Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 21
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA HELGIN ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Hildigunnur Magnúsdóttir er mikill meistari í
eldhúsinu og reynir oft eitthvað nýtt við miklar
vinsældir fólksins á heimilinu.
Hildigunnur er í barneignarfríi og fer á haustmánuð-
um í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Hennar uppá-
haldsréttur er mexíkósk quesadilla sem systir henn-
ar kynnti fyrir henni og eftir þau kynni hefur
rétturinn slegið í gegn þegar hún eldar hann.
„Systir mín lærði að búa þetta til þegar hún var au
pair í Bandaríkjunum og rétturinn hefur vakið mikla
lukku í fjölskyldunni og borða allir yfir sig og liggja
nánast afvelta eftir að hafa borðað hann,“ útskýrir
Hildigunnur.
Það sem þarf í réttinn eru fjórar kjúklingabringur,
ein paprika, rauð eða græn, einn rauðlaukur og mikið
af rifnum osti. Síðan þarf olíu til að steikja kjúkling-
inn og sex fajitas-bökur og það stórar og loks bréf af
kryddblöndu. Meðlætið með þessu er salsasósa og
sýrður rjómi, salat, maísbaunir og nacho-flögur.
„Aðferðin er fljótleg og einföld, byrjað er að skera
niður grænmetið og það steikt á pönnu. Kjúklingur
skorinn í bita og steiktur á pönnu með Fajita eða
Taco-mixi. Því næst er fajita-baka sett á pönnu, osti
stráð yfir, svo kjúklingi og þar á eftir grænmetið,
aftur ostur og svo önnur baka ofan á. Bökunni er svo
snúið við þegar osturinn er bráðnaður og rétturinn er
tilbúinn þegar osturinn er bráðinn á báðum hliðum.
Einnig er hægt að elda réttinn í ofni eða á mínútug-
rilli. Bakan er svo skorin í sneiðar og er þá tilbúin til
snæðings,“ útskýrir Hildigunnur. Rétturinn er bor-
inn fram sem aðalréttur með hinu ýmsu meðlæti.
mikael@frettabladid.is
Allir borða yfir sig
Hildigunnur hefur verið dugleg að búa til quesadilla eftir að systir hennar kenndi henni það. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Starfsdagur verður í gamla
bænum Laufási við Eyjafjörð á
íslenska safnadaginn á sunnu-
dag frá klukkan 13.30 til
16.00. Hægt verður að fylgj-
ast með fólki við ýmsa iðju
sem tíðkaðist í gamla daga.
Kynt verður undir hlóðum
og steiktar gómsætar lummur
sem gestum og gangandi verður
boðið að smakka.
Kjúklingur er ekki aðeins góður
matur heldur einnig mjög
hollur. Á sumrin þegar
veðrið er gott er
tilvalið að hafa
eitthvað létt í
matinn eins og
kjúkling. Hægt er að
gera ferskt og gott kjúkl-
ingasalat sem fer vel í maga
og er gott fyrir línurnar.
Hnötturinn er fyrirbæri sem
margir krakkar velta fyrir sér. Um
þessar mundir stendur yfir á
Kjarvalsstöðum sýning undir
yfirskriftinni Hvar er ég? Þetta
er sýning þar sem börn og
fullorðnir geta meðal annars velt
fyrir sér hnettinum, landinu og
kennileitum í umhverfinu. Tilvalið
fyrir fjölskylduna að fara á sýning-
una saman um helgina.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
6.490 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
· Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·
· Kókos- og engifersúpa með grilluðum tígrisrækjum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr.
Côte Rôtie „La Mouline“ 2003 | Rhône, Frakkland
Opus One 1995 | Napa Valley, Bandaríkin
NÝTT!Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 19 eðalvínum með mat. Verð frá 890-8.900 kr.
Sjá nánar á perlan.is.