Fréttablaðið - 11.10.2008, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég er ánægður með bílinn minn.
Sérstaklega litinn. Mér finnst
hann flottur. Auðvitað eru ekki
allir sammála mér en það er bara
betra,“ segir Óskar Björn hressi-
lega um bílinn sinn sem er af
gerðinni Ford Puma.
Hann kveðst búinn að eiga bíl-
inn í tæp tvö ár. „Ég fékk hann
fljótlega eftir að ég tók bílpróf-
ið,“ rifjar hann upp. „Mamma
átti hann fyrst en lenti í óhappi
og beyglaði hann aðeins. Það var
svo dýrt að gera við hann svo ég
keypti hann af henni og býst við
að keyra bara út úr honum. Það
fæst ekkert fyrir svona gamlan
bíl hvort sem er,“ heldur hann
áfram. Óskar Björn kveðst oft
fara á Fordinum í skólann enda
sé drjúgur spölur þangað en hann
stundar nám við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti.
Óskar Björn er sammála því að
Ford Puma-bílar séu sjaldgæfir
á götunum. Kveðst þó mæta
einum og einum. „Þessir bílar
voru framleiddir frá 1997 til 2002
og svo kemur held ég nýr 2009 en
ég veit ekki hvernig hann verður.
Kannski verður hann eitthvað
öðruvísi.“
Farkosturinn hans Óskars
Björns er af árgerð 1999. Eig-
andinn hlær þegar hann segir
hann ágætlega kraftlausan sport-
bíl. „Samt er hann fínn miðað við
hvað hann er með fá hestöfl.
Hann er með 1400 vél og er bara
89 hestöfl,“ upplýsir hann og
bætir við. „En hann er léttur og
sparneytinn og vinnslan er bara
fín.“
Fordinn hefur sem betur fer
lítið bilað að sögn eigandans,
nema hvað dempararnir hafa
slitnað eins og eðlilegt getur tal-
ist. „Það er rándýrt að fá vara-
hluti í þennan bíl núna,“ segir
Óskar Björn. „Það verður að sér-
panta þá frá Bandríkjunum og
það er ekki auðvelt eins og stað-
an er í dag.“
gun@frettabladid.is
Ágætlega kraftlaus bíll
Ford Puma-bílar eru frekar sjaldgæf sjón og fjólubláir bílar eru heldur ekki á hverju strái. Bíllinn hans
Óskars Björns Óskarssonar menntaskólanema sameinar þetta tvennt og er því eftirtektarverður.
Óskar Björn er ánægður með að hafa bílinn til að komast á í skólann og skjótast hvert sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TEYGJUR eru mikilvægar fyrir líkamann. Ekki þarf að eyða löngum
tíma í nokkrar einfaldar teygjur. Á vef Lýðheilsustöðvar er hægt að hala
niður teygjuforriti sem minnir þá sem sitja við tölvuna á að teygja reglu-
lega. Slóðin er: www.lydheilsustöð.is og kallast forritið Teygjuhlé fyrir börn
og unglinga. Á doktor.is má einnig finna góðar teygjur með myndum.
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.
Meirapróf
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
!"#
!$!%
!"#
!$!%
!"#
!$!%
!"#
!$!%
!"#
!$!%
!"#
!$!%
Þriðjudaga og mmtudaga