Fréttablaðið - 11.10.2008, Side 4
4 11. október 2008 LAUGARDAGUR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
EFNAHAGSMÁL Leikskólakennarar
hvetja starfsmenn leikskóla til að
tryggja að börn hafi fullan og
óskertan aðgang að leikskólanámi
þrátt fyrir tímabundna fjárhags-
lega erfiðleika. Þetta kom fram í
tilkynningu frá Stjórn Félags
leikskólakennara í gær.
Leikskólastjórar eru hvattir til
að vera á varðbergi og grípa inn í
ef grunur er um að foreldrar
neyðist til að segja upp leikskóla-
dvöl sökum fjárskorts. Minnt er á
að leikskólinn sé griðastaður
barna þar sem þau geta dvalið við
leik og nám án þess að þurfa að
hlusta á umræður eða verða fyrir
áreiti af nokkru tagi vegna þeirra
óvenjulegu aðstæðna sem blasa
við í íslensku efnahagslífi. - kdk
Stjórn leikskólakennara:
Leikskólabörn
eiga að fá frið
VIÐSKIPTI Gengi krónu styrktist um
0,74 prósent og endaði gengisvísi-
talan í 199 stigum í gær. Kauphöll-
in hefur verið lokuð frá fimmtu-
degi, en á að opna á mánudag.
Nokkru munaði á genginu á
gjaldeyrismarkaði líkt og í
vikunni. Bandaríkjadalur kostaði
110,4 krónur á gjaldeyrismarkaði
en 97,5 krónur hjá Kaupþingi.
Svipaða sögu var að segja um aðra
gjaldmiðla.
Gjaldeyrisreiknir tímaritsins
Forbes sýndi allt aðra niðurstöðu
en vestanhafs kostaði einn dalur
225 íslenskar krónur. - jab
Enn misgengi á krónunni:
Króna ódýr
vestanhafs
KRÓNAN Íslenska krónan er ódýrari í
Bandaríkjunum en hér á landi.
EFNAHAGSMÁL Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, SA, segir að
„neyðarköll“ berist frá fyrirtækj-
unum í landinu vegna þess að
fjármálaþjónustan sé ekki komin
í lag, gjaldeyrisviðskiptin séu í
lamasessi og vextir út úr öllum
kortum.
Vilhjálmur segir að eignir fólks
séu að brenna upp út af vöxtum.
„Það bara verður að koma lausn
um helgina,“ segir hann. „Fjár-
magnið hefur þurrkast upp
þannig að þetta er allt mjög
erfitt. Það verður að klára þessi
IMF-mál svo að við getum fengið
eðlileg gjaldeyrisviðskipti.“ - ghs
Framkvæmdastjóri SA:
Lausn þarf
um helgina
GENGISMÁL „Gjaldeyrisviðskipti á
Íslandi minna nú helst á það sem
tíðkaðist í Austur-Evrópu á
Sovéttímanum,“ segir í finnska
viðskiptablaðinu Taloussanomat.
Blaðið varar þá sem leið eiga til
Íslands við að kaupa gjaldeyri
áður en lagt er af stað, því evrum
megi annaðhvort skipta í íslenskar
krónur á opinberu gengi, eða á
öðru og betra óformlegu gengi.
„Veltur þá allt á því að kunna að
spyrjast fyrir,“ segir blaðið.
Blaðið hefur eftir finnskum
ferðamönnum á Íslandi að hægt sé
að greiða með evrum í verslunum,
og þá sé hægt að prútta um
gengið. Í öðru finnsku viðskipta-
blaði, Kauppalehti, var ástandinu
á Íslandi líkt við Zimbabwe. -msh
Svartur gjaldeyrismarkaður
Íslandi líkt við
Zimbabwe
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
16°
15°
15°
15°
18°
22°
22°
23°
20°
23°
25°
24°
18°
24°
22°
30°
18°
Á MORGUN
10-15 m/s S- og V-til,
annars hægari.
MÁNUDAGUR
Breytileg átt, 3-8 m/s,
stífari NA-átt vestast.
4
4
3
6
7
10
10
13
8
5
7
4
3
2
4
5
7
6
6
7
5
0
3 2
4
7
6
5 4
5
6
8
VEÐUR BREYTIST
Á MORGUN
Við fáum lægð upp
að landinu úr suðri
á morgun með
úrkomu sunnan- og
vestanlands í fyrstu
en reikna má með
úrkomu í fl estum
landshlutum annað
kvöld. Á mánudag
mun hlýna dálítið
og úrkoman verður
bundin við norð-
anvert landið en
annars yfi rleitt þurrt.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
MÓTMÆLI Um tvö hundruð manns
söfnuðust saman við styttu Ingólfs
Arnarsonar á Arnarhóli í hádeginu
í gær til að til að krefjast þess að
stjórn Seðlabankans segði af sér.
Hrafnkell Orri Egilsson, sem stóð
að mótmælunum, sagði í samtali
við Vísi.is að tímabært væri að
þeir sem gert hefðu mistök öxluðu
ábyrgð á ástandinu. Ástandið í
gjaldmiðilsmálum væri grafalvar-
legt og sorglegt væri að þjóðin
hefði beðið skipbrot þrátt fyrir
ítrekaðar aðvaranir. - kg
Mótmæli á Arnarhóli í gær:
Um 200 kröfð-
ust afsagnar
MÓTMÆLI 200 manns mótmæltu á
Arnarhóli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EFNAHAGSMÁL Halldór Ásgríms-
son, framkvæmdastjóri Norrænu
ráðherranefndarinnar, telur ein-
boðið að stjórnvöld leiti til
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann
segir að það sé nauðsynlegt við
þær aðstæður sem nú eru uppi.
„Það er vond lesning að sjá
hvað Seðlabankinn hefur leitað
víða eftir lánalínum og aðstoð allt
þetta ár án nokkurs árangurs. Ég
tel nauðsynlegt að leita til sjóðs-
ins við þessar aðstæður, enda er
það hlutverk hans að koma til
hjálpar. Menn kunna að óttast að
hann setji ýmis skilyrði, sem
hann mun vissulega gera, en það
þarf hvort eð er að taka margar
ákvarðanir sem munu leiða okkur
inn í betri framtíð. Það er betra
að hafa aðstoð við það.“
Erlendir bankar eru í óðaönn
að loka fyrir viðskipti við Ísland.
Halldór segir mikilvægt að fá
erlenda fjármálastarfsemi til
landsins. „Það er mjög mikilvægt
að erlendir bankar setji upp
aðstöðu hér á landi; hvort sem
þeir taka yfir aðstöðu sem er
fyrir eða koma upp nýrri. Við
höfum brennt allar brýr að baki
okkur og þurfum að fá alþjóðleg-
ar fjármálastofnanir sem njóta
trausts.
Til lengri tíma litið liggja tæki-
færi fyrir þessar stofnanir hér á
landi. Ráðamenn geta liðkað
fyrir, en margir þeir sem staðið
hafa í bankastarfsemi hafa góð
sambönd og ættu að nýta þau.“
Halldór segir einnig að íslensk
stjórnvöld ættu að hefja viðræð-
ur við Evrópusambandið um
aðild, í það minnsta um myntsam-
starf. Það hafi að vísu ekki áhrif
strax en gefi skýr skilaboð.
Halldór segir að hjólum
atvinnulífsins verði að koma
aftur í gang og þar eigi hik ekki
við. „Menn mega ekki vera hik-
andi í að koma af stað fjárfest-
ingum í orkumálum og iðnaði og
við getum ekki fest okkur í lög-
formlegu ferli sem tefur fyrir.
Alþingi getur sett sérlög um
ákveðnar framkvæmdir, líkt og
gert var um Kárahnjúkavirkjun.
Þingmenn geta tekið ákvarðanir
á þessu sviði á sama hátt og stofn-
anir.“
Harðorðar yfirlýsingar hafa
borist frá breskum stjórnvöldum
gagnvart Íslendingum og segist
Halldór hneykslaður á þeim.
„Menn hegða sér ekki svona, að
fara í fjölmiðla með offorsi. Vel
má vera að eitthvað hafi misskil-
ist og eitthvað verið sagt klaufa-
lega. En menn ráðast ekki á skip í
sjávarháska og fara fram með
slíku offorsi.“
Halldór segir þetta munu
breyta utanríkisstefnu þjóðar-
innar. „Já vissulega, það er barna-
skapur að halda annað. Þær þjóð-
ir sem hafa staðið næst okkur
lengi í öryggis- og varnarmálum
hafa komið þannig fram. Fyrst
Bandaríkjamenn, þegar þeir
hurfu á brott með einhliða hætti,
og nú Bretar.“
kolbeinn@frettabladid.is
Vill fá erlendan
banka til landsins
Halldór Ásgrímsson vill fá erlenda fjármálastofnun til landsins. Hann segir Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn verða að koma að málum. Hann er hneykslaður á Bret-
um fyrir framgöngu þeirra og kallar eftir sérlögum um virkjanir.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Telur að Alþingi verði að setja sérlög um einstakar fram-
kvæmdir í virkjana- og orkumálum. Ekki megi láta regluverk tefja fyrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
UTANLANDSFERÐIR Eftirspurn eftir
flugi til útlanda hefur snarminnk-
að á Íslandi undanfarna daga. Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafull-
trúi Icelandair, segir hins vegar að
bókunarstaðan erlendis hafi verið
nokkuð góð. Ekki verði vart við að
farþegar mæti ekki í flug.
„Fólk er ennþá að bóka sig til
Íslands frá öllum okkar markaðs-
svæðum, jafnvel núna síðustu
daga, bæði frá Skandinavíu, Bret-
landi og Bandaríkjunum en þetta
er náttúrulega mjög ótryggt
ástand,“ segir Guðjón.
Hann bendir á að stjórnendur
Icelandair hafi séð fyrir verulegan
samdrátt, fyrst og fremst út af
olíuverðshækkunum og því hafi
framboðið í vetur verið skorið
niður um 15-20 prósent. Guðjón
segir spár um samdrátt nokkurn
veginn hafa gengið eftir.
„Miðað við spár hefur staðan
verið ágæt. Við höfum séð Íslend-
inga ferðast minna en straumur
ferðamanna hingað og yfir Atlants-
hafið er í þokkalega góðu standi
miðað við allt,“ segir hann og telur
ekki ljóst hvaða áhrif fjölmiðlaum-
fjöllun erlendis síðustu daga hafi.
„Við uppfyllum ekki þau afföll
að 20-30 manns vanti í vélar,“ segir
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri
Ferðaskrifstofu Íslands. „Salan
hefur dregist saman síðasta hálfa
mánuðinn en það er vel bókað í
ferðir fram til jóla. Við gerum
okkur grein fyrir að það verður
samdráttur en við höfum ekki
lokað öllum samningum fyrir
næsta sumar og getum stýrt fram-
boðinu.“ - ghs
Eftirspurn eftir flugi til útlanda hefur snarminnkað síðustu daga:
Fólk bókar sig enn til Íslands
ÞJÓÐIN FLÝGUR
MINNA „Við
höfum séð
Íslendinga
ferðast minna,“
segir Guðjón
Arngrímsson,
upplýsingafull-
trúi Icelandair.
GENGIÐ 10.10.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
199,9866
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,66 111,18
187,78 188,7
149,74 150,58
20,116 20,234
17,769 17,873
15,528 15,618
1,1182 1,1248
168,8 169,8
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR