Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 24
6 matur ÁRVISS ÁBÆTIR Síbería er frauðkennd blanda af skyri, mjólk og sykri með berjum inn á milli og ofan á. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég kynntist þessum eftirrétti í gegnum pabba minn sem ólst í rauninni upp á vestfirskum aðalbláberjum í eftirrétt þegar hann var barn,“ segir Ásdís brosandi og bætir við að nafn réttarins sé einnig hug- arsmíð hans. „Nafn réttarins er Síbería eins og svæðið í Rússlandi vegna þess að það eru alltaf til ber í réttinn. Það eru ber sí og æ og allt árið um kring, bæði frosin og fersk.“ Ásdís segir að vinum hennar finnist gaman að elda hvort fyrir annað og hún sé iðulega beðin um að koma með Síberíu í eft- irrétt. „Rétturinn er mjög vinsæll hvert sem ég fer enda er hann bæði fljótlegur og nokkuð hollur.“ „Í sumar hef ég aðeins verið að þróa Síb- eríu með Mattheu vinkonu minni, sem hefur mjög gaman af því að dunda sér í eldhús- inu,“ segir Ásdís og útskýrir að sú þróun hafi aðallega falist í því að prófa hinar ýmsu berjategundir. - mmf Ásdís Ólafsdóttir segir Síberíu vinsæla hvert sem hún kemur með hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 500 g venjulegt ósykrað skyr eða vanilluskyr 1/2 l mjólk 200 g ber af hvaða tagi sem er Sykur Skyrinu og mjólkinni er blandað saman og sykrað eftir smekk. Þá er þessu þeytt saman í fimm mínútur á háum styrk þar til blandan verður létt og frauðkennd. Eftir það er skálinni stungið í frysti til að blandan verði ísköld en þó ekki frosin. Þá eru berin tekin og hituð í potti þannig að sum berjanna springi en önnur ekki. Berin eru svo líka sykruð eftir smekk. Kaldri skyrblöndunni er þá hellt í glas og fyllt til hálfs. Örlitlu af heitu berjunum er hellt yfir áður en sett er meira af skyrblöndunni til að fylla næstum upp í glasið sem svo er fyllt af heitum berjum á toppnum. Ef vill má setja ofan á þetta smávegis af þeyttum rjóma og skreyta með berjum efst. SÍBERÍA Fyrir sex manns FR ÉT TA BL A Ð IÐ /A N TO N Samstarfskonur mínar hafa mikinn áhuga á sultugerð og sá áhugi er bráðs-mitandi,“ segir Hildur Júlíusdóttir. Hún hefur unnið í fimmtán ár á litninga- rannsóknadeild Landspítalans þar sem ávallt er sest niður um tíuleytið til að gæða sér á hrökkbrauði, ostum og heimagerðum sultum. „Við leggjum til sulturnar en erum saman með sjóð sem við notum til að kaupa kexið og ostana. Þetta kryddar tilveruna,“ segir hún brosandi. Hildur hefur meðal annars gert marmel- aði úr gulrótum og sítrónum. „Það var til- raun sem heppnaðist vel,“ segir hún. „Ég var að fara í ferðalag og sá að gulræturnar myndu ekki ná að bíða eftir mér svo ég skellti þeim í pott ásamt fleiru og úr varð voða gott marmelaði.“ Þessa uppskrift lætur Hildur okkur í té ásamt eftirlætisuppskrift að bláberjasultu. Hvort tveggja „mjög einfalt að gerð,“ að hennar sögn. - gun Heimagerðar sultur GULRÓTA- OG SÍTRÓNUMARMELAÐI 700 g gulrætur, rifnar 4 sítrónur (safi og rifinn börkur) 400 g sykur 3 dl vatn 2 tsk blátt melatín - blandað í 1 msk sykur Gulrætur, sítrónubörkur, safi úr sítrónum, sykur og vatn sett í pott og hitað við vægan hita í 1 klst. Þá er melatín/sykurblandan sett í pottinn og hrært í á meðan soðið er áfram í eina mínútu. Þá er allt tilbúið til að setja í krukkur. (Mér dettur reyndar í hug að gott væri að nota gulrótar/appelsínu/ sítrónusafa frá Chiquita í staðinn fyrir vatnið, hef ekki prófað það.) BLÁBERJASULTA 2 kg bláber 800 g sykur 1 msk. blátt melatín - blandað í 1 msk sykur Bláber skoluð og látið renna vel af þeim. Þau eru sett í pott ásamt sykri og soðið við vægan hita í 20 – 30 mínútur. Gott er að merja bláberin létt með kartöflustappara meðan á suðu stendur. Í lokin er melatín/sykur- blandan sett í pottinn og soðið áfram í eina mínútu, hræra í á meðan. Þá er allt tilbúið til að setja í krukkur. KRUKKUR Mikilvægt er að þvo krukkur og lok. Eftir þvott hita ég þær í ofni við 100°C í um það bil hálfa klst áður en marmelaðið og sultan er sett í þær. GÓMSÆTAR SULTUR HILDAR í árdegiskaffinu Sú hefð hefur skapast á vinnustað Hildar Júlíusdóttur að hafa heima- gerðar sultur á borðum í tíu-kaffinu. Hún er því fjölfróð um sultugerð. Hildur gerir ótrauð ýmsar tilraunir í sultu- gerðinni. Síbería gleður alltaf gestina Neminn Ásdís Ólafsdóttir kann uppskrift að fljótlegum berjaeftir- rétti sem hún reynir að nota við hvert tækifæri. E M Í berjamó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.