Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 32
20 1,9 170milljónir evra er tap Eimskipafélagsins á þriðja ársfjórðungi samkvæmt uppgjöri sem birt var í síðustu viku. milljarða króna halli var á greiðslu-afkomu ríkisins á öðrum fjórðungi þessa árs samkvæmt nýbirtum tölum
Hagstofunnar.
stiga múr gengisvísitölu krónunnar
var rofinn í byrjun vikunnar. Hún
hefur haldið áfram að veikjast síðan
og er nú nálægt 173 stigum.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Það er vægt til orða tekið að
flug- og ferðaskrifstofuheimur-
inn hafi farið í háaloft í síðustu
viku eftir að breska flugfélag-
ið XL Airways brotlenti og vélar
spænskra kollega hjá Futura
Airways voru kyrrsettar. Margir
ferðalangar urðu strandaglópar
víða um heim af þessum sökum.
Aðrir urðu að gera breytingar á
ferðatilhögun sinni þegar flug
voru sameinuð í eina vél. Einn
reiður viðmælandi Markaðarins
átti að fljúga til Portúgals fyrir
helgi. Býsnaðist hann yfir því
að þurfa að fara í vél nokkr-
um klukkustundum fyrr en áætl-
að var. Reiðin var líklega óþörf
enda gleymdist að reikna með
því að sá hinn sami steig sömu-
leiðis fyrr á portúgalska grund
en áætlað var.
Allt í háaloft
Miklar sviptingar hafa skek-
ið alþjóðlegan fjármálaheim
upp á síðkastið, nú síðast með
greiðslustöðvun Lehman Broth-
ers og kaupum Bank of Am-
erica á Merrill Lynch í vik-
unni. Finnst mörgum nóg um
og sjá þeir ofsjónum yfir því
að banki geti farið á hliðina. Í
þessu samhengi er vert að rýna
í sögubækur. Áratugur er lið-
inn frá því bandaríski fjárfest-
ingarbankinn Salomon Broth-
ers þraut örendi og átta ár síðan
fjárfestingarfélagið Long Term
Capital fór sömu leið. Eru þá
ótaldir allir þeir minni bankar
úti í hinum stóra heimi sem ryk-
falla í sögubókum. Man kannski
enginn lengur eftir Útvegs-
bankanum?
Útvegs- hvað?
„Í fyrra var í fyrsta skipti sem
allir hlauparar í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis gátu safnað
áheitum en áður höfðu aðeins
starfsmenn Glitnis hlaupið til
góðs. Það má segja að þetta hafi
verið tilraun, sem gafst vel,“
segir Már Másson, forstöðumað-
ur samskiptasviðs Glitnis.
Bankinn styrkti starfsmenn
um þrjú þúsund krónur fyrir
hvern kílómetra í Reykjavík-
urmaraþoni Glitnis í fyrra og
hét 500 krónum á viðskiptavini
bankans. Í ár námu áheitin eitt
þúsund krónum á starfsmenn og
300 krónum á viðskiptavini.
Már segir að áheitasöfnunin í
fyrra hafi hvatt menn til dáða,
hlaupurum hafi fjölgað milli ára
og fleiri hlaupið lengri vega-
lengdir.
Í fyrra söfnuð-
ust 41,3 milljón-
ir króna í mar-
aþoninu. Nið-
urstöðunnar nú
er að vænta á
næstu dögum.
Góð tilraun
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking