Fréttablaðið - 11.10.2008, Síða 14
11. október 2008 LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR, 4. OKTÓBER.
Búinn!
Nú er hátíð í bæ. Í dag tókst mér
loksins að ljúka við bókina sem ég
er búinn að vera að vinna að svo
lengi að ég hélt hún væri að gera
mig vitlausan.
Þetta þýðir því miður ekki að ég
sé kominn í frí og geti lagst í vel-
lystingar og iðjuleysi. Nú er eftir
heilmikil vinna með ritstjóra sem
er reyndar búinn að lesa meiri-
hluta bókarinnar og kemur með
góð ráð og ábendingar um bæði
uppbyggingu, mál og stíl. Ég er
svo heppinn að ég er með frábær-
an ritstjóra sem heitir Anna Mar-
grét sem ekki bara er svo næm að
hún skilur textann sem ég skrifa
heldur skilur hún líka afhverju ég
skrifaði hann og afhverju hann er
svona en ekki hinsegin. Það er nú
meira hvað konur eru næmar í
þessu landi þar sem karlpeningur-
inn minnir meira og meira á naut-
gripi.
SUNNUDAGUR, 5. OKTÓBER.
Karlinn á kassanum
Nú er ég spenntur að sjá á morgun
hvað kemur út úr helgarvinnu
stjórnmálamanna. Ef þeir hafa að
minnsta kosti ekki döngun í sér til
að afnema 1) eftirlaunaósómann
fyrir hádegi á morgun og 2) reka
seðlabankastjórnina mun ég fá
mér ölkassa og flytja ræður á
Lækjartorgi gegnt stjórnarráðinu
og hvetja fólk til að grípa til vopna,
einkum fúleggja og skemmdra
tómata. Raunar ætti ekki að þurfa
mikil ræðuhöld til að hrinda af
stað vopnaðri byltingu hér á landi,
því að nóg virðist ofbeldishneigð-
in vera.
Á visir.is segir þetta um skemmt-
analíf gærkvöldsins: „Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynn-
ingar um 13 líkamárásir í nótt,
víðs vegar um borgina.“ Það er
mannsbragð að þessu eða hitt þó
heldur. Látum vera þótt fólk flykk-
ist út og hlaði götuvígi til að mót-
mæla dugleysi og heimsku stjórn-
málamanna, en að menn séu að
berja hver annan til að fá útrás
fyrir óhamingju sína og umkomu-
leysi og kalli það skemmtanalíf
finnst mér fyrir neðan allar hell-
ur.
Fer nú ekki að verða kominn
tími á að skera niður vitleysis-
ganginn hjá Ríkislögreglustjóra
og stormsveitinni og ráða nokkra
venjulega flatfætta lögregluþjóna
til að ganga vaktir hérna í höfuð-
borginni?
MÁNUDAGUR, 6. OKTÓBER.
Spilaborg frjálshyggj-
unnar hrunin
Aldrei þessu vant var ég spenntur
að skoða fréttirnar í morgun og
sjá árangurinn af fundahöldum
helgarinnar. Nema hvað Geir
Haarde situr við sinn keip í afneit-
uninni og segist ekki að ætla að
reka Davíð og hirðfífl hans. Það
er eins og þessi blessuð mann-
eskja skilji ekki að bráðum hættir
reiðin að beinast að störfum
stjórnar seðlabankans og fer að
snúast að forsætisráðherra sjálf-
um.
Þegar leið á daginn fór fleira og
fleira að koma í ljós. Einkavæð-
ingin er gengin til baka. Þessir
frjálshyggjubesefar entust í fimm
ár til að leika sér með traust fyrir-
tæki sem þeir fengu á tombólu-
verði.
Þetta er eftirminnilegur dagur,
ekki laust við að þetta hrun frjáls-
hyggjunnar minni mann á hruna-
dansinn þegar Sovétríkin leystust
upp vegna efnahagslegs glund-
roða. Það sem blífur er þjóðfélags-
lega ábyrgt einkaframtak með sál
og samfélagsvitund, temprað af
öflugri sósjaldemókratískri
stjórnarandstöðu.
ÞRIÐJUDAGUR, 7. OKTÓBER.
Fyndið eða sárgrætilegt?
Ég veit ekki hvort mér finnst
fyndið eða sárgrætilegt að
fjármálaráðherrann sem seldi
útvöldum aðila ríkisbankana
á tombóluprís skuli núna sem
forsætisráðherra segja í viðtali
við BBC að stjórnvöld þurfi að
verja bankakerfið – og bæta svo
við og íslensku þjóðina eins og
eftirþanka til skrauts.
MIÐVIKUDAGUR, 8. OKTÓBER.
Skuggavaldur og lífverð-
ir forsætisráðherra
Það er furðulegt að sjá forsætis-
ráðherra Íslands ganga um í fylgd
tveggja lífvarða. Hann hefur
aldrei virkað á mig sem sérstakur
kjarkmaður, en að hann væri
svona hræddur við Skuggavald
gamla í Svörtu loftum vissi ég
ekki fyrr en ég sá kjötfjöllin tvö
sem eru í fasi eins og skopstæling
á amerískum bíólöggum, „Men in
Black“. Það væri nær að forsætis-
ráðherrann fengi fleiri storm-
sveitarmenn í lið með sér og legði
til atlögu við brennuvargana í
Seðlabankanum sem segjast vera
slökkviliðsmenn.
FIMMTUDAGUR, 9. OKTÓBER.
Norsk fyndni
Í morgun fékk ég eftirfarandi
tölvuskeyti frá norskum vini
mínum. Það er á auðveldri ensku
og hljóðar svo með leyfi forseta:
An American said:
„We have George Bush, Stevie
Wonder, Bob Hope, and Johnny
Cash.“*
And an Icelander replied:
„We have Geir Haarde, no Wond-
er, no Hope, and no Cash.“
KÆRA DAGBÓK
Þráinn Bertelsson skrifar
Land hinna
berrössuðu keisara
Í dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað um heilu hópana af berrössuð-
um keisurum sem spóka sig á götunum hérna eins og ekkert sé, einnig er
minnst á næmar konur, nautsterka karla, götuvígi, ábyrgð og nokkra gamla
góða flatfætta lögregluþjóna.
SA
M
SETT M
YN
D
/K
ID
D
I
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is