Fréttablaðið - 24.08.2008, Qupperneq 11
SUNNUDAGUR 24. ágúst 2008
BRÉF TIL BLAÐSINS
Blessun bandarísku bílanna
Á umliðnum árum hafa margir bölvað
hinum stóru bandarísku pallbílum á
landinu, þó eru enn fleiri sem hafa
keypt sér slíka bíla. Þessi hluti bíla-
flotans er ekki eins slæmur og margir
halda, í raun felst hér stórkostlegt
tækifæri.
Við Íslendingar höfum, frá fyrstu
hendi, reynslu af vetnisknúnum
almenningsvögnum. Það sem sumum
þótti mæla á móti þeim farartækjum
var umfang vetnistanksins í vagninum.
Hins vegar var því haldið fram að lítið
mál væri að breyta dísel eða bensín-
mótor í vetnismótor.
Hér er tækifærið. Nýlegir bandarískir
pallbílar eru oftar en ekki mikil burðar-
dýr, og eins og nafnið gefur til kynna,
bjóða upp á prýðilegan pall til að flytja
hvað sem er.
Þegar fjölskyldubíll er með eitt til tvö
þúsund kílóa burðargetu mætti ætla að
engum yrði meint af því að nota stóran
hluta pallsins undir eldsneyti bílsins.
Hver og einn bíll sem notar vetni á
Íslandi dregur úr viðskiptahalla þjóðar-
búsins. Vetnið yrði jú framleitt á Íslandi.
Útblástur gróðurhúsalofttegunda myndi
einnig dragast saman og ef uppátækið
myndi fréttast út fyrir landsteinana
fengi það eflaust jákvæða umfjöllun.
Ef til vill á einhver erfitt með að
hugsa sér gljábónaðan bílinn sinn sem
vetnisbíl, með gráa gufu út úr púströr-
inu. Það mætti eflaust leysa með því að
setja ljósdíóðu við opið og gera þannig
gufuna bláa, græna, rauða eða samlita
bílnum.
Þormóður G. Símonarson.
Áhugamaður um umhverfismál.
Óperuhús á Kársnesi?
Nei, það gengur aldrei, sagði bæjarstjóri
Kópavogs á aukabæjarstjórnarfundi í
júlí. Á fundinum var meirihlutinn að
liðka sig í valdníðslunni sem hann
stundar gegn íbúum vesturbæjar
Kópavogs. Þar var enn einu sinni keyrt
í gegn skipulag í andstöðu við íbúana.
Hugmyndir íbúa um skipulag svæðisins
hafa m.a. verið þær að frekar vildu þeir
sjá óperuhús á svæðinu en frekari þétt-
ingu byggðar með blokkum og tilheyr-
andi aukinni umferð. Og hver skyldu nú
rök bæjarstjórans hafa verið fyrir því að
ekki væri hægt að staðsetja óperuhús
á Kársnesinu? Jú, það var vegna þess
að umferðarþunginn yrði svo mikill.
Bæjarstjórinn spurði hvort fólk gerði
sér ekki grein fyrir hversu mikil umferð
fylgdi svoleiðis húsi? Þetta var ákaflega
merkileg yfirlýsing. Fylgir því eitthvað
minni umferð að reisa húsið þar sem
áætlað er, í Hamraborginni? Auðvitað
ekki! Hvers eiga íbúarnir þar að gjalda?
Umferðin um Hamraborgina er þegar
töluverð. Ekki verður séð að neitt
svigrúm sé til þess að breikka götur í
kring. Hvað er þá til ráða? Jú, lausnin
hjá Sjálfstæðisflokknum er að byggja
bílastæðahús, eins og það minnki
umferð. Ég læðist ekkert meðfram
veggjum með þá skoðun mína að ég er
andvígur hugmyndum um óperuhús á
græna svæðinu milli Salarins og Gerða-
safns. Ég hef líka þá skoðun að nóg sé
komið af þéttingu gamalgróinna svæða
í Kópavogi, s.s. á Kársnesinu.
Helgi Helgason.
Formaður Frjálslynda flokksins í
Kópavogi.