Fréttablaðið - 24.08.2008, Side 38
Sérfræðilæknir
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við
skurðlækningadeild á skurðlækningasviði.
Starfshlutfall er 100% og veitist staðan frá
1. janúar 2009.
Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu í
almennum skurðlækningum, með skurð-
lækningar í efri hluta meltingarvegs sem undirsér-
grein/ sérsvið. Starfsvettvangur innan LSH verður
bæði á Hringbraut og í Fossvogi. Starfi nu fylgir
umtalsverð vaktabyrði. Sérfræðilæknirinn tekur
þátt í kennslu og vísindavinnu á deildinni og er
því æskilegt að hann hafi reynslu á því sviði.
Umsóknum, sem skila ber á þar til gerðum
eyðublöðum sem fi nna má á heimasíðu Land-
spítala, fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri
störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjór-
nunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af
greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða
skrifað.
Umsóknargögn berist í tvíriti fyrir 1. október 2008
til Páls H. Möller, yfi rlæknis skurðlækninga-
deildar 13A við Hringbraut, sími 534 1000, net-
fang pallm@landspitali.is og veitir hann jafnframt
upplýsingar um starfi ð. Mat stöðunefndar byggist
á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða
höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um
ráðningu í starfi ð einnig á þeim.
Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða
læknisstöðu á heimasíðu LSH. Laun eru skv.
kjarasamningi fjármálaráðherra og sjúkrahús-
lækna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við
ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Sjúkraliði
Sjúkraliði óskast til starfa á almenna skurðdeild
12G við Hringbraut. Vinnutími og starfshlutfall er
samkomulag. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúk-
linga með neðri meltingarfæravandamál ásamt
hjúkrun sjúklinga sem leggjast inn vegna bráðra
vandamála. Styrkleiki deildarinnar felst í góðum
starfsanda og góðri samvinnu allra stétta. Einstak-
lingshæfð hjúkrun er stunduð á deildinni og góð
aðlögun er í boði.
Umsóknir skulu berast fyrir 8. september 2008 til
Elínar Maríu Sigurðardóttur, hjúkrunardeildarstjóra
12G og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543
7343/ 7250, netfang elinmsig@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á almenna
skurðdeild 12G við Hringbraut. Starfshlutfall
samkomulag. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúk-
linga með neðri meltingarfæravandamál ásamt
hjúkrun sjúklinga sem leggjast inn vegna bráðra
vandamála.
Styrkleiki deildarinnar felst í góðum starfsanda
og góðri samvinnu allra stétta. Einstaklingshæfð
hjúkrun er stunduð á deildinni og góð aðlögun er
í boði með reyndum hjúkrunarfræðingi.
Umsóknir skulu berast fyrir 8. september 2008 til
Elínar Maríu Sigurðardóttur, hjúkrunardeildarstjóra
12G og veitir hún jafnframt upplýsingar í síma 543
7343/ 7250, netfang elinmsig@landspitali.is.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttar-
félags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upp-
lýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála
Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af
jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður
Vélavörður
Vísir hf óskar eftir vélaverði sem
getur leyst af sem yfi rvélstjóri.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 4205700.
Rafkaup hf - Ármúla 24 - 108 Reykjavík - www.rafkaup.is
Rafkaup hf er þjónustufyrirtæki sem
sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lömpum,
lampabúnaði, ljósaperum og
innlagnaefni. Markmið Rafkaups er að
vera ávall í fremstu röð varðandi þjónustu
og markaðssetningu á þeim vörum sem
fyrirtækið selur. Rafkaup er umboðsaðili
margra þekktra vörumerkja eins og
SYLVANIA, DELTA LIGHT og TARGETTI.
Rafkaup var stofnað árið 1982.
Rafkaup óskar eftir að
ráða í eftirtalin störf.
1. Bókhald - fjármál - laun:
Starfið felur í sér færslu bókhalds, umsjá fjármála og launa, ásamt
almennum skrifstofustörfum.
2. Innflutningur - pantanir o.fl.:
Starfið felur í sér pantanir og samskipti við erlenda birgja,
tollskýrslugerð, umsjón með birgðahaldi ásamt almennum
skrifstofustörfum.
3. Sölumaður heildsölu:
Starfið felur í sér sölu- og tilboðsgerð til endursöluaðila. Ráðgjöf við
val á lýsingu og lýsingarbúnaði. Samskipti við hönnuði. Reynsla af
sambærilegu starfi æskileg.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist á
oskar@rafkaup.is fyrir 25. ágúst.
Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru:
– við leitum að fólki
Helstu verkefni björgunarsveita
Helstu verkefni slysavarnadeilda
Björgun mannslífa og verðmæta við margvíslegar aðstæður
Leitir að týndu fólki hvenær sem er sólarhringsins, alla daga ársins
Fjölbreytt þjálfun, m.a. í skyndihjálp og fjallamennsku
Vinna við forvarnir af ýmsu tagi, t.d. í sambandi við börn, ferðamennsku,
í umferðinni og á heimilum aldraðra
Öflun fjár til góðra verka eða til stuðnings björgunarsveitum
Þátttaka í útköllum björgunarsveita
Áhugi á björgunarstörfum og/eða slysavarnastörfum
Fórnfýsi og vilji til að láta gott af sér leiða
Engin laun önnur en ánægja af vel unnu starfi
Skemmtilegur félagsskapur sjálfboðaliða
Hagnýt þjálfun og kunnátta sem getur bjargað mannslífum
Á heimasíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, www.landsbjorg.is, getur þú fundið
björgunarsveit eða slysavarnadeild í þínu sveitarfélagi, upplýsingar um kynningarfundi
og tengiliði. Skrifstofa okkar veitir einnig upplýsingar í síma 570 5900.
Sláðu til og láttu gott af þér leiða.
Slysavarnafélagið Landsbjörg leitar eftir áhugasömu fólki á öllum aldri til starfa í björg-
unarsveitum og slysavarnadeildum félagsins. Um að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á
margs konar hæfileika. Viðfangsefnin eru af ýmsum toga, í senn krefjandi og þroskandi,
og veita fólki þar að auki reynslu sem nýtist vel í daglegu lífi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg er stærstu
sjálfboðaliðasamtök landsins, með um 100
björgunarsveitir og um 80 slysavarnadeildir
um land allt. Meðlimir félagsins sinna
fjölbreyttum störfum allt árið um kring.
Yfir 80 ára reynsla félagsins í slysavörnum
er traustur grunnur undir starf slysavarna-
deilda sem hafa unnið þrekvirki á undan-
förnum áratugum. Öflugur tækjakostur
björgunarsveita, markvisst þjálfunar- og
fræðslustarf og skilvirkt stjórnkerfi tryggja
skjót viðbrögð við vá og fagleg vinnubrögð
þeirra á vettvangi.
Hæfniskröfur
Í boði eru
Umsóknir
Leitum við að þér?