Fréttablaðið - 03.10.2008, Síða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Hingað til hefur verið um það þegjandi sátt að Seðlabanki
Íslands sé hinn pólitíski súr sem
fullnýttir stjórnmálamenn eru
lagðir í og geymdir aftast í búrinu.
Nú hefur hins vegar einn slátur-
keppurinn í troginu talið sér trú
um að hann sé jafn ferskur og
meyr lund af nýslátruðu ungnauti,
ýtt norska hamborgarhryggnum
til hliðar og sett sjálfan sig efst á
matseðil íslenskra stjórnmála.
NÝJASTI rétturinn á seðlinum er
eldsteikt hagkerfi. Uppskriftin er
einföld. Takið knippi af lítt þrosk-
uðum kaupsýslumönnum og setjið
í stórt fat. Þótt kjötið sé siðferðis-
lega rýrt – og þar af leiðandi ekki
of sætt – er það hins vegar nokkuð
ofalið og feitt. Berjið það hraust-
lega með kjöthamri þar til útblásið
stoltið er orðið hæfilega marið.
AUSIÐ nokkrum vel völdum,
beiskum ummælum yfir kjötið. Ef
óbragðið af fúkyrðaflaumnum er
of sterkt, útvatnið þá með mark-
lausu bjartsýnishjali. Veltið svo
hráefninu upp úr eggi og niður-
rifnum krónuspæni. Til að steik-
ingin heppnist sem best er mikil-
vægt að ná öllum safa úr kjötinu.
Hækkið því stýrivexti upp úr öllu
valdi, þannig að hitni rækilega
undir fleskinu, og látið malla þar
til eigið fé seytlar úr hverri útrás
og gufar upp. Stráið maldon-salti í
góðærissárin og þjóðnýtið.
ATHUGIÐ að besta kjötið er af
skrokkum sem er búið að berja
þar til þeir verða bláir. Tilvalið er
að stinga rauðu epli í munn þeirra
– sérstaklega ef þeir eru með eitt-
hvert múður – og ekki verra ef
hægt er verða sér úti um vinstri
grænar baunir og Brúnastaðasósu
til að hella yfir.
LEGGIÐ á borð fyrir fimm manna
þjóðstjórn. Skerið kjötið í þykkar
sneiðar. Ekki hirða um óþarfa
prjál á borð við hnífapör, afsakið
samtíninginn og takið til matar
ykkar með berum höndum.
Graðgið í ykkur þessa dýrustu
flottræflakrás sem borin hefur
verið fram; leifið engu, bryðjið
bæði sinar og bein; kýlið út vömb-
ina eins og þetta sé ykkar síðasta
máltíð; sleikið diskinn þegar þið
eruð búin og látið meltingarkerf-
inu eftir framhaldið.
FLYTJIÐ ykkur yfir í betri stof-
una, stangið úr tönnunum og fáið
ykkur kaffi og koníak. Gefið ykkur
tíma til að láta sjatna í ykkur,
hallið ykkur aftur í sófanum,
hneppið frá efstu buxnatölunni og
setjið fætur upp á borð. Slakið á.
Almenningur sér um uppvaskið.
Gjörið svo vel
4. okt. laugardagur 8-20 - 5. okt. sunnudagur 10-19
einfaldlega betri kostur
Velkomin í ILVA.
Öðruvísi húsgagnaverslun.
Opnum 7000m² verslun að
Korputorgi, þann 4. október kl. 8:00
©
IL
VA
Ís
la
nd
2
0
08
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 552 4500
mánudaga - föstudaga 11-19 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
verslaðu allan sólarhringinn á www.ilva.is
Tilboð á
yfi r 400
vöruliðum
Bjóðum uppá vaxtalaust
lán til 6 mánaða
Ypsilon karafla 1líter
990,-
NÚ 690,-
Golia barstóll
39.950,-
NÚ 29.950,-
Tealight kertaglas
295,-/stk.
NÚ 195,-/stk.
Campo borð + Cebu 4 stólar
161.500,-
NÚ 129.500,-
Curve hægindastóll
64.900,-
NÚ 49.900,-
Umbria Eaton 2½ sæta sófi
89.900,-
NÚ 69.900,-
Porthole standlampi
59.900,-
NÚ 39.900,-
Lounge ofinn stóll
19.900,-
NÚ 9.900,-
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Í dag er föstudagurinn
3. október, 277. dagur ársins.
7.43 13.17 18.48
7.30 13.01 18.31