Fréttablaðið - 24.08.2008, Blaðsíða 58
8 matur
Ég er ábyrgur fyrir því að þjóðin er farin
að borða bygg,“
segir Eymundur
Magnússon, bóndi í
Vallanesi, glaðlega. Hann kveðst
stefna að því að eftir hans dag
haldi allir að bygg hafi alltaf verið
eðlilegur valkostur í íslensku fæði
og þyki þjóðlegt og gott. „Fólk var
tortryggið fyrst en nú eru margir
farnir að borða bygg í stað hrís-
grjóna. Finnst eins og líkaminn
kalli eftir því. Það hefur líka
marga jákvæða eiginleika, er auð-
ugt af járni, kalki og B-vítamíni
auk þess sem það er gott fyrir
meltinguna.“
Eymundur segir uppskeruhorf-
ur þessa árs allgóðar en veður-
farið næstu vikur skipti sköpum.
„Það er áríðandi núna að fá sólríka
daga en sleppa við frost. Sumarið
hefur verið fremur kalt hér fyrir
austan og ég býst ekki við þresk-
ingu fyrr en í lok september,“
segir hann.
Byggið er afbragðs bökunarefni
með öðru léttara. Þórunn, sem er
dóttir Eymundar og býr á Seyðis-
firði, brást vel við þeirri bón að
baka brauð til að birta uppskrift
að í Fréttablaðinu. - gun
MJÚKT BRAUÐ ÚR BYGGI
Bygg var ræktað á Íslandi fram eftir öldum en lítið eftir það þar til á síðustu árum.
Í Vallanesi á Héraði er byggið ræktað með lífrænum aðferðum til manneldis.
1 1/2 dl volgt vatn
1 msk. hunang
3 tsk. þurrger
1 1/2 dl sjóðandi vatn
2 dl byggmjöl
1 dl ab-mjólk
2 msk. olía
5 dl spelt (má nota hveiti í
staðinn)
1 dl soðið bygg
1 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 tsk. kanill
1/2 tsk. salt
Byrjið á að leysa hunangið upp
í volgu vatninu, stráið gerinu út
í og látið það standa í 10
mínútur. Hellið sjóðandi
vatninu útá byggmjölið og látið
það líka standa í 10 mín. Þá
fæst safaríkt og mjúkt brauð.
Öllu blandað saman nema 2 dl
af speltinu, þá er komin fremur
lin soppa. Síðan þarf að hnoða
deigið vel og lengi og bæta
restinni af mjölinu útí smátt og
smátt. Ef það er gert í höndun-
um þarf að hnoða í góðar 15
mínútur. Ef deigið er blautt má
bæta við spelti en það á að
vera svolítið klístrað. Til að fá
brauð sem rís hátt er betra að
setja það í brauðform, annars
má alveg baka það á plötu.
Brauðið er látið lyfta sér í 30 –
40 mínútur á hlýjum stað og
síðan bakað við 200 gráður í
ca. 45 mínútur. Ráðlegt er að
fylgjast með brauðinu á loka
sprettinum og til að vita hvort
það sé tilbúið er gott að banka
í botninn á því, ef hljómurinn er
holur er brauðið bakað!
Svo má leika sér með þessa
uppskrift, auka magnið af
bankabyggi og setja minna af
fræjum í staðinn, skipta kanil út
fyrir kúmen o.s.frv. Sniðugt er
líka að þrefalda uppskriftina og
frysta brauð til síðari tíma.
BYGG Í BAKSTUR
BYGGBRAUÐ
Hollt
og gott!
Mæðgurnar Þórunn Eymundardóttir og Gígja Helgadóttir á fullu við brauðbakst-
urinn. MYND/FIANN PAUL.
M
Ilmandi úr ofninum
Brauðbær • Hótel Óðinsvé • Þórsgata 1 • odinsve@odinsve.is • odinsve.is
Við gerum veisluna þína
Brauðbær sérhæfir sig í dönsku smurbrauði og
pinnamat. 40 ára reynsla og fagmennska tryggir
gæði veisluþjónustu okkar – vertu viss um að fá
fyrsta flokks veitingar í veisluna þína.
Pöntunarsími 552 0490 eða 511 6200
F
í
t
o
n
/
S
Í
A