Fréttablaðið - 13.08.2008, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 13. ágúst 2008 27
FRJÁLSAR Íslenska frjálsíþrótta-
fólkið er síðast til að hefja keppni
á Ólympíuleikunum í Peking. Stef-
án Jóhannsson segir Ísland senda
flottan hóp á leikana en keppend-
um í frjálsum hefur fjölgað um
einn frá því á leikunum í Aþenu
fyrir fjórum árum.
„Í frjálsum íþróttum þarft þú að
vera framar en í mörgum öðrum
greinum því tímaseðillinn er
þannig að það mega ekki vera of
margir í hverri grein. Lágmörkin
eru því mjög ströng í frjálsum.
Það er því frábært fyrir þessa
krakka að hafa náð þessum lág-
mörkum. Þau hafa öll sýnt feyki-
legan dugnað við að vinna sig
upp,“ segir Stefán, annar þjálfari
hópsins í Peking.
Þórey Edda Elísdóttir hefur
glímt við erfið meiðsli í þrjú ár,
Ásdís Hjálmsdóttir fór í aðgerð á
kasthendi sinni fyrir rúmu hálfu
ári og þurfti síðan líkt og Bergur
Ingi Pétursson að bæta sig mikið
til þess að ná lágmarkinu.
Þórey Edda Elísdóttir keppir í
stangarstökki á þriðju leikunum í
röð. Hún varð í 22. sæti er hún
stökk 4,00 metra í Sydney 2000 en
náði síðan stórglæsilegum árangri
á síðustu leikum í Aþenu er hún
stökk 4,55 metra og tryggði sér
fimmta sætið.
„Þórey hefur verið að glíma við
meiðsli en það er vonast til þess að
hún sé að jafna sig af þeim. Hún
hefur verið að gera mjög margt til
þess að ná sér góðri og hefur kost-
að miklu til þess,“ segir Stefán um
Þóreyju.
„Hún er gífurlega keppnisreynd
og það kemur henni til góða á þess-
um leikum. Það skiptir miklu máli
að hún sé að stökkva sársaukafrítt
og finni sig vel því ef hún gerir
það á hún að geta gert stóra og
góða hluti. Þórey hefur sýnt það
að hún er einn besti íþróttamaður
okkar frá upp-
hafi. Hún
vill kveðja
vel og ég
vona að
henni takist
það,“ segir
Stefán.
Hann segir
að markmiðið
hljóti að vera
metnaðarfullt þrátt
fyrir meiðslin.
„Þórey Edda er búin
að fara yfir 4,30 í
sumar en við vitum að
hún getur farið miklu
hærra. Ef hún nær sér
sæmilega heilli þá á hún
að geta farið mjög hátt.
Hún hefur verið í úrslitum á
bæði heimsmeistaramótum og
Ólympíuleikum og hún heldur
áfram að setja það markmið að
komast í úrslit. Það þarf samt eigi-
lega allt að ganga upp til þess að
fólk fari í úrslit,“ segir Stefán.
Íslendingar senda nú tvo kast-
ara til leiks á Ólympíuleikum en
enginn kastari var með á
Ólympíuleikunum í Aþenu
fyrir fjórum árum sem
voru þá fyrstu Ólymp-
íuleikarnir í 40 ár
þar sem enginn
íslenskur kast-
ari var með.
Bergur
Ingi
Péturs-
son tekur
þátt í
sleggjukasti
fyrstur
Íslendinga á
Ólympíu leikum
og Ásdís Hjálms-
dóttir verður fyrsta
íslenska konan í tut-
tugu ár til þess að
kasta spjóti á leikunum, eða síðan
að Íris Grönfeldt náði 26. sæti í
Seúl 1988.
„Ég er alveg viss um að þetta
verði ekki síðustu leikarnir hjá
Ásdísi og Bergi og ég tel að þau
eigi bæði bjarta framtíð fyrir sér,“
segir Stefán. Stefán býst við góðri
frammistöðu hjá þeim báðum.
„Ásdís hefur sannað það að hún er
stórmótamanneskja og ég á alveg
eins von á því að hún kasti mjög
vel á þessu móti. Hún er númer 33
í heiminum í dag og ég sagði þegar
hún kastaði spjótinu 59,80 metra
að þá hefði hún kastað sér úr
alþjóðlegum klassa upp í heims-
klassann,“ segir Stefán en Ásdís
fór í aðgerð í nóvember.
„Það er dugnaður hennar og
atorkusemi sem hefur orðið til
þess að hún er búin að ná sér svona
vel,“ segir Stefán. Hann vonast til
að sjá Ásdísi fara í úrslit. „Tak-
markið er að kasta vel. Við vitum
það að ef hún kastar vel og hittir á
sitt besta þá getur hún alveg farið
í tólf manna úrslit. Hún getur líka
orðið tuttugasta en takmarkið er
aðallega að kasta vel,“ segir Stef-
án.
Bergur Ingi Pétursson hefur
eins og Ásdís bætt sig mikið á
þessu ári. „Bergur þurfti að bæta
sig verulega til þess að komast á
Ólympíuleikana og hann hefur
gert það. Þetta ár hefur verið stór-
glæsilegt hjá honum og ég veit að
hann hefur æft mjög vel. Hann er
búinn að bæta Íslandsmetið um
fleiri, fleiri metra,“ segir Stefán,
sem játar að hann hafi mjög gaman
af að fylgjast með honum í
keppni.
„Bergur er orðinn virkilega
skemmtilegur keppnismaður.
Möguleikarnir hjá honum eru
mjög góðir og ég hef trú á því að
hann setji Íslandsmet miðað við
hvernig hann kastaði á meistara-
mótinu. Hann verður að kasta 76
metra til þess að eiga möguleika á
að komast í úrslitin en ég er ekki
frá því að hann eigi möguleika á
því. Hann getur verið hæstánægð-
ur ef hann nær að setja Íslands-
met,“ segir Stefán.
ooj@frettabladid.is
Frjálsíþróttafólkið hefur síðast keppni á Ólympíuleikunum þar sem Þórey Edda Elísdóttir setur nýtt met:
Reynsluboltinn og nýliðarnir tveir
PEKING 2008 Jakob Jóhann Sveins-
son var aftur mjög svekktur með
sjálfan sig eftir að hafa orðið 38.
af 52 keppendum í 200 metra
bringusundi í gær. Jakob synti á
2:15,58 mínútum, sem er hans
besti tími á árinu en nokkuð frá
Íslandsmeti hans.
“Þetta var ekki nógu gott. Þegar
ég ætlaði að keyra upp hraðann
eftir 100 metra var ég ekkert að
komast hratt. Ég komst bara ekki
hraðar né fram úr þeim sem var
fremstur. Ég hélt að ég væri
hraðari,“ sagði Jakob, sem telur
sig vera betri en úrslitin sýni.
„Ég hef verið að æfa með
Evrópumethafanum og öðrum og
verið að synda svipað og þeir. Ég
fer hraðar þegar ég næ kraftinum
upp. Ég á heima meðal þeirra
bestu. Ég veit það alveg,“ sagði
Jakob Jóhann kokhraustur. - hbg
Jakob Jóhann Sveinsson:
Á heima meðal
þeirra bestu
BESTI TÍMINN HANS Í ÁR Jakob Jóhann
Sveinsson sést hér á fleygiferð í 200
metra bringusundinu á Ólympíuleikun-
um í Peking. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PEKING 2008 Ragnheiður Ragnars-
dóttir stingur sér til sunds í Pek-
ing í dag er hún tekur þátt í 100
metra skriðsundi. Það er önnur af
tveimur greinum sem Ragnheið-
ur tekur þátt í en hún mun einnig
synda 50 metra skriðsund.
„Mér líður mjög vel en þetta
hefur verið svolítið erfitt síðustu
vikur. Fyrst voru þjálfaraskipti
hjá mér og svo hefur verið erfitt
að aðlagast hitanum og tímamis-
muninum. Þess utan lenti ég í því
úti í Singapore fyrir leikana að
léttast svolítið þar sem maturinn
var ekki alveg að gera sig. Kjúkl-
ingalappirnar voru til að mynda
ekki mjög gómsætar. Ég er búin
að ná því aftur og er að jafna
mig,“ sagði Ragnheiður og bætti
við að maturinn í Ólympíuþorp-
inu væri aftur á móti mjög góður.
„Ég er nokkuð bjartsýn á að ná
mínum besta tímum hér og þá
helst fyrir 50 metra sundið. Hef
verið að einbeita mér meira að
því enda er það seinna sundið
mitt og mér gekk ekki vel í fyrra
sundinu í Aþenu,“ sagði Ragn-
heiður, sem segist ekki vera eins
stressuð núna og hún var í Aþenu
fyrir fjórum árum.
„Það er samt alltaf smá spenna
og maður titrar pínu að vera
komin í nýjan laug og nýja heims-
álfu. Ég er mikið í slökun og hug-
leiðingu til þess að róa taugarn-
ar,“ sagði Ragna, sem lenti í
pirrandi uppákomu á æfingu.
„Ég passaði ekki alveg í sund-
gallann sem ég var að fara í og
hann rifnaði í tvennt þegar ég var
að fara í hann. Ég reyni samt að
láta svona litla hluti ekki trufla
mig of mikið,“ sagði Ragnheiður.
- hbg
Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir er bjartsýn þrátt fyrir erfiðleika í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana:
Kjúklingalappirnar voru ekki gómsætar
RAGNHEIÐUR Keppir í Peking í dag í 100 metra skriðsundi. Hún lætur hnökra á
undirbúningnum ekkert á sig fá. RÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍSLENSKI KRAFTURINN Kastararnir og nýliðarnir Bergur Ingi Pétursson og Ásdís Hjálmsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FIMMTA SÆTI Þórey Edda
Elísdóttir náði bestum árangri
Íslendinga á síðustu Ólympíu-
leikum þegar hún endaði í 5.
sæti í stangarstökki kvenna.
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
PEKING 2008 Kóreubúar sýndu og
sönnuðu í gær að þeir tefla fram
frábæru handboltaliði. Suður-
Kóreumenn gerðu sér þá lítið
fyrir og skelltu Evrópumeistur-
um Dana með einu marki, 31-30, í
frábærum leik.
Kóreubúar náðu yfirhöndinni
um miðbik síðari hálfleiks og það
var ekki síst stórleik Suyong Jung
að þakka að Kórea vann leikinn.
Sá drengur fór gjörsamlega
hamförum í leiknum, skoraði níu
mörk og þar á meðal sigurmarkið.
Lítill og snöggur strákur sem
minnir um margt á hinn frábæra
Kang sem Íslendingar muna
eflaust vel eftir.
Kóreumenn velgdu Þjóðverjum
einnig undir uggum í fyrsta
leiknum en þeir spila gríðarlega
„aggressívan“ varnarleik og
ótrúlega hraðan og lifandi
sóknarleik. Er því ljóst að
íslenska liðið þarf toppleik í
fyrramálið til að stöðva Kóreu,
sem er aftur komin með lið í
heimsklassa. - hbg
Danir lágu í því í gær:
Kóreumenn eru
ógnarsterkir