Fréttablaðið - 02.07.2008, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 2. júlí 2008 27
FÓTBOLTI „Það var uppálagt hjá
okkur fyrir leik að láta dómarann
eiga sig og vera ekki í neinum
orðaskiptum við þá,“ sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA, við Frétta-
blaðið eftir 2-0 tapið gegn KR á
mánudag. Þau tilmæli virðast ekki
hafa skilað sér.
Skagamenn fengu þrjú rauð
spjöld í leiknum. Eitt þeirra var
beint rautt spjald fyrir orðbragð,
það fékk Guðjón sjálfur. „Ég var
bara að kalla Stefán í burtu,“ sagði
Guðjón.
„Stefán, það þýðir ekkert að tala
við þessi fífl, komdu þér í burtu,“
viðurkenndi Guðjón svo að hafa
sagt í hálfleiknum í viðtali á RÚV.
Vjekoslav Svadumovic fékk gult
spjald fyrir brot á Stefáni Loga
markmanni og annað gult og þar
með rautt fyrir mótmæli í kjöl-
farið. Guðjón sagði að eftir því
sem honum hefði verið sagt hefði
leikmaðurinn ekki farið í Stefán
Loga og að hann hefði svo alls ekki
verið að tala við dómarann þegar
hann blótaði og fékk þar með rautt
spjald.
„Garðar túlkaði þetta sem svo
að hann hefði verið að tala við sig.
Vjeko er varla talandi á ensku
þannig að ég veit ekki hvað fór
þarna á milli,“ sagði Guðjón.
Um fyrra gula spjaldið á Bjarna
sagði Guðjón þetta: „Þá vildi hann
að dæmt yrði leikbrot á Pétur
þegar hann fór í hnakkann á Heimi
Einarssyni. Hann spurði dómar-
ann af hverju hann dæmdi ekki á
það. Þar fékk hann gult spjald,“
sagði Guðjón.
Skagamenn hafa nú fengið sjö
rauð spjöld í níu leikjum í deild-
inni í sumar. - hþh
Skagamenn fengu þrjú rauð spjöld gegn KR, öll þeirra tengd kjaftbrúki við dómarann Garðar Örn:
Skagamenn ætluðu að láta dómarann eiga sig
FYRSTUR AF VELLI
Logi Ólafsson á hér
orðaskipti við Vjeko-
slav Svadumovic eftir
að Skagamaðurinn
fékk fyrstur þriggja
Skagamanna að
líta rauða spjaldið
í leiknum gegn KR.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI FH og ÍA voru í pottinum
þegar dregið var í fyrstu umferð
forkeppni UEFA-bikarsins í
gærdag.
FH mætir Grevenmacher frá
Lúxemborg og leikur fyrri leikinn
í Kaplakrika 17. júlí og seinni
leikinn ytra 31. júlí. KR mætti
einmitt Grevenmacher í for-
keppni UEFA-bikarsins árið 1995.
KR tapaði þá fyrri leiknum ytra
3-2 en vann seinni leikinn á KR-
vellinum 2-0 og komst áfram og
mætti Everton í framhaldinu.
ÍA mætir finnska liðinu FC
Honka og fer fyrri leikurinn fram
í Finnlandi 17. júlí en sá síðari á
Skipaskaga 31. júlí. Skagamenn
hefðu getað lent á móti Manchest-
er City en það kom þess í stað í
hlut færeyska liðsins EB/
Streymur. - óþ
Forkeppni UEFA-bikarsins:
FH og ÍA geta
vel við unað
FÍNN DRÁTTUR Bæði FH og ÍA ættu að
eiga góða möguleika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NM 16 ára landsliða kvenna:
Ísland-Danmörk 2-6
Freyja Viðarsdóttir og Silvía Rán Sigurðardóttir
skoruðu mörk Íslands. Stelpurnar spila við Þjóð-
verja í lokaleik riðilsins á morgun.
Landsbankadeild kvenna:
Valur-Fylkir 4-1
1-0 Katrín Jónsdóttir (20.), 1-1 Lizzy Karoly (56.),
2-1 Dóra María Lárusdóttir (59.), 3-1 Dóra María
Lárusdóttir (63.), 4-1 Helga Sjöfn Jóhannesdóttir
(79.).
HK/Víkingur-Breiðablik 2-5
0-1 Greta Mjöll Samúelsdóttir (32.), 0-2 Fanndís
Friðriksdóttir (64.), 0-3 Harpa Þorsteinsdóttir (67.),
0-4 Fanndís Friðriksdóttir (70.), 1-4 Berglind
Bjarnadóttir (79.), 2-4 Lidija Stojkanovic (82.),
2-5 Sigríður Björk Þorláksdóttir (85.).
Fjölnir-KR 0-5
0-1 Hólmfríður Magnúsdóttir , 0-2 Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir, 0-3 Olga Færseth, 0-4 Hrefna
Huld Jóhannesdóttir, 0-5 Hrefna Huld Jóhann-
esdóttir.
Afturelding-Keflavík 1-0
1-0 Elín Svavarsdóttir.
STAÐAN Í DEILDINNI:
Valur 8 8 0 0 33-6 24
KR 8 7 0 1 25-6 21
Stjarnan 7 4 2 1 15-6 14
Afturelding 8 3 2 3 5-6 11
Breiðablik 8 3 1 4 16-13 10
Keflavík 8 2 2 4 10-20 8
Þór/KA 7 2 1 4 10-14 7
Fylkir 8 2 0 6 6-21 6
HK/Víkingur 8 1 2 5 7-17 5
Fjölnir 8 1 2 5 5-23 5
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI Haukar mæta liði frá
Kýpur í undankeppni Meistara-
deildar Evrópu. Liðið heitir
Cyprus College en Aron Kristj-
ánsson, þjálfari Íslandsmeistar-
anna, veit ekkert um andstæðing-
inn. „Ég veit bara að landslið
Kýpur er ekki sterkt. Þetta er
góður dráttur og við eigum mjög
góða möguleika á að komast
áfram,“ sagði Aron.
Fyrri leikurinn fer fram fyrstu
helgina í september en Haukar
ætla að skoða fljótlega hvort
hagkvæmt er að selja heimaleik
sinn og spila báða leikina ytra.
- hþh
Haukar fara til Kýpur:
„Góður dráttur“
ARON Er ánægður með dráttinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL