyldi
til sumardvalar fyrir íslensk
börn,“ segir Árni Hilmarsson for-
stöðumaður. Mennirnir tveir voru
enski trúboðinn Arthur Gook og
Sæmundur G. Jóhannesson, sam-
starfsmaður hans frá Akureyri.
Gook hafði fengið braggann að
gjöf frá breskum liðsforingja árið
1944.
„Sumarbúðirnar byrjuðu síðan
árið 1946 og hafa því verið hér í
rúma sex áratugi. Lengi vel voru
sumarbúðirnar bara fyrir stráka
og hétu þá Drengjaheimilið Ástjörn
en svo breyttist það sumarið 1989
og núna koma stelpur líka. Það er
bara mjög gaman að hafa stelpurn-
ar með, það er ekki spurning,“
segir Árni og kímir.
Að sögn Árna er mikið um að
systkini komi saman og styðji
hvort annað. „Stelpum og strákum
er blandað í alla flokka og við erum
með 6-12 ára flokka þannig að ald-
ursbilið er frekar breitt og það er
oft gott fyrir þessi yngri að hafa
stuðning af systkinum sínum.“
Sumarbúðirnar við Ástjörn eru á
fallegum stað nærri Ásbyrgi. Þar
dvelja drengir og stúlkur á aldrin-
um 6-12 ára og 13-16 ára unglingar.
Að jafnaði eru milli 40 og 70 börn í
sumarbúðunum í einu og hafa þau í
nógu að snúast. „Við erum í mjög
fallegu umhverfi sem er
einstaklega heppilegt fyrir sumar-
búðir. Hér er grunn tjörn, sandur
og skógur og yfirleitt veðursælt.
Með þetta umhverfi er hægt að
hafa nóg fyrir stafni og eru bátarn-
ir og tjörnin mjög vinsæl. Vinsælt
er að veiða síli í tjörninni og svo
eru alls konar leikir og keppnir
bæði inni og úti og vinsælt föndur-
herbergi,“ útskýrir Árni hreykinn
og bætir við að töluverð áhersla sé
lögð á að krakkarnir leiki sér líka
sjálfir. Sumarbúðirnar við Ástjörn
eru kristilegar sumarbúðir og hafa
verið frá upphafi og því er einnig
áhersla lögð á að kenna krökkun-
um um trúna. „Við segjum þeim
biblíusögur og syngjum heilmikið
og ef þau vilja biðja þá aðstoðum
við þau við það,“ segir Árni.
hrefna@frettabladid.is
Sumarævintýri á Ástjörn
Það er fjör á Ástjörn og hafa krakkarnir
gaman af að gantast í starfsfólkinu. Farið
er í leiki úti og inni.
Á Ástjörn er einn stærsti bátafloti sumarbúða á Íslandi og eru þar tuttugu og níu
bátar þannig að allir komast á báta í einu, bæði börn og starfsfólk. MYND/HEIDA.IS
, U U T
] L Y S
(S SHY ] L [
m
Nýjar
sumarvörur
frá LEGO á
gamla verðinu
Gling-gló ehf
Laugavegur 39
101 Reykjavík
S. 552-7682
www.glingglo.is
glingglo@glingglo.is
Útsalan
í fullum gangi!
Fæst í apótekum um land allt
Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir
viðkvæma húð ungbarna
Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E.
Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna.
Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5.
Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín.
Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt.
Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5.
Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín.
Sensitive
ungbarnalína
Útsalan
er ha n
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið í dag 10-18
Auglýsingasími
– Mest lesið