Fréttablaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 54
34 14. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
L.I.B.Topp5.is
57.000
manns á 21 degi.
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR
STÆRSTU OG BESTU ÆVINTÝRIN ERU
EINFALDLEGA ÓDAUÐLEG!
Ásgeir j - DV
TSK - 24 stundir
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
GET SMART kl. 5:45 - 8 - 10.20 7
THE MUMMY 3 kl. 8 12
WALL-E m/ísl. tali kl. 5:45 L
THE STRANGERS kl. 10:20 16
GET SMART kl. 1:30 - 3:50 - 5:50D - 8D - 10:30D L
THE MUMMY 3 kl. 5:40 - 8 - 10:30 12
DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 12
DARK KNIGHT kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 VIP
WALL-E m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
WALL-E m/ensku tali kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 L
MAMMA MÍA kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L
LOVE GURU kl. 10:30 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
GET SMART kl. 3:30D - 5:40D - 8D - 10:20D L
X-FILES 2 kl. 8D - 10:10D 16
THE MUMMY 3 kl. 5:50 - 8 12
WALL-E m/ísl. tali kl. 3:40D - 5:50D L
DARK KNIGHT kl. 10:10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40 L
GET SMART kl. 8 - 10:20 7
LOVE GURU kl. 8 12
DARK KNIGHT kl. 10 12
MAMMA MÍA kl. 5:40 L
WALL-E m/ísl. tali kl. 5:50 L
GET SMART kl. 6 - 8 - 10:20 L
WALL-E. m/ísl. tali kl. 6 L
THE MUMMY 3 kl. 8 12
DARK KNIGHT kl. 10:20 12
- bara lúxus
Sími: 553 2075
GET SMART kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15 L
MÚMÍAN 3 kl. 8 og 10.15 12
WALL–E – ÍSLENSKT TAL kl. 4 og 6 L
THE DARK KNIGHT kl. 4, 7 og 10 12
Tommi - kvikmyndir.is
Ásgeir J - DV
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
12
12
12
L
L
7
X - FILES kl. 6 - 8 - 10
SKRAPP ÚT kl. 10.10
THE LOVE GURU kl. 6
MAMMA MIA kl. 8
16
12
12
L
X - FILES kl. 5.40 - 8 - 10.20
X - FILES LÚXUS kl. 8D - 10.20D
SKRAPP ÚT kl. 6 - 10
THE MUMMY 3 kl. 8D
THE LOVE GURU kl. 4 - 8
WALL-E ÍSL. TAL kl. 3.30D - 5.45D
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
16
12
12
L
X - FILES kl. 5.40 - 8 - 10.20
SKRAPP ÚT kl. 6 - 8 - 10
THE DARK KNIGHT kl. 6 - 9
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
16
12
L
LOVE GURU kl. 6 - 8 - 10
THE STRANGERS kl. 6 - 8 - 10
HELLBOY 2 kl. 5.30 - 8 - 10.30
MAMMA MIA kl. 5.30 - 8 - 10.30
SÍMI 530 1919
“…meistarverk.”
– New York Magazine
“...SKEMMTILEGA
SKRÍTIN OG ÖÐRUVÍSI
MYND ÞAR SEM MANNI
LEIÐIST ALDREI”
- S.V., MBL
“FÍNASTA SKEMMTUN.
MYNDIN ER
SKEMMTILEG
OG NOTALEG.”
- MANNLÍF
“...fílgúdd mynd. Húmorísk, elskuleg saga
með góðum lyktum og breyskum persónum”
- P.B.B., FBL
“ VEL GERÐ, VEL
LEIKIN...OG DIDDA
JÓNSDÓTTIR ER
FRÁBÆR”
- J.V.J., DV
TIL AÐ FINNA SANNLEIKANN
VERÐUR ÞÚ AÐ TRÚA!
MULDER OG SCULLY ERU MÆTT AFTUR Í
FRÁBÆRRI SPENNUMYND Í ANDA ÞÁTTANNA.
Í
I Í .
Bragi Kristjónsson fornbókasali fylgist
grannt með gangi mála í pólitíkinni. Og
hefur í búð sinni, Bókinni, tuskudúkkur
sem hann segir nauðalíkar forsætis- og
utanríkisráðherra.
„Já, ég er með tvær tuskudúkkur hérna úti á stétt við
búðina. Hef þær úti meðan veðrið er svona gott.
Rosalega krúttlegar. Önnur er alveg eins og Geir
Haarde og hin eins og Ingibjörg Sólrún,“ segir Bragi
Kristjónsson fornbókasali.
Í fornbókaverslun hans, Bókinni, við Hverfisgötu er
pólitíkin gjarnan rædd fram og til baka og Braga
finnst ekki verra að hafa þessa bangsa, sem bera
nöfnin Geir og Ingibjörg Sólrún, til að upphefja
andann. „Þessi sem er eins og Geir er api sem er
eiginlega alveg hreint með andlitssvip Geirs. Með
víðan munnsvip. Ef Geir væri indíáni þá væri hann
kallaður „Big face“. Hin dúkkan er ljót og frekjuleg
dúkka og minnir mjög á Ingibjörgu Sólrúnu,“ segir
Bragi til útskýringar. Hann hefur verið að benda
gestum sínum á þessi líkindi og oftast er fólk sam-
mála. „Þau eru voðalega krúttleg þar sem þau sitja
saman á tröppu hérna úti á stétt. Og stundum fær
Össur að vera hjá þeim. Hann er lítill, ljótur, svartur
bangsi en hann er oftast hafður inni á borði svo hann
fari sér ekki að voða. Hann vill svo mikið ver’ann,“
segir Bragi.
Að sögn fornbókasalans komu þessar dúkkur með úr
dánarbúum og eða þegar fólk hefur verið að minnka
við sig. „Ég var beðinn að hirða þetta með einhverjum
bókum. Eins og oft er þegar verið er að tæma. En
menn eru náttúrlega að gera út á gamla fólkið. Það er
verið að selja því tveggja herbergja þjónustuíbúðir og
húsin þess tekin upp í. Þá minnkar pláss hjá fólki
margfalt.“
Búð Braga komst í deigluna þegar Bobby Fischer
tók upp á því að gerast fastagestur þar. Og þótt
Fischer sé horfinn til feðra sinna lifir minningin. „Í
gær voru hér meira að segja einhverjir útlendingar að
spyrja hvar stóllinn væri sem Bobby Fischer sat á. Og
kunningi hans var hér á dögunum, kominn sérstaklega
frá Amsterdam til að leggja blóm á leiði hans fyrir
austan.“ Bragi segir nóg að gera í fornbókabúðinni og
merkir athyglisverðar breytingar. „Krakkar eru aftur
farnir að kaupa bækur. Og það er eins og afþreyingar-
draslið sé búið. McLean og Bagley eru dauðir en
höfundar eins og Faulkner og Hemmingway seljast
vel. Hér hefur verið gefið mikið út af góðum bók-
menntum þýddum.“
jakob@frettabladid.is
Geir og Ingibjörg Sólrún
í fornbókabúð Braga
INGIBJÖRG, GEIR OG BRAGI Fornbókasalinn heldur því fram að
tuskudúkkurnar sem hann hefur í búðinni séu glettilega líkar
forsætis- og utanríkisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fimmmenningarnir í Boys In A
Band eru frá Götu í Færeyjum.
Þeir hafa verið starfandi í tvö ár og
vöktu m.a. mikla lukku á Iceland
Airwaves-hátíðinni í fyrra. Black
Diamond Train er þeirra fyrsta
plata.
Boys In An Band hafa stundum
verið kallaðir „hin færeyska Strok-
es“ og maður getur alveg skilið það
viðurnefni. Tónlistin sver sig í ætt
við tónlist Strokes og annarra bíl-
skúrsrokksveita af sömu kynslóð
og söngvarinn Pætur Zachariasson
minnir á köflum svolítið á Julian
Casablancas.
Það er margt sem vinnur með
Black Diamond Train og Boys In A
Band. Þessi 12 lög sem eru á plöt-
unni eru öll flott, textarnir eru
margir töffaralegir og skemmtileg-
ir og platan er nógu fjölbreytt til að
dæmið gangi upp. Þó að sveitin
minni á Strokes þá er þetta ekkert
hermiband. Það má greina áhrif frá
bílskúrs- og blússkotnu rokki síð-
ustu áratuga; áströlsku, bresku og
bandarísku. Þetta er ekki bylting-
arkennd tónlist á nokkurn hátt, en
strákunum tekst að gera þetta
frísklega, spilamennskan er lifandi,
hljómurinn er flottur og svo er
þetta líka bara svo skrambi kraft-
mikið, grípandi og skemmtilegt hjá
þeim. Maður kemst í svipað stuð
eins og þegar maður hlustaði fyrst
á Franz Ferdinand eða Jeff Who?
Á heildina litið er þetta fín frum-
raun frá bandi sem gaman verður
að fylgjast með hvernig þróast á
næstu misserum. Trausti Júlíusson
Frískir Færeyingar
TÓNLIST
Black Diamond Train
Boys In A Band
★★★★
Þó að tónlist Boys In A Band sé ekki
byltingarkennd þá er þessi bílskúrs-
rokkkeyrsla þeirra félaga sérstaklega
kraftmikil og stuðvekjandi. Ein af
skemmtilegri plötum ársins það sem
af er.
Sudden Weather Change, Bob og Reykjavík! spila á
Organ í kvöld. Tónleikarnir eru til styrktar Sudden
Weather Change, en þeir safna fyrir upptökum á nýrri
plötu. „Við erum allir búnir að leggja í púkk, en það er
alltaf fínt að halda styrktartónleika fyrir sjálfan sig,“
segir Bergur Thomas Anderson, bassaleikari SWC.
„Við ákváðum að tala við vinahljómsveitir okkar og
fá þá með. Við höfum reyndar aldrei spilað með BOB
áður, en þeir spila mjög sjaldan á tónleikum.“
Langt er síðan sveitin hefur tekið upp, en afrakstur
fyrri upptakna má heyra á myspace-síðu sveitarinnar.
„Við byrjum að taka upp núna á laugardaginn. Við
förum í gamlan bústað rétt fyrir utan Borgarnes og
tökum upp plötuna þar. Þar verðum við bara að taka
upp og gistum í tíu daga.“
Bergur lofar góðum tónleikum. „Upp á síðkastið
hefur myndast frekar klikkuð stemning á tónleikum
hjá okkur. Þannig að ég býst við að það verði frekar
sveitt. Öll böndin spila rokktónlist, þannig að það
verður geðveikt gaman.“
Húsið verður opnað klukkan níu og kostar 500
krónur inn. Ýmis varningur frá hljómsveitunum
verður einnig til sölu.
- kbs
Styrkja sjálfa sig
Á LEIÐ Í UPPTÖKUR Sudden Weather Change safna fyrir plötu
með tónleikum.