Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 8
8 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
FYRIR EFTIR
OPNI HÁSKÓLINN
í háskólanum í reykjavík
HAGNÝTT NÁM FYRIR STJÓRNENDUR:
OPNI HÁSKÓLINN – StjórnMennt
Gull í mund – þekkingaráskrift
Einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki
og stofnanir til að senda valinn
hóp stjórnenda á erindi átta
leiðbeinenda í heimsklassa og
skerpa þannig á áherslum í
stjórnun og rekstri (8 skipti).
opnihaskolinn.is
Auðlind einstaklinga – Auðlind atvinnulífsins
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
2
4
6
7 venjur til árangurs
Vinnustofa sem byggir á verkum Stephen
R. Covey, The 7 habits of highly effective
people/The 8th habit – From Effectiveness
to Greatness.
Við leggjum rækt við grunngildi, viðhorf
og verklag þitt þannig að þú uppskerir
aukinn árangur í starfi, rekstri og lífi!
Næsta opna vinnustofa er 29.-31. október
(20 klst).
Leiðtoginn og samskiptahæfni
9. september (33 klst.)
Fjármál stjórnandans
9. september (42 klst.)
Grunnþættir í mannauðsstjórnun
10. september (36 klst.)
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu
23. september (56 klst.)
Stjórnun og forysta í skólaumhverfi
18. september (30 eininga ECTS-nám)
Stjórnendur framtíðar
9. október (81 klst.)
Persónuleg forysta – 7 venjur
til árangurs
29. til 31. október (20 klst.)
Coaching Clinic – Að laða fram
það besta í öðrum
16. og 17. október (2 dagar)
Í samstarfi við
Kynntu þér þessi námskeið nánar á heimasíðu Opna háskólans.
DÓMSMÁL Tuttugu og þriggja ára
karlmanni hefur verið birt ákæra
fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás sem hann framdi á
Hverfisgötu í júlí fyrir rúmu ári.
Árásin átti sér stað á horninu
við Klapparstíg. Þar sló maðurinn
jafnaldra sinn krepptum hnefa í
andlitið. Þá sló hann manninn
einnig tvisvar sinnum í höfuðið
með gler flösku þannig að flaskan
brotnaði.
Við aðfarirnar hlaut þolandinn
glóðarauga vinstra megin, eymsli
yfir kinnbeini og sár aftarlega á
höfði vinstra megin. Hann krefst
ríflega hálfrar milljónar í
skaðabætur. - sh
Ákærður fyrir líkamsárás:
Lét flöskuhögg
dynja á manni
SKÓGRÆKT Landsmenn eru hvattir
til þess að safna birkifræi og
koma því til Hekluskóga.
„Nú eru tilbúin landssvæði
sem má sá í beint sem er mun
ódýrara en að planta hríslum,“
segir Hreinn Óskarsson, verk-
efnisstjóri Hekluskóga og bætir
við að óvenju mikið sé af fræi á
birkitrjám í ár.
„Sumarið í fyrra var mjög
þurrt sem þýðir að birkið mynd-
ar mikið af fræjum,“ segir
Hreinn. „Þetta er eitt mesta
fræár sem menn muna eftir.“
Hreinn vill því nota tækifærið í
ár og fá almenning til að styðja
við verkefnið.
„Það er hægt að týna fræin og
senda þau beint til Hekluskóga
en við verðum líka með móttöku
við gömlu rafstöð Orkuveitunnar
í Elliðaárdal.“
Í Reykjavík má víða finna birki
og því ekki nauðsynlegt að fara
lengra en út í garð.
„Við mælumst til þess að fólk
þurrki fræin, hafi þau blotnað, til
þess að tryggja að þau komist
heil til okkar,“ segir Hreinn.
„Þótt pokinn sé lítill þá getur
hann skipt heilmiklu því að í einu
grammi af birkifræjum geta
verið allt að þúsund spírandi
fræ.“ Sáð verður frá Hrauneyj-
um að Gunnarsholti á Rangár-
völlum.
- hþj
Landsmenn hvattir til að týna birkifræ fyrir Hekluskóga:
Óvenjumikið af birkifræi í ár
BIRKIFRÆIN MÁ FINNA VÍÐA Það er
ódýrara að sá fræjunum en að gróður-
setja eitt tré í einu. Birkitrén koma í veg
fyrir sandfok.
FJÖLMIÐLAR Ný sendir Bylgjunnar
var nýlega settur upp á Náma-
fjalli við Mývatn. Á sendirinn að
gera hlustendum kleift að hlusta
á svæðinu í kringum Mývatn og á
þjóðvegi eitt til austurs yfir
Mývatnsöræfin. Nýi sendirinn
hefur tíðnina 97,9 Mhz.
Ætlunin er að setja upp fleiri
senda til að tryggja hlustendum
góð skilyrði hringinn í kringum
landið. - kg
Bylgjan næst víðar:
Nýr sendir við
Námafjall
SKAGAFJÖRÐUR Sveitarstjórnar-
fulltrúar Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði
telja ekki annað koma til greina
en að leggja nýja háspennulínu
yfir héraðið í jörð. Þeir setja
einnig spurningarmerki við
umfang framkvæmdanna.
Samkvæmt tilkynningu telja
fulltrúar flokkanna að það að
leggja slíkar línur í gegnum
blómleg byggðarlög sé tákn um
úrelt viðhorf. Eina ásættanlega
leiðin sé að leggja línuna í jörðu.
Hægt sé að ná tilsettum mark-
miðum um orkuflutninga og
kostnað, ásamt því að lágmarka
neikvæð áhrif á náttúru og
samfélag, með því að miða við
lægri spennu og leggja nýja
byggðalínu í jörð.
- kg
VG og Sjálfstæðisflokkur:
Leggja skuli
nýja línu í jörð
SIGLINGAR Siglingastofnun hefur verið falið að vinna
að hönnun og uppbyggingu stórskipahafnar á
vesturströnd Ástralíu. Í ráðgjafateyminu verða auk
íslensku sérfræðinganna ráðgjafar frá JFA Consult-
ants í Ástralíu og HR Wallingford í Bretlandi, en
framkvæmdaraðilinn er fyrirtækið Oakajee Port
and Rail sem er í eigu japanska fyrirtækisins
Mitsubishi og hins ástralska Murchison Metals.
Áætlað heildarverðmæti framkvæmdarinnar er um
120 milljarðar íslenskra króna.
Undanfarin ár hefur hönnun íslenskra brimvarnar-
garða vakið athygli erlendis vegna hagkvæmni og
nothæfni við óblíðar aðstæður. Sérfræðingar
Siglingastofnunar á hafnasviði hafa áratuga reynslu
og hafa verið eftirsóttir til fyrirlestra og samstarfs
um hafnargerð í öðrum löndum.
Fullbúnir verða kantar í nýju höfninni fyrir þrjú
svokölluð „cape“-skip sem eru um 300 metra löng og
þurfa 20 metra dýpi við kant og sex „panamax“-skip
sem sem eru um 225 metra löng og þurfa 14,5 metra
dýpi við kant. Gert er ráð fyrir að höfnin verði tekin
í notkun árið 2012. - shá
Siglingastofnun tekur þátt í framkvæmd að virði rúmlega 120 milljarða króna:
Hanna risahöfn í Ástralíu
Skóladráp í Tennessee
Nemandi við gagnfræðaskóla í Knox-
ville í Tennessee skaut á fimmtudag
16 ára gamlan skólabróður sinn til
bana í mötuneyti skólans. Sá sem
skaut var handtekinn skömmu síðar.
Engan annan sakaði.
BANDARÍKIN
1 Hvaða lið unnu Íslendingar í
undanúrslitum ÓL í handbolta?
2 Hversu margir Íslendingar
hafa unnið til verðlauna á ÓL
fyrir utan handboltalandsliðið?
3 Hvað hét færeyska söngkon-
an sem söng á menningarnótt?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
RISAOLÍUSKIP Þetta skip gefur hugmynd um stærð þeirra
skipa sem nýja höfnin á að taka á móti. MYND/LHG
VEISTU SVARIÐ?