Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 2

Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 2
2 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR Patrekur, er þetta stórasta stund íslenskrar íþróttasögu? „Stórara gerist það ekki.“ Íslenska landsliðið í handbolta leikur við Frakka um Ólympíugullið klukkan 7.45 fyrir hádegi í Peking í dag. Patrekur Jóhannesson er fyrrverandi landsliðs- maður í handbolta. REYKJAVÍK Guðlaugur G. Sverris- son, ný kjörinn stjórnarformaður Orku veitu Reykjavíkur, segist ekki vilja tjá sig efnislega um stefnu fyrirtækisins að svo stöddu. Hann biður um stundarfrið til að setja sig almennilega inn í málin. „Ég var auðvitað kallaður til með skömmum fyrirvara og ég vil heyra í borgarstjóra, formanni borgarráðs, forstjóra Orku- veit unnar og stjórninni áður en ég vil fara að tjá mig nokkuð um hvaða stefnu og strauma ég vil hafa í þessu,“ segir hann. Skipan Guðlaugs í starfið hefur sætt gagnrýni frá fulltrúum minn ihlutans í borgarstjórn, meðal annars vegna þess að Guð- laugur hafi enga sérstaka þekk- ingu á orkumálum. Guðlaugur bendir hins vegar á að hann sé menntaður fjórða stigs vélfræð- ingur, og hafi þannig þekkingu á öllum tækja búnaði og hugtökum sem tengjast raforkuvirkjun. „En lykilatriðið er það sem ég bætti við mig í rekstrar- og við- skiptanámi,“ segir hann. „Þannig að ég er með þá þekkingu líka. Svo kemur bara í ljós hvernig hún nýt- ist, eins og í lífinu. Aðrir sem hafa tekið við stjórnarformennsku hafa nú ekki þurft að búa við þessa gagnrýni, þannig að ég tek henni létt.“ - sh Nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segist hafa næga þekkingu í starfið: Tjáir sig ekki strax um stefnu sína NÝR Í BRÚNNI Guðlaugur biður um stundarfrið til að ræða við sína sam- herja í meirihlutanum. FRÉTTALBAÐIÐ / ARNÞÓR SLYS Átta verkamenn hafa látist við gerð tveggja virkjana hér á landi; fimm við Kárahnjúkavirkjun, og framkvæmdir henni tengdar, og þrír við Hellisheiðarvirkjun. Á tveimur og hálfu ári, frá því um áramótin 2006, hafa 12 menn látist við vinnu sína hér á landi. Þetta er mikil aukning frá því árin þar á undan. Sjö þeirra sem létust voru erlendir verkamenn. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnu- eftirlitsins, segir mikið áhyggju- efni að banaslys- um útlendinga hafi fjölgað mikið hér á landi. Til fjöl- margra aðgerða sé hægt að grípa; Vinnueftirlitið undirbúi herferð til að taka á þessu. Þá megi breyta lögum. „Við teljum að við stærri fram- kvæmdir eigi að skerpa á ábyrgð verkkaupa og skyldum til að tryggja samræmingu á öryggis- málum þeirra verktaka sem eru að vinna fyrir þá.“ Eyjólfur segir að svo virðist sem eitthvað vanti upp á í samskiptum hjá fyrirtækjum í stórum verkefn- um. „Þeir sem hingað koma aðlag- ast ekki nógu vel þeim öryggis- kúltúr sem hér er við lýði. Öryggisreglur þurfa að vera skýr- ar og það þarf að eyða tíma, fé og fyrirhöfn til að gera útlendingana þátttakendur í þeim.“ Eyjólfur telur að ekki sé lögð nóg áhersla á þetta. „Án þess að bera sakir á einn eða neinn teljum við vanta upp á þennan þátt. Þegar mannskapur er valinn verður að tryggja að samskipti geti átt sér stað á vinnustaðnum,“ segir Eyjólf- ur. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir fjölgun erlendra verkamanna á íslenskum vinnu- markaði, sem sprenging hafi orðið á árið 2006, og tungumálaerfiðleika því tengdu rót vandans. Hann tekur undir að gera þurfi ábyrgðina á öryggisþáttum skýr- ari. „Það þarf að vera að hluta til í ábyrgð þess sem tekur verkið að sér og fjalla þarf sérstaklega um öryggisþætti í verksamningum. Þetta þarf hins vegar að vinna á breiðum grundvelli og það er ákveðin hætta fólgin í því að setja ábyrgðina á einn aðila,“ segir Sig- urður. Bæði Sigurður og Eyjólfur taka það fram, vegna slyssins við Hellis- heiðarvirkjun, að verkkaupinn þar, Orkuveita Reykjavíkur, sé þekktur að því að standa vel að öryggismál- um. kolbeinn@frettabladid.is Átta látnir við gerð tveggja virkjana Átta hafa látist við gerð Kárahnjúka- og Hellisheiðarvirkjunar. Á tveimur og hálfu ári hafa sjö erlendir verkamenn látist í vinnuslysum hér á landi. Vinnu- eftirlitið vill skerpa lög um ábyrgð verkkaupa á öryggi á vinnustað. EYJÓLFUR SÆMUNDSSON KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Fimm létust við gerð Kárahnjúkavirkjunar. Þrír hafa látist við gerð Hellisheiðarvirkjunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BANASLYS VIÐ VINNU 2006 Feb. Íslendingur lést í Reykjavík Mars Íslendingur lést við Kárahnjúka Apríl Íslendingur lést við Kárahnjúka Júlí Frakki lést við Hellisheiðavirkjun Ágúst Íslendingur lést í Reykjavík Nóv. Króati lést á Fljótsdalsheiði - framkvæmdir vegna Kárahnjúka- virkjunar. 2007 Júní Portúgali lést við Kárahnjúka Okt. Íslendingur lést í Hafnarfirði Nóv. Pólverji lést í Hafnarfirði 2008 Júní Pólverji lést í Hafnarfirði Ágúst Tveir Rúmenar látast við Hellis- heiðarvirkjun HANDBOLTI Þrjár safnanir standa nú yfir til styrktar Handknatt- leikssambandi Íslands og ganga allar vel. Sigurjón Pétursson, varafor- maður HSÍ, segir að fyrirtækja- söfnunin hafi skilað tólf milljón- um á tveimur síðustu dögum en tölur úr innhringisöfnuninni og það sem lagt hefur verið beint inn á bankareikning sambandsins liggur ekki fyrir. „Ég er nokkuð viss um að allt í allt sé þetta farið að nálgast á annan tug milljóna,“ segir Sigurjón sem er vongóður um að ríkið og stóru sveitarfélögin komi til móts við sambandið. - shá Þjóðin safnar fyrir HSÍ: Þrjár safnanir ganga ágætlega LEIKHÚS Sex þúsund miðar seldust á leikritið Fló á skinni á fyrsta miðasöludegi Borgarleikhússins fyrir komandi leikár á föstudaginn. „Þetta var besti miðasöludagur í sögu leikhússins,“ segir Sváfnir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Borgarleikhússins. „Aldrei hafa fleiri miðar selst á staka sýningu á einum degi.“ Hann segir miðasöluna í anddyrinu hafa fyllst strax klukkan tíu um morguninn og biðröð hafi verið út á götu allan daginn. „Viðtökurnar voru það góðar að símkerfið hrundi og það þurfti að endurræsa það til að það kæmist aftur af stað.“ - vsp Leikritið Fló á skinni vinsælt: Sex þúsund mið- ar á fyrsta degi LÖGREGLUMÁL „Ég verð bara að bíða fyrir utan alla nóttina með haglabyssu eða einhverja kylfu,“ segir Örn Ægisson, íbúi að Mjóstræti í Grjóta þorp- inu. Örn segir fíkniefnaneytendur líta á Grjóta- þorpið sem fríríki og ógna öllum frið í hverfinu. Örn segir að tvisvar sinnum hafi verið brotist inn til sín síðasta hálfan annan mánuðinn og einu sinni brotist inn í bílinn hans. „Það var farið inn hjá mér klukkan þrjú að degi til. Þeir bara rifu upp gluggann,“ segir Örn. „Svo fóru þeir einu sinni inn þegar ég var heima. Ég var bara uppi á lofti að skúra og dyrnar voru opnar.“ Þjófarnir tóku sjónvarp, stafræna myndavél, fartölvu, kíki og nokkuð af peningum. „Þeir koma drukknir á bílunum sínum og leggja hérna fyrir utan og halda að enginn sjái þá reykja hass og dópa sig inni í bílunum. Þeir halda að þetta sé einhvers konar fríríki,“ segir Örn. „Svo er ég búinn að vera að tína upp nálar og sprautur fyrir utan hjá mér og mannaskít. Þetta er algjör viðbjóður.“ Örn segir lögregluna lítið geta aðhafst, þar sem mennirnir séu fljótir burt. „Lögreglan mætti keyra hérna um oftar,“ segir Örn. „Eða miðborgar- verðirnir.“ - sgj Fíklar brjótast inn í hús og hægja sér í görðum, segir íbúi í Grjótaþorpi: Grjótaþorpið eins og fríríki ÖRN ÆGISSON Íbúar í Grjótaþorpi eru orðnir langþreyttir á subbuskap og smáglæpum sem fylgja fíkniefnaneyslu í hverf- inu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Villtir ferðamenn Tveir erlendir ferðamenn villtust á Fimmvörðuhálsi í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli komust mennirnir í nærliggjandi skála og eru báðir ómeiddir. Færra á menningarnótt Nokkru minna var af fólki í miðbæn- um á menningarnótt í ár en fyrri ár. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur votviðri um að kenna. Mikill fjöldi var þó í bænum og fjölgaði fólki eftir því sem leið á daginn. Að sögn lögreglunnar gekk dagurinn áfalla- laust fyrir sig. LÖGREGLUFRÉTTIR FÆREYJAR Sannkallað handboltafár er í Færeyjum vegna góðs gengis íslenska karlalandsliðsins í handknattleik á Ólympíuleikunum í Peking. Slíkur er áhuginn að ríkisstjórn Færeyja „Landsstýrið“ gerði hlé á fundi sínum til að fylgjast með leik Íslendinga gegn Spánverj- um á föstudag- inn. „Fólk í Færeyjum er mjög spennt og vonar að Íslendingum gangi vel,“ segir Helena Dam á Neystabø, dóms- málaráðherra Færeyja. Hún ætlar sjálf að fylgjast með úrslitaleik Íslendinga og Frakka í dag. „Ég verð greinilega var við mikinn áhuga á þessum leik hérna,“ segir Eiður Guðnason, sendiherra og aðalræðismaður í Færeyjum. Hann ætlar að vera með opið hús í Fútastovu, aðal- ræðis skrifstofu Íslands í Þórshöfn í Færeyjum. „Ég er búinn að fá stóran sjónvarpsskjá lánaðan og ætla að vera með opið hús frá klukkan hálfníu að færeyskum tíma og sýna leikinn.“ - ovd Handboltafár í Færeyjum: Hlé gert á ríkis- stjórnarfundi EIÐUR GUÐNASON SLYS Keyrt var á fimm ára gamlan dreng við Lönguhlíð á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vakthafandi læknir á slysadeild Landspítalans sagði líðan hans eftir atvikum góða og taldi að hann hefði brotnað á hægri fótlegg. Drengur- inn var í rannsókn þegar blaðið fór í prentun en talið var að ekkert amaði frekar að drengnum. Drengurinn var á ferð með móður sinni og voru þau mæðgin að koma af tónleikum á Miklatúni að talið er. Mikið fjölmenni var í nágrenninu og bar fjölda fólks að slysstaðnum. - shá Keyrt á fimm ára dreng: Fótbrotnaði en slapp annars vel VIÐ LÖNGUHLÍÐ Sá stutti slapp betur en á horfðist í fyrstu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.