Fréttablaðið - 02.08.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGAR-
2. ágúst 2008 — 209. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
DAGUR
NÆSTUM NYIR BILAR
www.heklanotadirbilar.is
RÚV
ÞJÓÐAREIGN
Í ÞÍNA ÞÁGU
Hvítlaukssmjör me› steinselju
Byrjað með stæl
Ester Stefánsdóttir, nýkjörinn formaður
Norræna félagsins á Akureyri, hefur starfið
með norrænum handverksdögum.
18
DRAUMUR-
INN AÐ
VERU-
LEIKA
Pálma
Rafni líkar
lífið hjá norska
liðinu Stabæk.
ÍÞRÓTTIR 24
FÓLK Rithöfundurinn og leikskáld-
ið Jón Atli Jónasson vinnur nú að
leikriti sem byggir á ævi Bubba
Morthens. Um er að ræða einleik
sem byggður er á bók sem Jón
Atli skrifaði um Bubba og í
samvinnu við hann fyrir tveimur
árum. Verkið verður sett upp í
Borgarleikhúsinu og mun Bubbi
leika sjálfan sig.
„Mér finnst hann bara of stór
stærð til að fá einhvern leikara til
að leika hann,“ segir Jón Atli sem
mun leikstýra verkinu.
- jbg / sjá síðu 30
Jón Atli skrifar einleik:
Bubbi leikur
sjálfan sig
FORSETAHJÓNIN Á SVÖLUM ÞINGHÚSSINS Ólafur Ragnar Grímsson var settur inn í embætti forseta Íslands í fjórða sinn í gær. Að
athöfn lokinni gengu Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff út á svalir þinghússins þar sem forsetinn minntist fósturjarðarinnar. Í
ávarpi sínu við athöfnina lagði Ólafur Ragnar áherslu á samstöðu þjóðarinnar og þau mikilvægu tækifæri sem fram undan væru
fyrir Íslendinga, meðal annars nýtingu umhverfisvænna orkulinda og auknar siglingar um Norðurhöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÞJÓÐHÁTÍÐ „Síðasti reykti lundinn
var keyptur í hádeginu. Síðan þá
hefur enginn beðið um lunda svo
það er spurning hvort þetta hafi
ekki sloppið fyrir horn hjá
okkur,“ sagði Magnús Bragason,
lundareykingamaður í Vest-
mannaeyjum, þegar Fréttablaðið
heyrði í honum í gærkvöld.
„Það voru ekki veiddir nema
um átta þúsund fuglar sem er
ekki nema um 15 prósent af
venjulegri veiði en síðan fengum
við nokkur hundruð fugla frá
Grímsey,“ bætti hann við. En þó
að reykti lundinn hafi selst upp
eiga veiðimenn eitthvað enn í
fórum sínum svo ekki er útséð
með það að þjóðhátíðargestir fái
að bragða á fuglinum. - jse
Þjóðhátíð hafin í Eyjum:
Lundinn búinn
BLÍÐVIÐRI Í EYJUM Að sögn Páls
Scheving, formanns þjóðhátíðarnefndar,
voru um tíu þúsund gestir komnir til Eyja
um tíuleytið í gærkvöld. MYND/ÓSKAR
FORTÍÐ OG
FRAMTÍÐ MÆTAST
Erlendur samtíma-
arkitektúr í gamalli
byggð skoðaður
ÚTTEKT 13
STJÓRNMÁL Það er ekki hlutverk
forseta Íslands að túlka eða fram-
fylgja stefnu ríkisstjórnar, segir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sem hóf í gær sitt fjórða
kjörtímabil í embætti forseta.
„Hér er stjórnskipun þar sem
forsetinn ákveður sjálfur hvað
hann segir og gerir. Hann hefur
sjálfstæðan málflutningsrétt og
það er ekki í verkahring hans að
túlka afstöðu ríkisstjórnarinnar,“
segir Ólafur.
Hann viðurkennir þó að í sam-
ræðum við ráðamenn annarra
þjóða leggi hann áherslu á það
sem kalla megi „stefnu lýðveldis-
ins“. Það eina sem forsetinn verði
að hafa samráð við ríkisstjórn um
séu opinberar heimsóknir.
„Um slíkar heimsóknir hef ég
alltaf haft samráð en hvort forseti
tekur þátt í þessu málþingi frekar
en öðru, hvort hann talar hér eða
þar, innanlands eða erlendis, er
algjörlega í verkahring forsetans
sjálfs að ákveða,“ segir Ólafur.
Forsetinn hefur verið gagn-
rýndur fyrir utanlandsferðir og
lífsstíl sem minnir á auðmenn.
Hann hafnar þeirri gagnrýni
afdráttarlaust.
„Að ég eða við hjónin séum að
deila lífsstíl sem í hugum fólks er
tengdur auðmönnum tel ég hins
vegar víðs fjarri. Satt að segja er
það nú þannig að allur þorri árs-
ins er bara helgaður vinnu frá
morgni til kvölds hér á Bessastöð-
um og frídagar fáir,“ segir
Ólafur.
Hann staðfestir að hann hafi
ekki haft samráð við ríkisstjórn
áður en hann ákvað að þiggja boð
um að vera viðstaddur Ólympíu-
leikana í Peking. Hann hafi meðal
annars heyrt af því að þjóðhöfð-
ingjar annarra Norðurlanda
ætluðu sér að sækja leikana.
„Það þyrfti að mínum dómi
ærnar ástæður til þess að Íslend-
ingar segðu að öll hin Norðurlönd-
in hefðu rangt fyrir sér,“ segir
Ólafur. - bj, bþs / sjá síður 16 og 17
Ákveður sjálfur hvað
hann segir og gerir
Forseti Íslands þarf ekki að hafa samráð við ríkisstjórn og túlkar ekki stefnu
hennar, segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti í viðtali við Fréttablaðið. Hann
ræddi ekki við ríkisstjórnina áður en hann ákvað að fara á Ólympíuleikana.
LJÓMANDI VEÐUR Í dag verður
norðaustan eða austan 3-8 m/s,
stífastur suðaustan til. Víða bjart
með köflum og úrkomulaust. Hiti á
bilinu 12-22 stig, hlýjast norðvestan
og vestan til.
VEÐUR 4
15
14
16
17
22
22
18