Fréttablaðið - 14.08.2008, Blaðsíða 34
Miðstöð símenntunar á Suðurnesj-
um býður upp á skriðsundnámskeið
fyrir fullorðna. Ingi Þór Einarsson
er leiðbeinandi á námskeiðinu en
hann er þjálfari landsliðs fatlaðra í
sundi. Námskeiðið hefst fyrstu vik-
una í október og segir Ingi svona
námskeið alltaf vel sótt.
„Það er mjög gaman að kenna
þessi námskeið því strax eftir
fyrsta tímann er fólk búið að upp-
götva að þetta er hægt og spyr oft
af hverju enginn hafi sagt þeim
þetta fyrir fimmtíu árum.“
Ingi segir muninn á bringusundi
og skriðsundi liggja í önduninni
og í skriðsundi vefjist fyrir fólki
að synda með andlitið í kafi. „Í
bringusundi er hægt að synda með
höfuðið upp úr og fólk þarf ekki að
takast á við það að fara í kaf. Nám-
skeiðið gengur út á að kenna fólki
það og um leið og fólk nær því
þá er miklu auðveldara að synda
skriðsund en bringusund,“ fullyrð-
ir Ingi. Aldurshópurinn sem sækir
skriðsundnámskeiðin spannar frá
þrítugu til sjötugs. Námskeiðið
verður tíu skipti og eru þá lang-
flestir orðnir vel syndir. „Það fer
aðeins eftir því hvað fólk lætur sig
fljótt hafa það að fara með andlitið
ofan í.“ - rat
14. ÁGÚST 2008 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll
Bláa lónið er heit blanda af
ferskvatni og hafinu sem seytl-
ar inn í hraunið á Reykjanesi.
En hvaða efni eru í lóninu og
hver eru áhrif þeirra? Því svarar
Magnea Guðmundsdóttir
kynningarstjóri.
„Þetta lón er einstakt í heiminum
vegna virkni sinnar á húðina. Í því
eru tvenns konar þörungar, kúlu-
þörungar og þráðþörungar og virk
efni í þeim draga úr öldrun húð-
arinnar. Þau eru bæði fyrirbyggj-
andi og bætandi, samkvæmt rann-
sóknum sem voru gerðar bæði á
húð og í rannsóknarstofu í Þýska-
landi,“ byrjar Magnea og held-
ur áfram. „Í öðru lagi vil ég nefna
kísilinn. Hann hreinsar húðina og
styrkir ysta varnarlag hennar og
hefur reynst sérstaklega vel gegn
psoriasis. Hér eru líka steinefni.
Við þekkjum það að gott er að setja
sölt í baðkarið því þau endurnæra
húðina og viðhalda jafnvægi henn-
ar. Hér eru þau frá náttúrunnar
hendi.“
Magnea segir virku efnin í lón-
inu ekki aðeins í húðvörunum held-
ur líka notuð við dekurmeðferðir
sem fara fram í lítilli vík í lóninu
og lýsir þeim nánar. „Í einni með-
ferðinni er húðin skrúbbuð með
blöndu af Bláalónssöltum og olíum
og í kísil- og saltskrúbbi er notuð
blanda af þessu tvennu ásamt
nuddi. Svo er orkugefandi og nær-
andi þörungameðferð þar sem lík-
aminn er vafinn með þörunga-
vafningi og boðið er upp á slök-
unarnudd frá tíu mínútum upp í
klukkustund.“
Steinsnar frá Bláa lóninu er
heilsuhótelið Lækningalind með
gistingu, innilóni, og „betri stofu“
með einkabúningsherbergjum. Að
sögn Magneu er þar veitt meðferð
við psoriasis en hluti herbergjanna
er leigður almennum gestum sem
vilja ná sér í góða hvíld í einstöku
umhverfi. „Fólk er í svo sterkum
tengslum við náttúruna hér við
lónið,“ segir hún „og mannvirkin
falla vel að þeirri náttúru.“ - gun
Einstök virkni á húð
„Fólk er í svo sterkum tengslum við náttúruna hér,“ segir Magnea kynningarstjóri
Bláa lónsins. MYND/ELLERT RÚNARSSON
Þörungarnir hafa verið einangraðir
í Bláa lóninu og á rannsóknar- og
þróunarsetri þess eru þeir ræktaðir til
notkunar í húðvörurnar.
Ingi Þór Einarsson sundþjálfari segir alltaf skemmtilegt að kenna skriðsundnámskeið
fyrir fullorðna. MYND/VILHELM
Fullorðnir á skriði
Skriðsundnámskeið Inga Þórs hefst í
fyrstu viku októbers.
MYND/INGIGERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR
ALLA VIRKA
DAGA
Hádegistilboð kr. 900
ÞÖKKUM GÓÐAR VIÐTÖKUR
S: 588 8588