Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 72
sport@frettabladid.is Keflvíkingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir fengu Þróttara í heimsókn á Sparisjóðsvöllinn í Keflavík. Gestirnir áttu ekkert svar við hröðum sóknarleik heimamanna og niðurstaðan var 5-0 sigur Keflavíkur sem hirti toppsætið á kostnað FH. FH-ingar sóttu án afláts gegn Grindavík en fundu ekki leið framhjá markverðinum Zankarlo Simunic sem fór á kostum í 0-1 sigri Grindavíkur. Þetta var sjötti útisigur Grindavíkur í sumar. Íslandsmeistarar Vals voru búnir að vera á mikilli siglingu í deildinni þegar botnbaráttulið HK kom í heimsókn á Vodafone-völlinn en gestirnir hirtu öll stigin. HK-ingar unnu einnig fyrri leik liðanna á Kópavogsvelli. Skagamönnum veitti heldur ekki af stigum en voru ekki jafn lánsamir á Fylkisvelli og urðu að sætta sig við jafntefli gegn Fylki eftir að hafa leitt leikinn mestallan síðari hálfleik. Tvö mörk í blálokin frá Guðjóni Baldvinssyni nægðu til þess að tryggja KR-ingum 0-2 sigur gegn Fram á Laugardalsvelli en fyrri leikur liðanna á KR-velli fór einnig 2-0 og þá skoraði Guðjón annað mark KR. 16. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: HK-INGAR EYGJA ENN VON FH og Valur misstigu sig illilega TÖLURNAR TALA Flest skot: 23, FH Flest skot á mark: 13, Fylkir Fæst skot: 4, Grindavík Hæsta með.ein.: 7,0 Keflavík Lægsta meðaleink.: 4,3 Þróttur Grófasta liðið: 17 brot, Fylkir Prúðasta liðið: 6 brot, Keflavík Flestir áhorf.: Fram-KR, 1.162 Fæstir áhorf.: Valur-HK, 713 Áhorfendur alls: 5.322 > Besti dómarinn: Eyjólfur Kristinsson fékk hæstu einkunn hjá Fréttablaðinu fyrir 16. umferð Landsbankadeildarinnar en hann fékk 9 fyrir að dæma leik Íslands- meistara Vals og HK á Vodafone- vellinum. >Atvik umferðarinnar Kristján Valdimarsson, varnarmaður Fylkis, fór meiddur af velli gegn ÍA eftir að Fjalar Þorgeirsson, markvörður Fylkis, keyrði hann niður. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað að þetta er í annað skiptið í sumar sem Fjalar skilur Kristján eftir óvígan á vellinum því varnarmaðurinn þurfti einnig að yfirgefa völlinn í Evrópuleik gegn FK Riga. >Ummæli umferðarinnar „Mig langar að fara og fá mér kaffi og fara svo upp á Skaga og spila leikinn. Þannig er hugarfarið hjá okkur,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður HK, eftir sigur- leik gegn Val þegar hann var spurður út í næsta leik HK gegn ÍA. Zoran Stamenic (3) Guðjón Baldvins. (5) Hörður Árnason Hans Mathiesen Guðmundur Steinarsson (4) Aaron Palomares (2) Finnur Orri Margeirs. (2) Hólmar Örn Rúnarsson (7) Símun Samuelsen Guðmundur Kristjáns. (2) Zankarlo Simunic (2) FÓTBOLTI Keflvíkingar hafa verið í toppbaráttunni í allt sumar og eftir 5-0 sigurinn gegn Þrótti náðu þeir að endurheimta toppsætið af FH-ingum. Keflvíkingar eru nú taplausir í síðustu átta leikjum sínum í röð í deildinni og hafa unnið fimm af þeim leikjum. Símun Samuelsen segir þó að Keflvíkingar verði að halda áfram á sömu braut og sýna það og sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir geti spilað vel út heilt tíma- bil. Verðum að vera tilbúnir á móti KR „Það eru náttúrulega enn sex leik- ir eftir og það er mikilvægt að við náum að halda okkar striki áfram og taka bara einn leik í einu. Síð- asti leikur gegn Þrótti var mjög góður hjá öllu liðinu og við þurf- um bara að halda áfram,“ segir Símon. „Næsta verkefni er útileikur gegn KR og ég hef mikla trú á því að við verðum mjög vel stemmdir fyrir þann leik. Við unnum þá á okkar heimavelli og ég veit að KR-ingar vilja eflaust hefna fyrir það þannig að við verðum að vera tilbúnir. Við vitum alveg hvar við erum í deildinni en það þýðir ekk- ert að einblína á það núna og ég horfi ekki einu sinni á stigatöfl- una,“ segir Símun. Stöðugleiki er lykillinn Símun er ánægður með eigin spilamennsku í sumar sem og Keflavíkurliðsins i heild og telur að lykillinn að árangri sé að ná að fækka lélegu leikjunum. „Þetta er búið að vera mjög fínt. Maður er hins vegar aldrei almennilega sáttur og það er allt- af eitthvað sem má betur fara. Ég fór rólega af stað í upphafi móts en tel að ég sé búinn að vera stöð- ugur í mínum leik eins og allt liðið í rauninni. Við höfum náð nokkr- um toppleikjum en það sem er mikilvægast er að við höfum náð að fækka lélegu leikjunum,“ segir Símun. „Liðsheildin er líka virkilega sterk hjá Keflavík og Það eru allir sem standa saman og vinna leik- ina sem lið. Leikmannahópurinn er stór og sterkur og það er mikil barátta um stöður í liðinu og það er mjög jákvætt og hjálpar liðinu mikið. Byrjunarliðsmennirnir hverju sinni þurfa að vera á tánum og varamennirnir sem koma inn á þurfa að virkilega að grípa tækifærið þegar það gefst til þess að sýna það að þeir eiga heima í byrjunarliðinu,“ segir Símun. Deildin er skemmtilegri Sóknarleikurinn hefur verið aðalsmerki Keflavíkur í sumar sem og undanfarin ár og Símun er ánægður með að liðin í deildinni sem þora að sækja af krafti séu að skipa sér í efstu sætin. „Mér finnst Landsbanka- deildin skemmtilegri núna en oft áður. Sóknarleikur- inn er í fyrirrúmi hjá mörg- um liðum og það er skorað mikið af mörkum. Ég fagna því bara að sóknarliðin virð- ast vera að skipa sér í efstu sæti deildarinnar í sumar. Við leggjum leikina okkar alla vega þannig upp að skora bara meira en móth- erjinn og það hefur gengið ágætlega hingað til,“ segir Símun. omar@frettabladid.is Horfi ekki einu sinni á stigatöfluna Hinn færeyski Símun Samuelsen hjá Keflavík fór á kostum þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö í 5-0 sigri gegn Þrótti. Miðjumaðurinn sterki er fyrir vikið leikmaður 16. umferðar hjá Fréttablaðinu. Símun er ánægður með spilamennsku toppliðs Keflvíkinga í sumar en minnir á að enn eru sex leikir eftir. ELDFJÓTUR Hinn eld- fljóti Símun hefur oft og tíðum valdið usla í vörnum andstæðinganna í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BARÁTTA Keflvíkingurinn Símun er hér í baráttu við Valsarann Rasmus Hansen í jafnteflisleik liðanna á Vodafone-vellinum fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Topplið Keflavíkur í Landsbankadeild karla sækir KR- inga heim í 17. umferð í kvöld og leikmenn Keflavíkur ættu að geta verið bjartsýnir á hagstæð úrslit. Keflvíkingar hafa nefnilega verið með gott tak á Vesturbæing- um síðustu árin og töpuðu síðast fyrir KR 10. júní 2002 eða fyrir rúmum sex árum. Síðan þá hafa liðin spilað ellefu deildar- og bikarleiki, Keflavík hefur unnið sjö þeirra og fjórir hafa endað með jafntefli. Sigur KR á Keflavík fyrir sex árum var í Keflavík og það er enn lengra síðan Keflavík tapaði í Vestur- bænum en það gerðist síðast 18. júní 2001. - óój Tak Keflvíkinga á KR-ingum: Ellefu leikir í röð án taps EKKI NÓG Björgólfur Takefusa hefur skorað í síðustu fjórum deildarleikjum (5 mörk) KR og Keflavík en enginn þeirra hefur unnist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Bikarmeistarar KR eru komnar í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð og í þriðja sinn á fjórum árum eftir sannfærandi 4-2 sigur á Blikum í gær. KR sló Blika einnig út úr undanúrslitunum þegar liðið vann bikarinn í fyrra. KR mætir þar með Íslandsmeisturum Vals í draumaúrslitaleik á Laugardals- vellinum 20.september en þetta eru tvö efstu liðin í Landsbanka- deild kvenna. KR-konur ætluðu greinilega ekki að láta Blikastúlkur taka af sér annan titilinn í sumar en 3-1 sigur Breiðabliks á KR á dögunum gerði að mestu út um meistara- vonir KR. Blikastúlkur voru búnar að vinna níu leiki í röð en skelfilegur fyrri hálfleikur gerði út um allar vonir liðsins í þessum leik. KR hefur nú unnið góða sigra á liðunum í 1. og 3. sæti í síðustu leikjum og er til alls líklegt á lokasprettinum. KR-liðið tók öll völd frá fyrstu mínútu leiksins og þær Hrefna Huld Jóhannesdóttir og Hólm- fríður Magnúsdóttir komu liðinu í 2-0 á fyrstu níu mínútum leiksins. Þriðja markið kom síðan á 21. mínútu, en það var slysalegt sjálfsmark, og síðan átti Hólm- fríður bæði skalla og skot í slána áður en hálfleiknum lauk. Blikar gáfust ekki upp og sýndu allt annan og betri leik eftir hlé en það dugði ekki til. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir kom KR í 4-0 með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu Eddu Garðarsdóttur áður en Blikar minnkuðu muninn með tveimur mörkum. Sara Björk Gunnarsdóttir skor- aði fyrst glæsilegasta mark leiks- ins, þegar hún skoraði með þrumuskoti af löngu færi og Erna Björk Sigurðardóttir skoraði síðan laglegt skallamark á 76. mínútu. Nær komust Blikar ekki og KR er komið í bikarúrslit kvenna í níunda sinn. - óój Sigurganga Blikastúlkna endaði á móti KR í undanúrslitum Visa-bikars kvenna í gær: Draumaúrslitaleikur milli KR og Vals ALVÖRU TÆKLING Hólmfríður Magnúsdóttir átti frábæran fyrri hálfleik og hér hefur hún tæklað Blikann Örnnu Birnu Þorvarðardóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson hefur gert þriggja ára samning við búlgarska stórliðið CSKA Sofia. Garðar innsiglaði samning- inn eftir að hafa skorað mark og lagt upp annað í æfingaleik í fyrrakvöld. Garðar hefur leikið með IFK Norrköping í Svíþjóð síðasta eina og hálfa árið þar sem hann skoraði 30 mörk í aðeins 45 leikjum. CSKA vann meistaratitil- inn í 31. sinn síðasta vor. - óój Garðar Gunnlaugsson: Búinn að semja við CSKA Sofia FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson skoraði mark Stabæk í 1-1 jafntefli í Íslendingaslagnum á móti Lyn í norsku úrvalsdeildinni í gær. Markið skoraði Veigar Páll á 57. mínútu og kom Stabæk yfir en Diego Guastavino jafnaði átta mínútum síðar. Veigar Páll spilaði allan leikinn eins og Indriði Sig- urðsson hjá Lyn en Pálmi Rafn Pálmason kom inn á sem vara- maður hjá Stabæk 11 mínútum fyrir leikslok. Þetta var fimmta mark Veigars á tímabilinu en Stabæk er með 5 stiga forskot á toppnum. - óój Norska úrvalsdeildin: Veigar skoraði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.