Fréttablaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 27
TILKYNNINGAR LAUGARDAGUR 2. ágúst 2008 11 Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is STÖÐUPRÓF HAUSTIÐ 2008 Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: Miðvikudaginn 13. ágúst Kl. 16:00 Danska (hámark 6 einingar), norska (hámark 6 einingar), sænska (hámark 6 einingar). Kl. 18:15 Enska (hámark 9 einingar). Fimmtudaginn 14. ágúst Kl. 16:00 Ítalska (hámark 12 einingar), portúgalska (hámark 12 einingar), spænska (hámark 12 einingar), Kl. 18:15 Franska (hámark 12 einingar), japanska (hámark 12 einingar), pólska (hámark 12 einingar), rússneska (hámark 12 einingar), víetnamska (hámark 12 einingar), þýska (hámark 12 einingar). Föstudaginn 15. ágúst Kl. 16:00 Stærðfræði. Boðið er upp á próf í STÆ103, STÆ203 og STÆ263. Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 3500 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslu- frestur er til hádegis prófdag, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala próftaka og sýna þarf kvittun í prófinu. Í Aðalnámskrá framhaldsskóla er tekið fram að þessi próf séu ætluð þeim sem búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur álit menntamálaráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemendur sem fallið hafa á annar- eða bekkjarprófi. Rektor. Útboð nr. 14520 - Áætlunarakstur á sérleyfi sleiðum á Íslandi 2009 – 2010. Ríkiskaup, f.h. Vegagerðarinnar, óska eftir tilboðum í áætlunarakstur á sérleyfi sleiðum á Íslandi 2009-2010 Um er að ræða útboð á endurgreiðslu kostnaðar að frádregnum tekjum vegna farþegafl utninga í áætlunarakstri á tveimur þjónustusvæðum og þremur stökum sérleyfi sleiðum: • Þjónustusvæði 1: Suðurland. • Þjónustusvæði 3: Vesturland og Norðurland. • Leið F9: Höfn–Djúpivogur–Breiðdalsvík– Egilsstaðir. Einungis ekið á sumrin. • Leið F29: Akureyri–Raufarhöfn–Þórshöfn. • Leið F30: Akureyri–Laugar–Skútustaðir–Rey- kjahlíð–Egilsstaðir. Útboðsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is frá og með miðvikudeginum 6. ágúst 2008. Skila skal tilboðum til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir klukkan 13:45, fi mmtudaginn 25. september og verða þau opnuð þar sama dag klukkan 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð skila árangri! Tilboð óskast Tilboð óskast í POLAR 560 hjólhýsi, ónotað árgerð 2008, skemmt eftir fl utningstjón. Tilboð skilist inná heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 08.00 að morgni 6.ágúst. 2008. Hýsið er til sýnis í Tjónaskoðunarstöð TM, Hamarshöfða 2 110 Reykjavík á opnunartíma ( frá 8.30 til 16.30 virka daga ) Útboð Nesstofusafn - nýbygging Jarðvinna Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna 1. áfanga að nýbyggingu Nesstofusafns. Útboðsgögn verða seld hjá VSB Verkfræðistofu, Bæjarhrauni 20, Hafnarfi rði frá og með þriðju- degi 5. ágúst 2008. Verð kr. 5.000,- Einnig má nálgast útboðsgögn án endurgjalds á vef VSB Verkfræðistofu www.vsb.is Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 25. ágúst kl 13:00. Vertími er 8 vikur og verklok 27. október 2008. Helstu magntölur eru: - Gröftur v/byggingar 5.650 m3 - Fylling v/byggingar 1.360 m3 - Einangrun 935 m2 - Grjóthleðsla 50 m2 - Gröftur v/lóðar 2.300 m3 - Aðfl utt fylling v/lóðar 2.700 m3 - Bráðabirgðavegur 100 m Tilboð óskast Tilboð óskast í VOLVO FH dráttarbifreið, árgerð 2006, skemmdur eftir umferðaróhapp. Tilboð skilist inná heima- síðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. ( útboð tjónabíla ) í síðasta lagi kl 08.00 að morgni 6. ágúst 2008. Bifreiðin er til sýnis á geymslusvæðinu Hafnarfi rði TILBOÐ / ÚTBOÐ Hefur þú áhuga á að byggja upp þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara á einum besta stað á Höfuðborgarsvæðinu ? Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar lóðina Einivellir 3 sem ætluð er undir 3 - 5 hæð hús með þjónustuíbúðum fyrir aldraða . Einivellir eru á Völlum 3 sem afmarkast til norðurs af miðsvæði Valla og til austurs af Haukasvæðinu, Berja- og Drekavöllum, til suðurs af Engjavöllum og 1. áfanga Valla og til vesturs af Ásbraut/Krísuvíkurvegar. Aðkoma akandi að svæðinu er um gatnamót Ásbraut- ar og Ásvalla, Kirkjuvalla, Akurvalla og Engjavalla. Í hverfinu er stutt í alla verslun og þjónustu og þar er m.a. að finna námsmannaíbúðir, íþróttasvæði, leikskóla, sundlaug, kirkju og á næstunni verður þar opnuð heilsugæsla. Umsækjandi þarf að gera grein fyrir fyrirhu- gaðri starfsemi á lóðinni, þjónustu sem í boði verður í húsinu, s.s húsvörslu, öryggisvörslu o.s.frv. og hvernig ætlunin sé að nota jarðhæð hússins. Áhersla er lögð á að húsnæðið verði til sölu/leigu á viðráðanlegu verði fyrir eldri borgara og að gert verði ráð fyrir að húsnæðið geti verið í einkaeign, leiguhúsnæði og/eða með búseturétti. Fyrirtækjum ber að skila ársreikningi sínum fyrir árið 2007 og milliuppgjöri fyrir árið 2008 árituðum af löggiltum endurskoðendum. Einnig þarf að fylgja yfirlýsing lánastofnunar um fjármögnun byggingar- framkvæmda. Lóðinni er eingöngu úthlutað til lögaðila. Umsóknin kostar 3000 kr. sem greiðast þegar um- sókn er skilað. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 19. ágúst 2008 í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6. Umsóknum má skila rafrænt og skal umsóknargjald þá greitt inn á reikning 327-26-59 - kt. 590169-7579 . Vinsamlega sendið kvittun og umsókn á info@hafnarfjordur.is þegar gengið hefur verið frá greiðslu í Heimabanka. Skipulagsuppdrætti og skipulags- og byg- gingarskilmála má finna á www.hafnarfjordur. is/skipulag og í Þjónustuveri Hafnarfjarðar- bæjar Strandgötu 6. Þjónustuverið er opið alla virka daga kl. 8 - 17. HÚSNÆÐI ÓSKAST

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.