Fréttablaðið - 24.08.2008, Qupperneq 68
24 24. ágúst 2008 SUNNUDAGUR
„Og núna mun hún elda
og þrífa fyrir mig,“
ELLEN DEGENERES
Grínast um hvað taki nú við fyrir nýju
eiginkonu hennar, Portia de Rossi.
„Eftir að hafa verið borin
saman við Jay Leno svona
lengi, hugsar maður ekki
um sjálfa sig á þennan
hátt.“
RUMER WILLIS
Um undrun sína yfir því að hafa verið
valin ein af fallegasta fólki tímarits-
ins People.
„Ég var fallegur svartur
maður, en ekki þeir.“
ROBERT DOWNEY JUNIOR
Útskýrir af hverju meðleikarar hans
í kvikmyndinni Tropic Thunder hafi
verið öfundsjúkir og kallað hann
dívu í þættinum Good Morning
America.
folk@frettabladid.is
Sigþrúður Ármann, annar
stofnandi Exedra, hefur
í miklu að snúast þessa
dagana. Hún er í óðaönn
að skipuleggja SÚK-glæsi-
markaðinn og mun svo halda
til Kína daginn eftir í skipti-
nám fram að áramótum.
„Við hjá Exedra erum mjög hrifn-
ar af því starfi sem Jóhanna
Kristjónsdóttir hefur unnið í þágu
barna og kvenna í Jemen og vild-
um leggja starfseminni lið,“ segir
Sigþrúður Ármann, annar stofn-
andi Exedra og framkvæmdastýra
glæsimarkaðarins sem fram fer í
Perlunni næstkomandi laugardag,
en allur ágóði hans mun renna til
uppbyggingar nýju skólahúsnæði
í Jemen.
Exedra var stofnað haustið 2006
í þeim tilgangi að stuðla að mál-
efnalegri umræðu og auknum
tengslum milli atvinnulífs, stjórn-
mála og fjölmiðla. Fyrirtækið
samanstendur af þverpólitískum
hópi áhrifamikilla kvenna úr
atvinnulífinu, svo sem viðskipt-
um, stjórnmálum, fjölmiðlum,
menntamálum, heilbrigðismálum,
hópi sérfræðinga og listamanna.
Hópurinn hittist mánaðarlega á
fundum, þar sem tekin eru til
umfjöllunar mikilvæg málefni
sem eru í umræðunni í samfélag-
inu hverju sinni.
„Innan Exedra er einnig góð-
gerðahópur sem skoðar hvernig
við getum látið gott af okkur leiða
og hvaða góðgerðamálefni við vilj-
um styðja hverju sinni. Eftir að
glæsimarkaðnum lýkur munum
við skoða hverju við munum
leggja lið næst,“ segir Sigþrúður.
Hún hefur annars í nógu að snú-
ast þessa dagana, því hún stundar
einnig MBA-nám við Háskólann í
Reykjavík, þar sem hún hefur
lokið einu ári af tveimur, og dag-
inn eftir glæsimarkaðinn mun hún
halda út til Kína, þar sem hún
verður í skiptinámi í einum
fremsta skóla Asíu.
„Ég flýg út til Shanghaí næsta
sunnudag svo það er nóg að gera
við að undirbúa bæði markaðinn
og ferðina. Mér finnst einstakt
tækifæri að fá að taka eina önn í
skiptinámi í Shanghaí og er spennt
fyrir því að fá að kynnast Asíu-
markaðnum og öflugu fólki þar í
landi,“ segir Sigþrúður að lokum.
alma@frettabladid.is
Frá Jemen til Shanghaí
www.flugskoli.is
Námskeiðið hefst 6. október og lýkur um miðjan febrúar.
Umsóknarfrestur er til 14. september. Allar nánari upplýsingar á www.flugskoli.is
Flugumferðarstjóra
Grunnnámskeið
Flugskóli Íslands er hluti af Tækniskólanum, skóla
atvinnulífsins. Tækniskólinn er nýr framsækinn
framhaldsskóli sem byggir á traustum grunni
Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík.
Á LEIÐINNI TIL KÍNA
Sigþrúður hefur í
nógu að snúast þessa
dagana, en hún
undirbýr SÚK glæsi-
markaðinn í Perlunni
sem fram fer næsta
laugardag og mun svo
halda til Shangahai
daginn eftir í MBA
skiptinám.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA