Fréttablaðið - 24.08.2008, Page 67
SUNNUDAGUR 24. ágúst 2008 23
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 24. ágúst 2008
➜ Myndlist
Bjarni Bernharður sýnir 20 akrýl-
myndir í 12 Tónum, Skólavörðustíg
15. Opnunartími: Mán-föst. 10-18,
lau. 10-16, sun. 13-17.
Lesið í minni Ásdís Birgisdóttir sýnir
þrykkt verk úr silki í Listmunahorni
Árbæjarsafns. Sýningin er opin dag-
lega og stendur til 31. ágúst.
➜ Tónlist
13.00 Þjóðlagahátíð á
Árbæjarsafni Tékkneski barna- og
unglinga-þjóðlagahópurinn Osminka
frá Prag flytur tékkneska þjóðlaga-
tónlist og sýnir dansa. Að auki mun
koma fram danshópurinn Sporið
sem sýnir íslenska þjóðdansa og
dúóið Funi sem flytur íslensk þjóð-
lög. Samtímis verður á Árbæjarsafni
sýning á íslenska faldbúningnum og
handverkssýning.
17.00 Í Hallgrímskirkju verða
fluttar tvær kantötur eftir J. S.
Bach en einnig verður frumflutt
kór- og hljómsveitarverk eftir Mist
Þorkelsdóttur.
12.00 og 14.00 Einleiksfantasíur
G. P. Telemann Elfa Rún
Kristinsdóttir fiðluleikari og
Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari
halda tónleika í völdum kirkjum víðs
vegar um landið. Í dag verða þær í
Stykkishólmskirkju.
16.00 Söngur, gítarspil og gleði
Steinunn S. Skjenstad sópransöng-
kona og Solmund Nystabakk gítar-
leikari halda tónleika í Gljúfrasteini.
➜ Leiklist
Sviðslistahátíðin artFart sem haldin er
af áhugafólki um sviðslistir, sýnir tvö
leikverk í kvöld.
20.00 Uppljómunin, höf. Snæ-
björn Brynjarsson. Flutt á Kaffi Rót
20.00 Vinir, höf. Símon Birgisson.
Flutt í Kassanum.
➜ Stuttmyndir
Reykjavík Shots&Docs Heimildar-
og stuttmyndahátíð í Austurbæ,
Snorrabraut 37.
15.00 Thom Andersen
17.00 Red Hollywood
20.30 Óður til Íslands
23.00 Sundance stuttar og úrval
Miðasala opnar kl. 14.30. Nánari
upplýsingar á http://www.short-
docs.info
➜ Ljóð
Ljóðahátíð
Nýhils 2008
14.00 Líf
ljóðabókanna
Málþing um
óháða útgáfu-
starfsemi og
ljóðabókaútgáfu
á Íslandi og
erlendis. Jón
Karl Helgason
stjórnar umræð-
um í Þjóðminjasafni Íslands.
➜ Viðburður
20.00 Raddir fyrir Tíbet
Menningarviðburður til styrktar
flóttamannamiðstöð í Dharamsala.
Ýmsir listamenn koma fram. Nánari
upplýsingar www.tibet.blog.is.
Salurinn, Hamraborg 6, Kópavogi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Á þriðjudagskvöld heldur Íslenski saxófón-
kvartettinn tónleika í sumartónleikaröð
Sigurjónssafns á Laugarnesi. Hann leikur
fjölbreytta efnisskrá sem inniheldur
suðræna tangótóna, endurreisnartónlist og
verk eftir kvikmyndatónskáld, auk hefð-
bundnari saxófóntóna.
Íslenski saxófónkvartettinn er fyrsti og
eini starfandi klassíski saxófónkvartettinn á
landinu. Hann hefur starfað frá árinu 2006
og flutt fjölda verka sem upprunalega voru
samin fyrir saxófónkvartett. Íslenska
saxófónkvartettinn skipa Vigdís Klara
Aradóttir á sópransaxófón, Sigurður
Flosason á altsaxófón, Peter Tompkins á
tenórsaxófón og Guido Bäumer á barítón-
saxófón.
Hljóðfæraleikararnir hafa allir fjölbreyti-
legt nám og reynslu að baki. Vigdís Klara
stundaði nám í klassískum saxófónleik í
Sviss ásamt klarinettnámi og námi á fimm
klappa klarinett og chalumeau, Sigurður er
vel þekktur djassleikari sem stundaði einnig
nám í klassískum saxófónleik hér heima og í
Bandaríkjunum, Peter stundaði nám í
London og er óbóleikari í Sinfóníuhljómsveit
Íslands og formaður Bach-sveitarinnar í
Skálholti, Guido stundaði nám í Þýskalandi,
Sviss og Bandaríkjunum og er einnig
menntaður þverflautukennari.
Efnisskrár eins og þær sem kvartettinn
leikur hafa ekki heyrst áður á Íslandi enda
hefur undantekningalítið verið um að ræða
frumflutning verkanna á Íslandi. Að þessu
sinni er efnisskrá tónleikanna mjög fjöl-
breytt. Leikin verða verk eftir endurreisn-
artónskáldin Orlando Gibbons og Girolamo
Frescobaldi en einnig suðræn tangótónlist
eftir Astor Piazzolla, hefðbundin frönsk
saxófónkvartetts-tónlist og verk eftir hið
þekkta kvikmyndatónskáld Michael Nyman.
Miðasala á tónleikana fer fram við inngang-
inn, en einnig er hægt að kaupa miða í síma
553 2906.
Saxófónablástur í Laugarnesinu
HLJÓMLEIKAR Saxófónkvartettinn íslenski er með
alþjóðlegum bragðlaukum og kryddi.
BUILDING-DESIGNING-THINKING
Laugar- og sunnudag, 30.-31. ágúst kl. 10.30
Þriðja alþjóðlega Alvar Aalto-ráðstefnan
um nútíma byggingarlist í samvinnu við
Jyväskylä-háskólann og Alvar Aalto-akademíuna.
Ráðstefnan fer fram á ensku.
1988 FEGURÐ MÁLSINS
Þriðjudagur 26. ágúst kl. 20.00
Thor Vilhjálmsson vann bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1988. Hann rifjar upp þennan
og fl eiri bókmenntaviðburði ásamt Halldóri
Guðmundssyni rithöfundi. Tómas R. Einarsson og
félagar spila og Ragnheiður Gröndal syngur.
2008 HANNAÐUR VERULEIKI
Fimmtudagur 28. ágúst kl. 18.30
Charlotte Engelkes fl ytur einleikinn Sweet sem er
sambland af leikhúsi, kabarett og uppistandi.
Tónlist frá Retro Stefson, Reykjavík! og FM
Belfast. Listahópurinn 128 hendur sýnir í anddyri
hússins.
40 ár í Norræna húsinu
Afmælisdagskrá 22.-31. ágúst Nánari upplýsingar á www.nordice.is
1978 NORRÆN SAMVINNA
Mánudagur 25. ágúst
12.00 Vísnasöngkonan Hanne Juul og tríó.
20.00 Björgvin G. Sigurðsson, samstarfs ráðherra
Norðurlanda og Þorbjörn Broddason, prófessor
leiða umræður um Norræna húsið og norræna
samvinnu. Stuðmennirnir Egill Ólafsson og
Valgeir Guðjónsson fl ytja tónlist.
1998 UMHVERFI OG NÝSKÖPUN
Miðvikudagur 27. ágúst kl. 20.00
Umhverfi smálin voru ofarlega á baugi 1998.
Hefur einhver árangur náðst? Prófessor
Þorsteinn Ingi Sigfússon og Andri Snær
Magnason rithöfundur gefa álit. Hjaltalín
spilar tónlist og fjöl lista konan Charlotte
Engelkes sýnir brot úr einleiknum Sweet.
2018 KOMANDI TÍMAR
Föstudagur 29. ágúst kl. 18.30
Næsta kynslóð tekur völdin í Norræna húsinu.
Gjörningahópurinn Kúmíkat, hljómsveitirnar
Sykur, Ásgeir Eysteinn & Sæji og danska
sveitin Skandals leika framtíðarmúsík. Leikverk
nemenda úr Vinnuskóla Reykjavíkur.
JAZZHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Laugardagur 30. ágúst kl. 19.00
Færeyska stórsveitin Thórshavnar Stór Band
ásamt klarinettleikaranum Hauki Gröndal
fl ytja tónlist.
Aðgangur er ókeypis á afmælisdagskrá og sýningar. Bókasafn og sýningar eru opin alla daga vikunnar kl.
12-17. Bistro Alvar A er opið virka daga kl. 10-17, helgar kl. 12-17 og þegar viðburðir eru í húsinu.
Þökkum eftirtöldum aðilum fyrir góðan stuðning við afmælishátíðina:
VOX Restaurant / Bistro, Olís, Globus ehf, Norræna Félagið og Statens Kulturråd í Svíþjóð
JÓN KARL
HELGASON
MIST ÞORKELSDÓTTIR