Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 38
Sérfræðilæknir Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við skurðlækningadeild á skurðlækningasviði. Starfshlutfall er 100% og veitist staðan frá 1. janúar 2009. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu í almennum skurðlækningum, með skurð- lækningar í efri hluta meltingarvegs sem undirsér- grein/ sérsvið. Starfsvettvangur innan LSH verður bæði á Hringbraut og í Fossvogi. Starfi nu fylgir umtalsverð vaktabyrði. Sérfræðilæknirinn tekur þátt í kennslu og vísindavinnu á deildinni og er því æskilegt að hann hafi reynslu á því sviði. Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum eyðublöðum sem fi nna má á heimasíðu Land- spítala, fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjór- nunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. Umsóknargögn berist í tvíriti fyrir 1. október 2008 til Páls H. Möller, yfi rlæknis skurðlækninga- deildar 13A við Hringbraut, sími 534 1000, net- fang pallm@landspitali.is og veitir hann jafnframt upplýsingar um starfi ð. Mat stöðunefndar byggist á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfi ð einnig á þeim. Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á heimasíðu LSH. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og sjúkrahús- lækna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sjúkraliði Sjúkraliði óskast til starfa á almenna skurðdeild 12G við Hringbraut. Vinnutími og starfshlutfall er samkomulag. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúk- linga með neðri meltingarfæravandamál ásamt hjúkrun sjúklinga sem leggjast inn vegna bráðra vandamála. Styrkleiki deildarinnar felst í góðum starfsanda og góðri samvinnu allra stétta. Einstak- lingshæfð hjúkrun er stunduð á deildinni og góð aðlögun er í boði. Umsóknir skulu berast fyrir 8. september 2008 til Elínar Maríu Sigurðardóttur, hjúkrunardeildarstjóra 12G og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543 7343/ 7250, netfang elinmsig@landspitali.is. Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á almenna skurðdeild 12G við Hringbraut. Starfshlutfall samkomulag. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúk- linga með neðri meltingarfæravandamál ásamt hjúkrun sjúklinga sem leggjast inn vegna bráðra vandamála. Styrkleiki deildarinnar felst í góðum starfsanda og góðri samvinnu allra stétta. Einstaklingshæfð hjúkrun er stunduð á deildinni og góð aðlögun er í boði með reyndum hjúkrunarfræðingi. Umsóknir skulu berast fyrir 8. september 2008 til Elínar Maríu Sigurðardóttur, hjúkrunardeildarstjóra 12G og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543 7343/ 7250, netfang elinmsig@landspitali.is. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttar- félags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upp- lýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður Vélavörður Vísir hf óskar eftir vélaverði sem getur leyst af sem yfi rvélstjóri. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 4205700. Rafkaup hf - Ármúla 24 - 108 Reykjavík - www.rafkaup.is Rafkaup hf er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lömpum, lampabúnaði, ljósaperum og innlagnaefni. Markmið Rafkaups er að vera ávall í fremstu röð varðandi þjónustu og markaðssetningu á þeim vörum sem fyrirtækið selur. Rafkaup er umboðsaðili margra þekktra vörumerkja eins og SYLVANIA, DELTA LIGHT og TARGETTI. Rafkaup var stofnað árið 1982. Rafkaup óskar eftir að ráða í eftirtalin störf. 1. Bókhald - fjármál - laun: Starfið felur í sér færslu bókhalds, umsjá fjármála og launa, ásamt almennum skrifstofustörfum. 2. Innflutningur - pantanir o.fl.: Starfið felur í sér pantanir og samskipti við erlenda birgja, tollskýrslugerð, umsjón með birgðahaldi ásamt almennum skrifstofustörfum. 3. Sölumaður heildsölu: Starfið felur í sér sölu- og tilboðsgerð til endursöluaðila. Ráðgjöf við val á lýsingu og lýsingarbúnaði. Samskipti við hönnuði. Reynsla af sambærilegu starfi æskileg. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist á oskar@rafkaup.is fyrir 25. ágúst. Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru: – við leitum að fólki Helstu verkefni björgunarsveita Helstu verkefni slysavarnadeilda Björgun mannslífa og verðmæta við margvíslegar aðstæður Leitir að týndu fólki hvenær sem er sólarhringsins, alla daga ársins Fjölbreytt þjálfun, m.a. í skyndihjálp og fjallamennsku Vinna við forvarnir af ýmsu tagi, t.d. í sambandi við börn, ferðamennsku, í umferðinni og á heimilum aldraðra Öflun fjár til góðra verka eða til stuðnings björgunarsveitum Þátttaka í útköllum björgunarsveita Áhugi á björgunarstörfum og/eða slysavarnastörfum Fórnfýsi og vilji til að láta gott af sér leiða Engin laun önnur en ánægja af vel unnu starfi Skemmtilegur félagsskapur sjálfboðaliða Hagnýt þjálfun og kunnátta sem getur bjargað mannslífum Á heimasíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, www.landsbjorg.is, getur þú fundið björgunarsveit eða slysavarnadeild í þínu sveitarfélagi, upplýsingar um kynningarfundi og tengiliði. Skrifstofa okkar veitir einnig upplýsingar í síma 570 5900. Sláðu til og láttu gott af þér leiða. Slysavarnafélagið Landsbjörg leitar eftir áhugasömu fólki á öllum aldri til starfa í björg- unarsveitum og slysavarnadeildum félagsins. Um að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á margs konar hæfileika. Viðfangsefnin eru af ýmsum toga, í senn krefjandi og þroskandi, og veita fólki þar að auki reynslu sem nýtist vel í daglegu lífi. Slysavarnafélagið Landsbjörg er stærstu sjálfboðaliðasamtök landsins, með um 100 björgunarsveitir og um 80 slysavarnadeildir um land allt. Meðlimir félagsins sinna fjölbreyttum störfum allt árið um kring. Yfir 80 ára reynsla félagsins í slysavörnum er traustur grunnur undir starf slysavarna- deilda sem hafa unnið þrekvirki á undan- förnum áratugum. Öflugur tækjakostur björgunarsveita, markvisst þjálfunar- og fræðslustarf og skilvirkt stjórnkerfi tryggja skjót viðbrögð við vá og fagleg vinnubrögð þeirra á vettvangi. Hæfniskröfur Í boði eru Umsóknir Leitum við að þér?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.