Fréttablaðið - 11.10.2008, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 11. október 2008
1. Áhöfnin á
Halastjörnunni -
Stolt siglir fleyið
mitt
Stórsjónum á og
allt það. Gylfi sigr-
aðist á Bakkusi.
Nú er komið að
okkur og frænda
hans, Mammoni.
2. Bob Dylan - Maybe Someday
„When you’ve lost everything you’ll
have nothing left to hide,“ söng
meistarinn.
3. Magnús Þór Sigmundsson - Álfar
Eru álfar kannski menn? Er líka
kreppa hjá þeim
eða geta þeir
lánað okkur
peninga?
4. Hemmi Gunn
- Út á gólfið
Dansa, hvað
er betra en að
dansa? Einmitt!
5. Olga Guðrún - Eniga meniga
„Eniga meniga, ég á enga peninga,
súkkadí púkkadí, en ég get sungið
fyrir því“ – svo er bara að gleyma því
að lagið hafi heyrst í bankaauglýs-
ingu.
6. Monty Python - Always Look on
the Bright Side of Life
Segir allt sem segja þarf og er
einstaklega grípandi. Ekkert verra að
horfa líka á atriðið á Þúskjá.
7. Handboltalandsliðið 1988 -
Gerum okkar besta
„Og aðeins betur ef það er það sem
þarf! Við látum hendur standa fram úr
ermum og ekkert þras.“
8. Baggalútur - Ísland, ég elska þig
„Í senn angistarfullt, viðeigandi, hæfi-
lega væmið, áminnandi og einstak-
lega þjóðlegt,“ eins og segir á heima-
síðu Baggalúts, sem hefur aldrei verið
eins nauðsynleg og akkúrat núna.
9. Flowers - Slappaðu af
„Þú skalt reyna að halda kjafti og
slappa svolítið af,“ syngur fyrrverandi
umboðsmaður hestsins. Kannski
óþarfi að segja okkur að halda kj... en
hitt er nauðsynlegt.
10. KK og Magnús Eiríksson -
Óbyggðirnar kalla
Þær bæði kalla og eru ekki að fara
neitt.
LAGALISTI
FYRIR HNÍPNA
ÞJÓÐ Í VANDA
MAGNÚS OG KK Lagið Óbyggðirnar kalla er tilvalið til að þjappa Íslendingum saman
þessi dægrin.
„Jú, hér eru bara allir að faðmast
og það hrjóta ástarorð við hvert
tækifæri. Þetta er jú bara það eina
sem við getum gert í svona ástandi,
að sýna hvert öðru ást og hlýju,“
segir Ólafur Páll Gunnarsson
Popplandskóngur með
meiru. Útvarpsfólkið
hefur ekki farið varhluta
af þeirri kreppu sem ríkir
í íslensku efnahagslífi.
Starfsmennirnir eru gjaf-
mildir á faðmlög, faðma
hver annan og jafnvel
fá viðmælendur sem
koma í útvarpið knús
frá ástríku starfs-
fólki.
En það er ekki
bara hlýja sem yljar
útvarpsfólkinu í Efsta-
leitinu um hjartaræt-
urnar. Ólafur viður-
kennir að lagalisti
stöðvarinnar hafi tekið
hálfgerðum stakkaskipt-
um. „Ég man reyndar að þegar
þetta fór að fréttast fyrst þá spil-
aði ég Highway to Hell. En núna –
því lög öðlast einhverja meiri dýpt
í svona ástandi – þá veltir maður
því óneitanlega meira fyrir sér
hvaða lög séu við hæfi og hver
ekki.“
Þannig hafa til að mynda gömul
íslensk lög á borð við Stolt siglir
fleygið mitt og Ísland er land þitt
tekið að hljóma á öldum ljós-
vakans. Ólafur segir þetta
enga tilviljun. „Við
ætlum ekki að draga
fólk ofan í svartnætt-
ið. Við ætlum bara að
halda áfram að
skemmta fólki.“ - fgg
Rás 2 í faðmlögum
TOPP 10:
FAÐMLÖG OG ÞJÓÐ-
ERNISLÖG Ólafur Páll
segir starfsfólk Rásar 2
ekki vera nískt á knús og
faðmlög og lagalisti stöðv-
arinnar hafi breyst í kjölfar
kreppunnar.