Fréttablaðið - 02.07.2008, Síða 25
SMÁAUGLÝSINGAR
MIÐVIKUDAGUR 2. júlí 2008 17
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag og breytingar á
deiliskipulagsáætlunum
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér
með auglýstar tillögur að nýjum og breyttum
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Langholtsvegur/Drekavogur
Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af
Langholtsvegi til vesturs, Drekavogi til norðurs,
opnu grænu svæði til austurs og íbúðarhúsum
við Sigluvog til suðurs. Tillagan gerir ráð fyrir að
við Langholtsveg 109-111 megi byggja inndregna
hæð ofaná núverandi byggingu og bílastæði verði
áfram 79. Á lóð númer 113 við Langholtsveg verður
lóð stækkuð um 40 m², leyft verður að byggja 91
m² inndregna hæð ofaná núverandi byggingu og
ekki leyfð neonskilti á byggingu. Á Langholtsvegi
115 verður leyft að byggja bílageymslu á tveimur
hæðum við norðurgafl hússins og að Drekavogi 4,
4A og 4B verður leyft að setja gler á svalir íbúða
og kvöð verður á lóð númer 4 um aðkomu að
leikvelli og að húsi númer 113 við Langholtsveg.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Árbæjarkirkja
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Árbæ/
Selás vegna Árbæjarkirkju. Í breytingunni
felst að stækka lóð og breyta byggingarreit
fyrir nýbyggingu safnaðarheimilis. Fyrirhugað
safnaðarheimili verður á einni til þremur hæðum
og trappast niður með landinu vestan megin við
kirkju. Göngustígur við lóðarmörk færist til vesturs
sem nemur stækkun lóðar. Aðkoma með aðföng
veður leyfileg á stígnum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hyrjarhöfðí 8
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir
Ártúnshöfða vegna lóðarinnar að Hyrjarhöfða 8. Í
breytingunni felst að gerður er nýr byggingareitur,
samsíða Funahöfða, samtals 252 m², austasti
hluti núverandi húss verður hækkaður.
Heildarbyggingamagn á lóðinni verður 1550 m²
og nýtingarhlutfall verður 0,86 eftir breytingu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Grjótháls
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hálsahverfi
vegna afmörkunar nýrrar lóðar við Grjótháls. Lóðin
er vestan við lóðina Grjótháls 8 og skal hún nýtt
undir bílgreinaþjónustu svo sem bílaþvottastöð.
Byggingar skulu vera á einni hæð og aðkoma að
lóðinni verður frá Grjóthálsi.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. júlí 2007
til og með 13. ágúst 2008. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 13. ágúst 2008. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir
með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 2. júlí 2008
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Fr
um
REYNILUNDUR Í GARÐA
Höfum fengið í einkasölu 205 fm endaraðhús við
Garðabæ. Húsið er teiknað af Albínu Þórðarson o
vel hannað. Í því eru fjögur svefnherbergi og tvæ
gólfum, arninn í stofu og glæsilegur suðurgarður.
í góðu ástandi og er staðsett innst í botnlanga. B
tvöfaldur og er sérlega rúmgóður. Verð 59,0 mill
veitir Finnbogi Hilmarsson, lögg. fasteignasali.
Auglýsingasími
– Mest lesið