Fréttablaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 34
18 9. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
512 5000.
timamot@frettabladid.is
LEIKKONAN MICHELLE
WILLIAMS ER 28 ÁRA Í DAG.
„Ég og fjölskyldan hans
fylgjumst með Matildu
litlu hvísla að trjánum
og faðma dýr og finnum
að hann er enn á meðal
okkar.“
Michelle Williams um
barnsföður sinn og fyrrum
sambýlismann, Heath Led-
ger, sem féll frá á árinu.
Sveinsbakarí fagnar 100 ára
afmæli á árinu en það var
stofnað af Sveini Hjartar-
syni á Bræðraborgarstíg
árið 1908. Svo skemmti-
lega vill til að nú á afmæl-
isárinu sigraði Kristján P.
Sigmundsson, bakari hjá
Sveinsbakaríi til tuttugu
ára, keppni um brauð ársins
2008 og er eigandinn Hjálm-
ar E. Jónsson að vonum
ánægður með þá tilviljun.
Kornax stóð fyrir keppn-
inni nú fyrir skömmu í sam-
starfi við Landssamband
bakarameistara og var það
Sportbrauð Kristjáns sem
vakti mesta lukku á meðal
dómara en þeir höfðu ekki
hugmynd um hvaðan brauð-
in í keppnina komu. Það er
hollt og matarmikið og mun
vera í boði hjá flestum bak-
aríium á komandi vetri. „Ef
það vekur almenna ánægju
vonumst við til að það sé
komið til að vera,“ segir
Hjálmar.
Hann byrjaði að vinna í
Sveinsbakaríi aðeins sextán
ára en þá var það til húsa
að Vesturgötu 52 og í eigu
Guðmundar Ágústssonar.
Hjálmar hefur síðan hald-
ið tryggð við bakaríið, ef
frá er talið eitt ár, og keypti
það árið 1982 ásamt Atla
Edgarssyni.„Þá fluttum við
upp í Nóatún og rákum þar
heildsölubakarí og bökuð-
um aðallega fyrir Nóatúns-
verslanirnar og spítalana.“
Árið 1989 keypti Hjálm-
ar Atla út úr rekstrinum og
flutti bakaríið í Arnarbakka
4-6 þar sem það það hefur
verið allar götur síðan. Þá
eru útibú í Skipholti 50b og
Engihjalla 8.
Hjálmar segir mikið
hafa breyst á þeim rúmu 30
árum sem hann hefur starf-
að í greininni. „Tegundun-
um hefur fjölgað og margar
af þeim gömlu eru dottnar
út, segir Hjálmar sem fann
sína hillu snemma og finnst
alltaf jafn gaman að baka.
Fjórir bakarar og tveir
aðstoðarmenn starfa í fyr-
irtækinu en í allt eru starfs-
mennirnir 22. Hjálmar seg-
ist ekki eiga von á því að
hann stækki við sig en
stefnt er að því að verslun-
in í Skipholti fái andlitslyft-
ingu á næstu mánuðum. Þá
geta viðskiptavinir átt von á
því að sérstök afmæliskaka
verði fáanleg í bakaríun-
um þegar líða tekur á vetur.
vera@frettabladid.is
SVEINSBAKARÍ: MEÐ BRAUÐ ÁRSINS 2008 Á ALDARAFMÆLINU
Gott gengi á afmælisári
SKEMMTILEG TILVILJUN Hjálmar eigandi Sveinsbakarís og Kristján bak-
ari þar til tuttugu ára eru að vonum kampakátir með að hafa unnið
keppni um brauð ársins 2008 nú þegar bakaríið á stórafmæli.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Bandaríska fyr-
irtækið Nation-
al Broadcasting
Company, NBC,
var stofnað af
Radio Corporat-
ion of America,
RCA, á þessum
degi árið 1926.
Það var fyrsti risinn meðal ljós-
vakamiðla í Bandaríkjunum.
NBC var upphaflega í eigu
fyrirtækjanna General Electric,
Westinghouse og RCA og höfuð-
stöðvar þess í Rockefeller-bygg-
ingunni í New York þar sem þær
eru enn. Fyrirtækið hefur tekið
ýmsum breytingum undir hand-
leiðslu ólíkra aðila og haft mikil
áhrif í sjónvarpi og útvarpi. Gen-
eral Electric
keypti meiri-
hluta í því árið
1986 fyrir 6,4
billjónir dollara.
Bob Wright varð
forstjóri fyrir-
tækisins eftir yf-
irtökuna en Jeff
Zucker tók við. Fyrirtækið er nú í
eigu NBC Universal, sem er hluti
af General Electric og Vivendi.
NBC er aðgengilegt á 112
milljónum heimila í Bandaríkjun-
um eða 98,6 prósentum banda-
rískra heimila. Það á tíu starf-
andi sjónvarpsstöðvar og næst-
um 200 fyrirtæki sem tengjast
starfssemi þess í Bandaríkjunum
og yfirráðasvæðum þeirra.
ÞETTA GERÐIST: 9. SEPTEMBER ÁRIÐ 1926
Fjölmiðlafyrirtækið NBC stofnað
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og hluttekningu við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Þóru Abigael
Þorvarðardóttur
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Hafsteinn Viðar Halldórsson Erla S. Engilbertsdóttir
Hafdís Abigael Gunnarsdóttir Garðar S. Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og mágur,
Guðni Sigurjónsson
Rauðagerði 28, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 5.
september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 12. september kl. 13. Blóm og kransar vinsam-
lega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent
á Björgunarsveitina OK, reikningur nr. 1103-26-9342
kt. 530679-1449.
Elínborg Kristinsdóttir
Hildur Guðnadóttir
Arnar Guðnason Hafdís Hafsteinsdóttir
Sigurjón Guðnason Inga Hildur Þórðardóttir
Ragnheiður, Þórhildur, Ágúst, Magnús Bjarki, Arndís Ósk,
Guðni Freyr, Kristinn Snær og Viktor Hrannar
Magnús Kristinsson.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Margrét Sigurðardóttir
áður til heimilis að Smárahlíð 10E,
Akureyri,
andaðist sunnudaginn 24. ágúst að Dvalarheimilinu
Hlíð. Útförin fer fram frá Glerárkirkju, miðvikudaginn
10. september kl. 14.00.
Laufey Sigurbjörnsdóttir
Guðmundur Sigurbjörnsson Ásdís Loftsdóttir
Þorsteinn Sigurbjörnsson
Gunnar Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Guðrún Jónsdóttir
Hraunvangi 7, Hafnarfirði, áður til
heimilis að Suðurgötu 61, Hafnarfirði,
sem lést þriðjudaginn 2. september, verður jarð-
sungin fimmtudaginn 11. september kl. 15.00 frá
Hafnarfjarðarkirkju.
Vilborg Pálsdóttir Þráinn Kristinsson
Katrín Pálsdóttir
Anna María Pálsdóttir Per Landrö
Páll Gunnar Pálsson Ólína Birgisdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Bjarni Hannes Ásgrímsson
frá Suðureyri v/Súgandafjörð,
Höfðabraut 7, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 2. september.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
11. september kl. 14.00.
Auður Minný Árnadóttir
Anna Bjarnadóttir
Sólrún Bjarnadóttir
Benedikt Bjarnason Stella Hjaltadóttir
Anton, Bjarni Ingi, Dagur og Auður Líf.
Elskulegur maðurinn minn,
Benedikt Reynir Valgeirsson
Sigtúni 45, Reykjavík,
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hulda Karlsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ari Benjamínsson
bifreiðarstjóri,
Hringbraut 2a, Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala Hafnarfirði 6. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigríður Ólafsdóttir
Sóldís Aradóttir Jóhannes Harðarson
Ólafur Arason Agnes Arthúrsdóttir
Ingibjörg Þ. Aradóttir Guðmundur Sigurjónsson
Draumey Aradóttir Lars Nyström
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg kona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
Lilja Þorleifsdóttir
frá Litlanesi á Gjögri í Strandasýslu,
búsett á Áshamri 5, Vestmannaeyjum,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja þann
4. september síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá
Landakirkju laugardaginn 13. september kl. 14.
Brynjúlfur Jónatansson
Halldór Guðbjarnason
Ragnheiður Brynjúlfsdóttir Smári Grímsson
Hjálmar Brynjúlfsson Margrét Ársælsdóttir
Anna Brynjúlfsdóttir
Rúnar Páll Brynjúlfsson Edda Sigurbjörg Jóhannsdóttir
Brynhildur Brynjúlfsdóttir Rafn Pálsson
Steinunn Jónatansdóttir Óðinn Steinsson
ömmubörn og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Soffía Ólafsdóttir
Viðjugerði 12, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, þriðjudag
kl. 15.00.
Björg Ingólfsdóttir
Ágústa Ingólfsdóttir
Ólafur Ingólfsson Bjarghildur Jósepsdóttir
Hrafnhildur Ingólfsdóttir Magnús Á. Magnússon
Finnbogi Ingólfsson Kristín Birna Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.