Fréttablaðið - 24.08.2008, Qupperneq 64
20 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Þennan dag árið 79 gaus fjallið Vesúvíus og kaf-
færði borgirnar Pompei og Herculaneum. Fórust
15.000 manns og má kalla það kaldhæðni ör-
laganna að fjallið gaus daginn eftir hátíðina Vul-
canalia sem var haldin guði eldsins til heiðurs.
Forsaga gossins hófst með jarðskjálftum sautj-
án árum fyrr sem lögðu stór svæði í rúst, meðal
annars Pompei. Sumar skemmdirnar var ekki
búið að lagfæra þegar gosið hófst 79. Fólk var
ekki óvant jarðskjálftum á svæðinu og kippti sér
ekki upp við undanskjálfta sem hófst 20. ágúst
79. Fyrr í mánuðinum höfðu lindir og brunnar
þornað upp.
Gosið stóð í 19 tíma og losaði fjallið 4 rúm-
kílómetra af ösku og grjóti yfir nágrennið. Pomp-
ei grófst undir 3 metra af gjósku og dóu íbúar
þess margir samstundis, standandi eða sitjandi
við daglega iðju sína. Fjallið er enn í dag talið
hættulegasta eldfjall veraldar þar sem 3 milljónir
manna búa í nálægð við fjallið og það hefur oft
gosið öflugum sprengigosum. Stórt gos varð árið
1906 en síðast gaus Vesúvíus árið 1944. Eftir
það hefur fjallið haft hægt um sig. Gegnum ald-
irnar hefur fjallið venjulega haft hægt um sig frá
18 mánuðum og upp í 7 og hálft ár í einu en
lengsta hléið varði í 500 ár.
ÞETTA GERÐIST: 24. ÁGÚST 79
Sprengigos í eldfjallinu Vesúvíusi
MERKISATBURÐIR
1787 Wolfgang A. Mozart lýkur
við fiðlusónötu í A-moll,
k. 526.
1841 Bjarni Thorarensen amt-
maður lést, 54 ára.
1906 Símskeytasamband við
útlönd opnað.
1944 Sveinn Björnsson for-
seti ræðir við Franklin D.
Roosevelt forset Banda-
ríkjanna í opinberri heim-
sókn þar í landi.
1968 Norræna húsið í Reykjavík
er vígt. Finnski arkitektinn
Alvar Aalto teiknaði húsið.
1981 Mark David Chapman
dæmdur fyrir morðið á
John Lennon. Hann fær
20 ár.
1995 Stýrikerfið Windows 95
gefið út.
BRESKI LEIKARINN STEPHEN FRY
ER 59 ÁRA
„Það er ekki ávísun á ham-
ingju að vera gáfaður.“
Stephen Fry er þekktur gaman-
leikari og fór með hlutverk
ráðagóða brytans Jeeves sem
margir þekkja. Hann hefur
barist við geðhvarfasýki árum
saman.
AFMÆLI
ÓLAFUR
HAUKUR
SÍMONARSON
RITHÖFUND-
UR
er 61 árs.
ELVA ÓSK
ÓLAFSDÓTTIR
LEIKKONA
er 44 ára.
SVANDÍS
SVAVARS-
DÓTTIR BORG-
ARFULLTRÚI
er 44 ára.
HALLDÓR
BLÖNDAL
er sjötugur í
dag.
Fyrsta hefti nýs veftímarits er komið
út en það leit dagsins ljós á mánudag-
inn var. Tímaritið ber heitið Naust-
tímarit.is ritstjóri þess og stofnandi
er Haraldur Ingi Haraldsson. Til að
byrja með er áætlað að gefa út fimm
hefti og er fyrsta heftið frítt á vefnum.
Auk útgáfunnar er Haraldur forstöðu-
maður iðnaðarsafnsins á Akureyri og
var fyrsti forstöðumaður myndlista-
safnsins þar í bæ en hann er menntað-
ur í myndlist og sagnfræði. Haraldur
hefur einnig verið viðloðandi útgáfu
síðan á menntaskólaárunum við út-
gáfu skólablaðsins Muninn.
„Fyrstu skrefin voru stigin þar og
svo tók ég þátt í Rauða húsinu, þar
vorum við með umfangsmikla bóka-
útgáfu í gömlum spritt-fjölritara
svo ég hef kynnst því að koma hlut-
um út þó að efnin hafi verið lítil. Svo
hef ég gefið út efni sjálfur svo þetta
er hálfgerð þráhyggja í mér,“ útskýr-
ir Haraldur Ingi. Nausttímarit.is mun
fjalla um samfélagsmál á gagnrýn-
inn hátt. Haraldur Ingi sér fyrir sér
að birta aðsendar greinar en einnig
munu lausapennar skrifa reglulega í
blaðið. Meðal þeirra eru Aðalheiður
Steingrímsdóttir, formaður kennara-
félags Íslands, og Andrés Magnússon
sem Haraldur segir einn beittasta sam-
félags rýni hér á landi.
„Andrés skrifar til dæmis harða
gagnrýni á íslensku bankana og efna-
hagslífið í fyrsta heftinu. Einnig flett-
ir Guðmundur Ólafsson lektor ofan af
græðgi ríkisins í sambandi við lífeyris-
sjóðina og sjálfur bendi ég á í grein-
inni „Í kýrhausnum“ að ríkisvaldið
hefur með sérréttindum til fjármála-
manna opnað leið í kerfinu til að sleppa
við að borga tekjuskatt,“ segir Harald-
ur Ingi.
Haraldur segir tilgang veftíma-
ritsins vera að koma með nýjan og
ferskan vinkil á þau þjóðfélagsmál
sem eru í umræðunni hverju sinni.
Höfuðstöðvar tímaritsins eru norður á
Hauganesi og staðsetningin bjóði upp
á nýtt sjónarhorn á umræðuna.
„Ég ritskoða ekki skoðanir fólks
sem skrifar í blaðið en ég er með skýra
stefnu í sambandi við nálgun viðfangs-
efna en ég tel að styrkur blaðsins hljóti
að liggja í því að finna ný sjónarhorn
á hlutina. Flestir landsfjölmiðlar eru
í Reykjavík og mörg og góð rök fyrir
því, en það vantar fjölbreytni. Lifandi
samfélag er samfélag margra radda
og samræðna.“
Sérstakar síður verða tileinkaðar
yngri kynslóðinni og sér tólf ára sonur
Haraldar Inga, Haraldur Örn, um að
ritstýra þeim. Annars vinnur Harald-
ur Ingi stóran hluta sjálfur við upp-
setningu blaðsins og skrif svo kostn-
aður við blaðið er í lágmarki
„Ég get með stolti sagt að að baki
Nausttímarit.is standa engir auðmenn,
bankar eða stjórnmálaflokkar, bara
einn láglaunamaður úti á landsbyggð-
inni,“ segir hann hlæjandi og bætir því
við að þó að tímaritið gagnrýni óhikað
verði líka að hafa húmorinn með.
Fyrsta heftið er frítt á vefnum en
annars verður áskrift að fimm heft-
um 1.250 krónur. Slóðin á tímaritið er
www.nausttimarit.is. heida@frettabladid.is
NAUSTTÍMARIT.IS: KEMUR ÚT Í FYRSTA SINN
Lifandi samfélag er
samfélag margra radda
NÝTT SJÓNARHORN Á ÞJÓÐFÉLAGSMÁL Feðgarnir Haraldur Ingi Haraldsson og Haraldur Örn
Haraldsson ritstýra nýju veftímariti þar sem fjallað verður um samfélagsmál á gagnrýninn og
hressilegan hátt. MYND/HARALDUR INGI HARALDSSON
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Einars Jónssonar
stýrimanns,
Laugarnesvegi 89
er andaðist sunnudaginn 20. júlí. Sérstakar þakkir
færum við líknar- og vinafélaginu Bergmáli, krabba-
meinsfélaginu Styrk og sr. Maríu Ágústsdóttur
fyrir umhyggju og styrk.
Vera Einarsdóttir
Þorgerður J. Einarsdóttir Snorri H. Harðarson
Ólafur Einarsson Sólveig Björnsdóttir
Hrönn Einarsdóttir Óskar Bjartmarz
Jón Einarsson Guðný Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Beck
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 25.
ágúst klukkan 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Guðný Sigurðardóttir
Brynja Beck Sölvi Stefán Arnarson
Axel Þór Beck
Sigurður Pálsson Hrefna Egilsdóttir
Kristín Þóra Pálsdóttir Beck Rögnvaldur Stefán Cook
Ríkarður Pálsson Elísabet Rafnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Blásið verður til tónleika með
Björk, Wonderbrass og Jónas
Sen í Langholtskirkju þriðju-
daginn 26. ágúst. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 18.
Tónleikarnir verða óraf-
magnaðir en flutt verða lög af
tónleikadagskrá Bjarkar úr
nýlokinni tónleikaferð henn-
ar um heiminn sem staðið
hefur yfir í sautján mánuði.
Þarna kemur fram íslenski
hluti hljómsveitarinnar sem
spilað hefur með Björk á tón-
leikaferðinni. Tónleikarnir
verða teknir upp til útgáfu.
Áhugasamir verða að hafa
hraðar hendur en einungis
300 miðar eru í boði.
Miðasalan hefst á morg-
un klukkan 10 á www.midi.is.
Húsið opnar klukkan 17.30.
- rat
Björk í Lang-
holtskirkju
Englakórinn sem stofnaður
var af Natalíu Chow verð-
ur fimm ára í haust. Kór-
inn var starfræktur fyrir
börn á aldrinum 3ja til 8 ára
en í haust mun aldursbilið
spanna frá 3ja ára börnum
og upp í 10 ára.
Í kórnum læra börnin að
syngja barnalög á mörgum
tungumálum og hefur Nat-
alía meðal annars kennt
þeim barnalög á kínversku.
Tvisvar á ári heldur kórinn
tónleika, jólatónleika og
vortónleika. Í vetur mun
kórinn æfa söngleikinn
Hósíanna eftir Julian Hew-
lett en skráning er hafin
fyrir veturinn og geta for-
eldrar skráð börn sín laugar-
daginn 30. ágúst næstkom-
andi.
Upplýsingar um kór-
starfið má finna á englakor.
googlepages.com en fyrir-
spurnir má senda á natalia-
chow89@gmail.com.
Englakórinn er
fimm ára
ENGLAKÓRINN SYNGUR UNDIR STJÓRN NATALÍU CHOW.