Fréttablaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 4
4 2. ágúst 2008 LAUGARDAGUR
UMHVERFISMÁL Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir umhverfisráðherra segir
eðlilegt að þegar um framkvæmd-
ir á sama svæði sé að ræða sem
séu háðar hver annarri, verði áhrif
þeirra metin sameiginlega. Það
eigi við framkvæmdir á Bakka.
„Það er mikill misskilningur að
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda snúist um að leyfa eða
banna eitthvað. Það er til að
tryggja öflun bestu upplýsinga,“
segir Þórunn og ítrekar að það sé
sveitarstjórna að taka afstöðu.
„Það er hið besta mál fyrir sveit-
arstjórnirnar, sem og fyrirtæki,
stjórnvöld og almenning.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra segist telja úrskurðinn hafa
verið óþarfan. „Aðalatriði í mál-
inu er að ekki er verið að stöðva
eða hætta við framkvæmdir, held-
ur að draga saman með heild-
stæðum hætti eins miklar
umhverfisupplýsingar og hægt
er. Það er síðan leyfisveitenda og
þeirra sem fjárfesta að taka
ákvörðun um að fara í málið.
Mikilvægt er að menn vinni
hratt,“ segir Geir.
„Það er stefna ríkisstjórnarinn-
ar að nýta orkuauðlindir landsins
til að auka verðmæti í landinu,
sérstaklega þegar ástandið er eins
og það er í efnahagsmálum. Það
er alveg ótvírætt.“
Fyrr í sumar hafnaði Þórunn
kröfu um heildstætt umhverfis-
mat álvers í Helguvík. „Óskin
kom seint fram í því tilfelli og mat
á einstökum hlutum framkvæmda
hafði farið fram. Ég mat það
þannig þá að því hefði ekki verið
hægt að krefjast sameiginlegs
mats, þó ég hafi ekki leynt því að
vilji minn stæði til þess. Í þessu
tilfelli eru aðstæður aðrar,“ segir
Þórunn.
„Úrskurðurinn kemur verulega
á óvart. Hér er tekið öðruvísi á
málum en við önnur sambærileg
verkefni. Það er ekki til góðs að
breyta um vinnuaðferð frá máli
til máls og það gæti orðið til að
fæla erlenda fjárfesta frá, þó ég
eigi kannski síður von á að svo
verði í þessu tilviki,“ segir Árni
Mathiesen fjármálaráðherra.
Höskuldur Þórhallsson, þing-
maður Framsóknarflokksins í
Norðausturkjördæmi, segir að
með úrskurðinum sé álver í
Helguvík sett í forgang og hann
eyðileggi góða vinnu heima-
manna. „Ég veit ekki hvaða leik
ráðherrann er að leika.“
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaráls, segir úrskurð-
inn hafa komið á óvart. „Við erum
ekkert hættir við, síður en svo. En
við bíðum eftir línu frá ráðherra
um hvernig við eigum að haga
okkur, mat á ólíkum framkvæmd-
um ólíkra aðila hefur ekki farið
fram áður.“ kolbeinn@frettabladid.is
Þórunn segir heild-
stætt mat eðlilegt
Forsætisráðherra telur úrskurð umhverfisráðherra óþarfan. Fjármálaráðherra
er hissa. Alcoa ekki hætt við en bíður eftir línu frá umhverfisráðherra.
GEIR H. HAARDE ÞÓRUNN SVEIN-
BJARNARDÓTTIR
HÚSAVÍK Meta þarf umhverfisáhrif rafmagnsleiðslna frá virkjanasvæðum til Húsavíkur
með álverinu sem fyrirhugað er á Bakka, samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Að sjálfsögðu eiga svona stór-
framkvæmdir að fara í samræmt
umhverfismat í heild sinni, við í
VG höfum flutt
um það tillögur,“
segir Steingrímur
J. Sigfússon,
formaður VG.
„Raunar viljum
við að arðsemi
þeirra fyrir þjóð-
arbúið sé metin
líka, og erum þar
á sama máli og
OECD, og því verði svarað hvort
þessar ofvöxnu fjárfestingar með
tilheyrandi ruðnings- og þensluá-
hrifum geri meira ógagn en gagn
fyrir íslenska hagkerfið,“
Hann segist vona að úrskurður-
inn marki nýja tíma. „Það verður
hjákátlegt ef menn ætla eftir
þennan úrskurð að hverfa frá
heildstæðu mati. En auðvitað á að
ganga frá því með lögum að slíkt
mat fari alltaf fram.“ - kóp
ÞAÐ EINA RÉTTA Í
ÞESSARI STÖÐU
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
„Ég hef alltaf verið mikill stuðn-
ingsmaður álvers á Bakka og þess
að við vöndum eins vel til verka
og kostur er. Það
er hins vegar
óheppilegt hve
úrskurðurinn
kemur seint
fram. Eðlilegt
hefði verið að
gefa leiðbein-
ingar um það í
upphafi að verk-
ið ætti að meta í
heild,“ segir Einar Már Sigurðsson,
þingmaður Samfylkingarinnar í
Norðausturkjördæmi.
Hann segist engu að síður vera
fylgjandi því að stórframkvæmdir
séu metnar í heild sinni. Það
verði hins vegar að liggja fyrir fyrr
í ferlinu. „Nú vonum við að menn
haldi ró sinni og vinni hratt og
örugglega að því að koma þessu
þjóðþrifaverkefni á koppinn.“ - kóp
ÚRSKURÐURINN
KEMUR SEINT
EINAR MÁR
SIGURÐSSON
„Þetta grefur undan trúverðugleika
ríkisstjórnarinnar við að fást við
þann mikla efnahagsvanda sem
nú er kominn
upp og fram-
undan er. Það
skiptir öllu máli
núna að það
komi fram mög
skýr skilaboð frá
ríkisstjórninni
um orkumál
okkar Íslend-
inga og nýtingu
auðlinda,“ segir Illugi Gunnarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sem segir ákvörðunina óábyrga.
„Það hefur hins vegar aldrei
staðið til að fara einhverja
skemmri skírn, enda var niðurstaða
Skipulagsstofnunar komin fram og
hún var góður leiðarvísir í málinu.“
Hann telur úrskurðinn og
yfirlýsingar Samfylkingarfólks um
virkjanir í neðri Þjórsá ekki hjálpa
til í viðleitni ríkisstjórnarinnar til að
vinna að efnahagsmálum. - kóp
ÓÁBYRG ÁKVÖRÐ-
UN RÁÐHERRA
ILLUGI
GUNNARSSON
„Þetta eru gríðarlega mikil
vonbrigði fyrir okkur hér nyrðra
og maður er hættur að skilja
stjórnvöld.
Annað slagið er
gefið vink um að
þetta sé í lagi og
menn styðji við
bakið á okkur.
Síðan kemur
þessi úrskurður
þvert á úrskurð
Skipulagsstofn-
unar,“ segir
Aðalsteinn Baldursson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur og
nágrennis.
„Ég hef þau orð beint frá
ákveðnum ráðherra að ef við
færum eftir ákveðinni línu og
færum ekki fram úr okkur, yrði
stutt við okkur. Þetta eru svik við
það og eins og rýtingur í bakið.“
- kóp
ÞETTA ER EINS OG
RÝTINGUR Í BAKIÐ
AÐALSTEINN
BALDURSSON
SAMGÖNGUR Olíufélögin lækkuðu
lítraverðið á bensíni og dísilolíu
um tvær krónur um hádegi í gær.
Atlantsolía reið á vaðið, og fylgdu
önnur olíufélög í kjölfarið.
Verðið er nú það sama hjá
þremur stóru olíufélögunum, og
svo gott sem það sama hjá sjálfs-
afgreiðslufélögunum.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, segir tölur sem
félagið hefur tekið saman sýna
svart á hvítu það sem flestir bíl-
eigendur hafi á tilfinningunni.
Félögin séu fljót að hækka verð
þegar heimsmarkaðsverð hækk-
ar eða gengi krónunnar veikist.
Styrkist krónan eða lækki heims-
markaðsverðið séu þau ekki jafn
fljót að lækka.
Kostnaðarverð á 95 oktana
bensíni á heimsmarkaði í júlí var
að jafnaði 1,25 krónum lægra en í
júní, að teknu tilliti til gengisþró-
unar. Verð á bensíni hjá íslensku
félögunum var að meðaltali 3,35
krónum hærra en í júní. Þróunin
á verði dísilolíu var svipuð.
Kostnaður neytenda vegna
þessarar auknu álagningar olíu-
félaganna er um 5,40 krónur á
hvern lítra, þegar skattar og gjöld
hafa verið tekin með í reikning-
inn, segir Runólfur.
- bj
Olíufélögin lækkuðu verð á eldsneyti um tvær krónur fyrir ferðahelgina framundan:
Hækka hratt en lækka seint
BENSÍNVERÐ
95 oktana Dísil
N1 169,7 187,6
Olís 169,7 187,6
Shell 169,7 187,6
Atlantsolía 168,2 186,1
EGO 168,2 186,1
ÓB 168,2 186,1
Orkan 168,1 186,0
Valið var algengasta verðið síðdegis í gær.
Miðað er við verð í sjálfsafgreiðslu.
KÍNA, AP Hu Jintao, forseti Kína,
vildi ekki svara spurningum um
mannréttindi á blaðamannafundi,
aðeins viku áður en Ólympíuleik-
arnir hefjast.
Hann sagði að með því að halda
Ólympíuleikana muni Kínverjar
sýna heiminum að þeir séu
friðelskandi þjóð, en sagði það
grafa undan ólympíuhugsjóninni
að blanda stjórnmálum saman við
umræðu um leikana.
Hu hefur örsjaldan veitt viðtal í
forsetatíð sinni. Blaðamannafund-
urinn var haldinn í Höll alþýðunn-
ar í Peking, stóð í 70 mínútur en
fréttamenn þurftu fyrirfram að
leggja fram spurningar sínar. - gb
Forseti Kína í viðtali:
Pólitík skaðar
Ólympíuleika
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
21°
19°
21°
22°
19°
20°
27°
26°
26°
29°
31°
27°
22°
23°
29°
33°
17°Á MORGUN
Hæg norðaustlæg eða
breytileg átt.
Hægast austan til.
MÁNUDAGUR
Hæg breytileg átt.
15
18
15
14
13
16
14
17
18
20
20
22
20
22
5
5
3
5
5
7
4
4
1
4
3
14
12
12
12
14
14
13
11
12
12
18
HIÐ FÍNASTA
HELGARVEÐUR
Í dag skulum við
njóta þess að vera
úti í þessu hlýja
og bjarta veðri
en á morgun fer
hitinn að lækka og
eðlilegur íslenskur
sumarhiti tekur við.
Veðrið verður milt
út helgina og vind-
ur almennt fremur
hægur.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
GENGIÐ 01.08.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
158,7835
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
79,19 79,57
156,49 157,25
123,18 123,86
16,513 16,609
15,398 15,488
13,051 13,127
0,7353 0,7397
128,17 128,93
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR