Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 71
SUNNUDAGUR 24. ágúst 2008
Arnar Grant er sigursælasti Fitnesskepp-
andi okkar Íslendinga. Nú stefnir hann á
sigur á Norðurlandamóti sem verður haldið
hér á landi í október.
„Fjölskyldan mín er orðin hálfþreytt á þessu, því
þetta er alltaf síðasta mótið,“ segir Arnar Grant
sem undirbýr sig nú af krafti fyrir Norðurlanda-
mót í fitness sem haldið verður hér á landi þann
19. október. Nú eru um átta vikur í mótið og er
Arnar byrjaður að æfa eins og óður maður, en
hann hefur aldrei byrjað undirbúning jafn
snemma fyrir nokkurt mót. Ástæða þess er góð.
„Núna stefni ég á fyrsta sætið,“ segir Arnar. „Það
er ekkert annað í boði. Ég hef aldrei lent í öðru
sæti, ég er í raun eins og Kristinn Björnsson. Það
er annaðhvort fyrsta sætið eða úr leik,“ segir hann
og hlær. Arnar hefur tvisvar áður tekið þátt í
þessu sama móti og þá lent í áttunda og sjötta
sæti. Árið 2004 var hann þó fyrstur í samanburð-
inum.
Arnar var hættur að keppa en síðastliðið haust
ákvað hann að taka þátt í móti að gamni og vann
það. Þar með vann hann sér inn þátttökurétt á
Norðurlandamótinu. „Mér fannst það ekkert svo
merkilegt í fyrstu. Svo kom í ljós að mótið verður
haldið hér og því finnst mér það skylda mín að
sýna sportinu þá virðingu að taka þátt,“ segir
hann.
En hvaða árátta er þetta að geta ekki hætt í
sportinu? „Þegar maður er í formi þá einhvern
veginn verður maður að fá að reyna sjálfan sig,
þetta er eins og að eiga sportbíl, þú vilt fá að prófa
hvað hann getur annað slagið,“ segir Arnar. „Þetta
er eins að eiga líkama í dúndurformi, þú vilt fá að
reyna hvað þú getur gert með hann.“
Arnar segist ætla að hætta eftir Norðurlanda-
mótið, en það þýðir ekki að leggist í dvala, heldur
hefur hann í nógu að snúast. Hann og Dísa í World
Class eru að fara að gefa út líkamsræktar-DVD-
disk. Þá hyggst hann einnig einbeita sér að
heilsuvörum sem hann og Ívar Guðmundsson hafa
komið á markað. „Það verða nýjungar í því með
haustinu,“ segir Grant.
soli@frettabladid.is
Stefnir á sigur í fitness
GRANT Svona lítur Arnar Grant út átta vikum fyrir stóra Norður-
landamótið. Menn geta rétt ímyndað sér hvernig útlitið verður
á keppnisdaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ragnar Zolberg segir stripp gítar-
leikarans Arnars á GayPride í
Doncaster standa upp úr á tón-
leikaferðalagi þeirra um Bretland.
Arnar fór úr öllu nema sokkunum.
„Ég sá það nú ekki sjálfur og vissi
ekki af því,“ segir Ragnar. „Hann
var búinn að segjast ætla að koma
okkur á óvart. Það var mjög fyndið
og skemmtilegt. Það voru voða
misjafnar undirtektir, sumir voru
mjög hneykslaðir en aðrir voru
bara í svaka stuði. Þetta er líka
svona bær þar sem gerist ekkert
rosalega mikið þannig að eitthvað
svona er alveg nægt slúðurefni
næstu mánuðina. Ég held að það sé
bara hans eðli og hann hafi löngun
til að bera sig og það hafi fylgt
honum frá blautu barnsbeini.“
Ferðalaginu lauk á Kerrang-
verðlaunahátíðinni, þar sem Sign
fengu gullplötu fyrir ábreiðu sína
af Run to the Hills eftir Iron Maid-
en, en lagið kom út á safnplötu frá
Kerrang. „Þetta var bara mjög
gaman, ótrúlega fínt. Öll stærstu
nöfnin í rokkgeiranum voru
þarna.“
Sign spilar í dag fyrir ofan
tattoo-stofuna Reykjavík Ink.
Verður meira stripp í boði? „Ef
það er eitthvað „móment“, þá er
aldrei að vita. Ef það er eitt sem
ég get sagt um hann Arnar þá er
það að hann er einn sá óútreiknan-
legasti karakter sem ég hef nokk-
urn tíma kynnst.“
Hann segir planið fyrir vetur-
inn í vinnslu. „Við verðum eitt-
hvað að spila og svo þurfum við
líka að vinna eitthvað þess á milli.
Lifa eðlilegu lífi líka. En veturinn
er bara spennandi.“ - kbs
Í hans eðli að vilja bera sig
GULLPLATA OG STRIPP Hljómsveitin
Sign lauk nýlega tónleikaferð sinni um
Bretland.
Sett upp í Reykjavík
í samstarfi við
Loksins í Borgarleikhúsinu
Gríptu Flóna strax því sýningafjöldi er takmarkaður
Taktu Flóna í áskrift ásamt þremur öðrum spennandi
leiksýningum og þá bíður þín góður leikhúsvetur.
Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is. Áhorfendasýning
ársins
MIÐASA
LA
HAFIN
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is