Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 12
12 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
Fyrst er ég
alltaf spurð
af hverju ég
tali eins og
Björk. Þá
spurði ég af
hverju allir
i Þýskalandi
tali eins og
Derrick..
E
milíana Torrini er eitt sólskins-
bros og færir mér rifsber úr garð-
inum sínum þegar hún mætir í
viðtal. Hún er hrifin af Norður-
mýrinni og segist heillast af þess-
um fallega skemmtigarði sem eitt
sinn var kallaður Klambratún sem
er nánast tómur allt árið um kring.
„Ég er samt orðin algjör Brighton-
búi núna,“ útskýrir hún en undan-
farin fimm ár hefur hún átt heim-
ili í þessum líflega breska
strandbæ sunnan Lundúna. „Þetta
snýst allt um þennan radíus sem
maður þarf að skapa í kringum
sig. Í Brighton er stærri radíus
heldur en í Reykjavík en minni
heldur en í London. Þar er allt svo
risastórt og svakalega dreift. Ég
nennti bara ekki að eyða þremur
klukkustundum í lest til að fara á
milli staða þegar ég gat setið á
kaffihúsi og borðað góða köku í
staðinn.“
Emilíana segir Brighton hafa
upp á heilmikið listalíf að bjóða.
„Þar er allt að gerast. Allar hljóm-
sveitir stoppa þar til að spila, og
alls kyns hátíðir í gangi allt árið
um kring. Brighton er dálítill
djammbær, en samt ekki meira en
Ísland. Borgin skiptist svona í
tvennt hvað djammið varðar, ann-
ars vegar er það kjötmarkaðurinn
þar sem fólk er að pikka hvort annað upp
klukkan þrjú, og hins vegar er það listaliðið.
Svona alvöru liðið,“ segir hún og hlær.
Aðspurð hvort það sé nauðsynlegt að búa
erlendis ef maður ætlar að ná langt sem tón-
listarmaður segir hún það sennilega nytsam-
legt í byrjun. „En þetta fer alveg eftir því
hvernig manneskja þú ert og hvernig þú vilt
höndla þennan tónlistarheim. Ég er persónu-
lega lítið inni í þessum heimi, fer aldrei í
partíin og er frekar einangruð í mínum hóp.
Ég er stundum skömmuð af vinum mínum
fyrir að vera ekki nógu dugleg í
þessari „PR“-mennsku þar sem
allt gengur út á að mæta í réttu
teitin og kynnast rétta fólkinu. En
ég á svo rosalega gott fólk í kring-
um mig og hef kynnst mikilli góð-
vild.“ Emilíana segist hins vegar
eyða allt of stuttum tíma hérlend-
is. „Þetta eru svona tvær vikur
þrisvar á ári í mesta lagi. Næst á
dagskrá hjá mér er að reyna að
eyða hálfu árinu heima á Íslandi.“
Bullaði inn á plötu með Thievery
Corporation
Emilíana náði miklum vinsældum
á Íslandi með fyrstu plötum sínum
eins og Merman og Crouçie D‘où
Là og ég velti fyrir mér hvernig
hún endaði sem svona „indí“ tón-
listardrottning erlendis, með
samning við plötufyrirtækið
Rough Trade. „ Ég gerði í rauninni
ekki neitt. Þetta var bara röð til-
viljana, og stundum gerast hlut-
irnir svoleiðis. En sennilega vakti
rödd mín athygli fólks. Svona eins
og Derrick Birket hjá One Little
Indian sem varð hrifinn af rödd-
inni minni þegar hann heyrði hana og vildi
endilega að ég færi að skrifa lög. Það var
hins vegar eitthvað sem mér þótti snúið í
byrjun. Ég hef alltaf verið að skrifa ljóð og
var stútfull af tónlist, en ég hafði alltaf fóku-
serað svo mikið á röddina. Ég uppgötvaði
hana fyrir alvöru þegar ég gerði Crouçie
D‘où Lu og var í sífellu að gera tilraunir með
hana, var með það á heilanum. Ég á senni-
lega billjón klukkutíma að baki í raddþjálfun
frá því að ég var sjö ára,“ segir hún og hlær.
„Ég kynntist lagaskrifum í byrjun á allt
annan hátt en ég skrifa í dag. Þetta er allt
svona í litlum kössum eins og maður sé að
vinna í verksmiðju. Það var alls ekki fyrir
mig og ég skrifaði ekki eitt lag á því tímabili.
Ég náði engri tengingu við þau vinnubrögð.
En með fullri virðingu fyrir fólki sem getur
skrifað lög á fimm mínútum þá bara er ég
alls ekki í þannig tjáningu.“ Emilíana segist
hafa tekið sín fyrstu raunverulegu skref í
laga- og textasmíð þegar hún „bullaði óvænt“
inn á plötu með „lounge“-risunum Thievery
Corporation. „Við vorum öll í partíi í klúbb-
num þeirra í Georgetown og þá var ég að
bulla einhverja tónlist með þeim. Þeir fengu
mig svo til að fljúga aftur út og taka þetta
upp, og þá gerði ég það sama, spann eitthvað
upp úr mér. Það form hentar mér langbest
við lagasmíðar.“ Emilíana semur lögin sín
ásamt Dan Carey en hann og kona hans eru
bestu vinir hennar og hún er guðmóðir barna
hans. „Síðast þegar við tókum upp þá
Núna er allt í lagi
Nýjasta plata söngkonunnar Emilíönu Torrini, Me and Arm-
ini, er komin út. Af því tilefni ræddi Anna Margrét Björnsson
við hana á regnvotum haustdegi um lífið í Brighton, óbeit á
álverum og lamandi tíu rétta ítölsk matarboð.
EMILIANA TORRINI Segist stundum skömmuð af vinum sínum fyrir að vera ekki nógu dugleg í „PR“-
mennskunni, þar sem allt gengur út á að mæta í réttu teitin. MYND/JON BERGMAN