Fréttablaðið - 11.10.2008, Side 2
2 11. október 2008 LAUGARDAGUR
Fjölskyldu- og
bjartsýnisganga FÍ
Komum full af bjartsýni og baráttuanda í létta
fjölskyldugöngu Ferðafélags Íslands í neðst í Esjunni.
Göngum á vit íslenskrar náttúru þegar á móti blæs.
stað kl. 14 í dag frá bílaplaninu við Mógilsá.
Heitt kakó og bakkelsi.
Ókeypis þátttaka. Allir velkomnir.
Sjá www.fi .is
Eirný, eru viðskiptin við Bret-
ana ekki komin í osta-köku?
„Nei, nei. Þeir brosa bara og segja
cheese!“
Eirný Sigurðardóttir býður upp á heima-
gerða osta, meðal annars frá Bretlandi, í
Búrinu, nýrri ostaverslun sinni í Nóatúni.
ATVINNUMÁL Bæjaryfirvöld í Ölf-
usi funduðu í gær með fulltrúum
erlends fyrirtækis sem hefur
áhuga á að reisa
sólarkísilverk-
smiðju í Þor-
lákshðfn. Lýsti
fyrirtækið yfir
áhuga á að reisa
jafn stóra verk-
smiðju og
norska stórfyr-
irtækið REC
Group hugðist
byggja þar.
Ólafur Áki
Ragnarsson,
bæjarstjóri í
Ölfusi, gagn-
rýnir stjórnvöld
hart og segir
þau hafa staðið
í veginum fyrir
áformum
norska fyrir-
tækisins. Þrjú
fyrirtæki hafa
lýst áhuga
sínum á byggingu verksmiðju á
stuttum tíma.
Ólafur Áki segir að fundað hafi
verið með erlendu fyrirtæki í gær
en getur ekki gefið upp um hvaða
aðila er að ræða, þar sem viðræð-
urnar eru trúnaðarmál. Áður
hefur ítalska fyrirtækið Becrom-
al sýnt því áhuga að koma hingað
til lands en Ólafur Áki segir að um
nýtt fyrirtæki sé að ræða sem vill
reisa jafn stóra verksmiðju og
norska fyrirtækið REC Group
hugðist reisa hér, en það valdi
þess í stað Quebec í Kanada undir
starfsemi sína. Ólafur segir að
norska fyrirtækið hafi ákveðið að
hætta við uppbyggingu hér vegna
þess að ekki fengust skýr svör frá
umhverfisráðuneytinu um hversu
langan tíma það tæki að ljúka
umhverfismati vegna starfsem-
innar. „Þetta er fyrirtæki sem
þarf ekki losunarkvóta og mengar
ekki neitt og það er með ólíkind-
um að ákveðnir aðilar standi í
vegi fyrir atvinnuuppbyggingu.“
Aðspurður hvort hann beini
orðum sínum til Þórunnar Svein-
bjarnardóttur umhverfisráðherra
segir Ólafur að „hún hafi ekki
hjálpað til við atvinnuuppbygg-
ingu hér í Ölfusi, svo mikið get ég
sagt þér. Við erum sífellt að vinna
að þessu máli en það er ekki auð-
velt þegar pólitíkusar slá sífellt á
puttana á okkur.“
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að norska fyrirtækið
hafi fengið þau svör frá umhverf-
isyfirvöldum að það tæki sex til
átján mánuði að vinna umhverfis-
mat vegna verksmiðjunnar. „Þetta
voru ekki fagleg vinnubrögð. Við
förum eindregið fram á að þetta
endurtaki sig ekki.“
Um 300 manna vinnustað verð-
ur að ræða ef af verður, þar af
verður rúmlega þriðjungur starfs-
manna háskólamenntaður. Á bygg-
ingartímanum þyrfti um 500
starfsmenn til að reisa verksmiðj-
una sem kostar um níutíu millj-
arða króna.
Ekki náðist í umhverfisráðherra
við vinnslu fréttarinnar.
svavar@frettabladid.is
Vonir kvikna aftur
um kísilverksmiðju
Bæjaryfirvöld í Ölfuss hafa rætt við áhugasaman erlendan aðila um að reisa
sólarkísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Áformin eru þau sömu og hjá norsku fyrir-
tæki sem hætti við í sumar. Bæjarstjóri gagnrýnir umhverfisráðherra hart.
ÞORLÁKSHÖFN Öll undirbúningsvinna vegna kísilverksmiðju hefur farið fram. Tilbúin
er lóð fyrir vestan bæinn. Framleidd yrðu 25 þúsund tonn af kísil fyrir sólarrafala.
MYND/EINAR ELÍASSON
VILHJÁLMUR
EGILSSON
ÓLAFUR ÁKI
RAGNARSSON
BRETLAND, AP Enn einu sinni hefur
gagnadiskur týnst í Bretlandi. Að
þessu sinni er það breski herinn,
sem hefur týnt diski með
persónuupplýsingum um hundrað
þúsund hermenn.
Í síðasta mánuði var gagnadiski
stolið frá breska hernum, og fyrr
á árinu var fartölvu með við-
kvæmum persónuupplýsingum
um nýliða stolið. - gb
Breski herinn:
Týndu gagna-
diski enn á ný
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu leitar enn
tveggja manna sem eru grunaðir
um rán og líkamsárás á Laugavegi
um hálffjögurleytið aðfaranótt
sunnudags.
Þá var karlmaður á sjötugsaldri
barinn og rændur. Árásarmennirn-
ir eru taldir vera á aldrinum 25 til
30 ára og af erlendu bergi brotnir.
Síðar sömu nótt var tösku rænt af
konu á þrítugsaldri sem var á
gangi við Hverfisgötu. Þar var um
tvo gerendur að ræða. Lögreglan
handtók mann í fyrradag vegna
rannsóknar málsins. Eftir
yfirheyrslur var hann ekki talinn
tengjast því og var sleppt. - jss
Lögregla höfuðborgarsvæðis:
Árásarmanna
er enn leitað
VIÐSKIPTI Engum kemur á óvart að kaupum Straums á
þremur einingum Landsbankans í útlöndum hafi verið
rift.
Straumur sendi í gær tilkynningu um að hætt hefði
verði við kaupin. Þegar þau voru kynnt, fyrir rúmri
viku, sagði William Fall, forstjóri Straums, að í þeim
fælust mikil tækifæri fyrir Straum.
Heimildarmenn Fréttablaðsins segja nú að eignirnar
séu í raun verðlausar. Allar íslenskar eignir erlendis
séu á brunaútsölu, eins og staðan sé nú. Þá hafi
hvorugur aðilinn raunverulega getað staðið við það
sem samið var um.
Straumur segir að ákvörðun breskra stjórnvalda um
að frysta eigur Landsbankans ytra, sýni að Landsbank-
inn geti ekki staðið við söluna.
Eigurnar eru hins vegar á Írlandi, Frakklandi og
víðar, en ekki eingöngu á bresku yfirráðasvæði.
Málið varðar 380 milljóna evra sölu Landsbank-
ans á Landsbanka Securities, Landsbanka Kepler og
84 prósenta hlut Landsbankans í Merrion Lands-
banki. -msh, ikh
Kaup Straums á dótturfélögum Landsbankans í Bretlandi ganga til baka:
Enginn undrast riftun kaupanna
KAUPIN KYNNT William Fall kynnir kosti kaupa á einingum
Landsbankans fyrir rúmri viku. Þeim hefur nú verið rift.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
EFNAHAGSMÁL „Mér einfaldlega
blöskraði þessi fréttaflutningur
bresku pressunnar af málefnum
Íslands,“ segir
Rúnar Birgis-
son, umboðs-
maður Megasar
með meiru.
Harðort
tölvubréf eftir
Rúnar, þar sem
hann tekur upp
hanskann fyrir
land og þjóð,
var lesið upp á
Sky-sjónvarpsstöðinni í gær.
„Brown is a clown“, er einkunnin
sem Rúnar gefur forsætisráð-
herra Breta í bréfinu.
Rúnar segist af og til senda
tölvubréf til ensku pressunnar.
„Þeir kímdu góðlátlega þegar
þeir lásu bréfið mitt upp, enda
kurteisir menn. Þetta var bara
persónulegt bréf með minni
skoðun. Brown er með allt niður
um sig í eigin ranni og reynir að
veiða atkvæði með að ráðast á
liggjandi þjóð.“ - kg
Tölvupóstur lesinn upp á Sky:
Kallaði Gordon
Brown trúð
RÚNAR BIRGISSON
DÓMSMÁL Þrír karlmenn á aldrin-
um 27 til 45 ára hafa verið ákærðir
vegna dauðsfalls sem varð í íbúð
við Frakkastíg í júní.
Mennirnir eru ákærðir fyrir
brot gegn lífi og líkama er þeir
létu farast fyrir að koma pólskum
samlanda undir læknishendur er
hann veiktist lífshættulega á
mánudegi eftir að hafa hlotið
höfuðhögg. Mennirnir voru allir
staddir á Frakkastíg þegar
atvikið varð. Maðurinn var
fluttur á sjúkrahús að morgni
þriðjudagsins, þar sem hann lést
skömmu síðar af völdum höfuð-
áverka sem hann hlaut við
höggið. -jss
Þrír menn fyrir dóm:
Ákærðir vegna
láts samlanda
STJÓRNMÁL Geir Haarde forsætis-
ráðherra barst í gær bréf frá Gor-
don Brown, forsætisráðherra
Bretlands. Þar kveður við allt
annan tón en í yfirlýsingum Brown
í breskum fjölmiðlum undanfarna
daga.
Brown segist vilja lýsa áhyggj-
um sínum af afleiðingum aðgerða
íslenskra stjórnvalda í sambandi
við íslenska bankakerfið en kveðst
ánægður með að hafa heyrt af
samtölum Geirs við breska fjár-
málaráðherrann.
Þrátt fyrir sáttatón í bréfi
Browns ítrekaði Geir á blaða-
mannafundi í gær að honum hefði
mislíkað ummæli og framganga
Breta. „Það hefur enginn íslensk-
ur ráðamaður haldið því fram að
við myndum ekki standa við okkar
skuldbindingar út á við,“ sagði
Geir sem kvað íslensk stjórnvöld
ekkert hafa á móti því ef Bretar
kysu að fara með málið fyrir dóm-
stóla. „En með sama hætti áskilja
íslenskir aðilar sér að sjálfsögðu
líka rétt til að fara með mál fyrir
dómstóla ef það skyldi koma í ljós
að bresk yfirvöld hafi með yfirlýs-
ingum sínum eða aðgerðum brotið
á íslenskum hagsmunum.“
Breski forsætisráðherrann
segir sendinefnd embættismanna
farna til Íslands til viðræðna. „Við
vonum afar sterkt að það verði
mögulegt að leysa þessa stöðu
fljótt á uppbyggilegan hátt og á
grunni sam-
vinnu,“ segir í
bréfi Gordons
Brown. - gar
Forsætisráðherra Breta vill friðsamlega lausn og sendir fulltrúa sína til Íslands:
Geir fékk sáttabréf frá Brown
BRÉF FRÁ BROWN Geir Haarde
segir Íslendinga áskilja
sér rétt til að leita til
dómstóla hafi bresk
stjórnvöld brotið á
hagsmunum þeirra.
LÖGREGLUMÁL „Kannski leikur
kreppan eitthvert hlutverk í
þessu. Þetta er að minnsta kosti
óvenju bíræfinn þjófnaður,“ segir
Sveinn M. Sveinsson, einn af
eigendum hesthúss sem er í
byggingu á hinu nýja félagssvæði
hestafélagsins Fáks í Almanna-
dal. Tveimur tonnum af báru-
járnsþakplötum, rúmlega sjö
metrar að lengd, var stolið af
svæðinu í fyrrinótt.
Sveinn segir fjárhagslegt tap
upp á hálfa milljón króna fylgja
þjófnaðinum. „Þessir menn hafa
komið með kranabíl og gert þetta,
enda engin smávegis þyngd á
þessu. Hjólförin sjást vel,“ segir
Sveinn. Hann hvetur alla sem
geta hjálpað við að upplýsa málið
til að hafa samband við lögreglu.
- kg
Bíræfinn þjófnaður:
Tveimur tonn-
um af þakplöt-
um stolið
SVEINN M. SVEINSSON Leitar nú logandi
ljósi að tveimur tonnum af þakplötum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPURNING DAGSINS